Morgunblaðið - 28.01.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022
Grill 66-deild kvenna
Víkingur – Stjarnan U ......................... 35:34
Staðan:
Selfoss 12 10 1 1 354:290 21
ÍR 11 9 1 1 292:230 19
FH 12 8 2 2 308:253 18
Grótta 11 6 1 4 283:253 13
Víkingur 13 6 0 7 313:338 12
Fram U 11 5 0 6 295:309 10
Valur U 11 4 1 6 291:318 9
HK U 11 4 1 6 283:287 9
ÍBV U 11 3 1 7 259:263 7
Stjarnan U 12 3 0 9 304:372 6
Fjölnir/Fylkir 11 1 0 10 229:298 2
.$0-!)49,
Subway-deild karla
Keflavík – ÍR......................................... 77:94
Staðan:
Keflavík 14 10 4 1221:1155 20
Njarðvík 13 9 4 1221:1084 18
Þór Þ. 12 8 4 1155:1073 16
Valur 11 7 4 896:863 14
Grindavík 12 7 5 995:981 14
Stjarnan 13 7 6 1168:1139 14
Tindastóll 12 7 5 1026:1055 14
ÍR 14 6 8 1244:1260 12
Breiðablik 13 5 8 1394:1351 10
KR 11 5 6 994:1055 10
Vestri 12 3 9 945:1026 6
Þór Ak. 13 1 12 973:1190 2
NBA-deildin
Cleveland – Milwaukee...................... 115:99
Indiana – Charlotte .......................... 126:158
Orlando – LA Clippers..................... 102:111
Atlanta – Sacramento ...................... 121:104
Miami – New York ............................. 110:96
Brooklyn – Denver ........................... 118:124
Chicago – Toronto ............................ 111:105
San Antonio – Memphis................... 110:118
Utah – Phoenix ................................... 97:105
Portland – Dallas.............................. 112:132
57+36!)49,
Atli Barkarson, knattspyrnumaður
frá Húsavík, skrifaði í gær undir
samning við danska úrvalsdeild-
arfélagið SönderjyskE til ársins
2026, eða til hálfs fimmta árs. Dan-
irnir kaupa hann af Víkingi en Atli
spilaði alla leiki þeirra á síðasta
tímabili þegar liðið varð bæði Ís-
lands- og bikarmeistari. Atli, sem
er tvítugur vinstri bakvörður, lék
sína fyrstu tvo A-landsleiki fyrr í
þessum mánuði og á að baki 34 leiki
með yngri landsliðum Íslands. Með
Atla hafa samtals 11 Íslendingar
verið í röðum SönderjyskE.
Sömdu við Atla
til ársins 2026
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Danmörk Atli Barkarson er farinn
frá Víkingum til SönderjyskE.
Knattspyrnumaðurinn Finnur Orri
Margeirsson gekk í gær til liðs við
FH frá Breiðabliki og samdi við fé-
lagið til tveggja ára. Finnur, sem er
þrítugur miðjumaður, er þriðji
leikjahæsti leikmaður Breiðabliks í
úrvalsdeild karla og fjórtándi
leikjahæstur í sögu deildarinnar en
hann á að baki 158 leiki fyrir
Breiðablik og 89 fyrir KR. Finnur
varð Íslandsmeistari með báðum fé-
lögum og bikarmeistari með Blik-
um en hann lék jafnframt með
Lilleström í norsku úrvalsdeildinni
tímabilið 2015.
Morgunblaðið/Gunnar Egill
Kaplakriki Finnur Orri Margeirs-
son fór í FH-búninginn í gær.
Finnur Orri
til FH-inga
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Ég er mjög spenntur og þakklátur
fyrir þetta tækifæri,“ sagði Jóhann-
es Karl Guðjónsson, nýráðinn að-
stoðarþjálfari íslenska karlalands-
liðsins í knattspyrnu, í samtali við
Morgunblaðið í höfuðstöðvum KSÍ í
Laugardal í gær.
Jóhannes Karl, sem er 41 árs gam-
all, tekur við starfinu af Eiði Smára
Guðjohnsen sem lét af störfum í lok
nóvember og mun aðstoða Arnar Þór
Viðarsson með liðið.
Jóhannes Karl hefur undanfarin
fjögur tímabil stýrt liði ÍA en hann
kom liðinu upp í efstu deild sumarið
2018 og hefur það leikið í efstu deild
síðan. Þá hefur hann einnig stýrt liði
HK á þjálfaraferli sínum.
Miðjumaðurinn fyrrverandi lék
sem atvinnumaður í Belgíu, Hol-
landi, á Spáni og Englandi á atvinnu-
mannsferli sínum og þá lék hann 34
A-landsleiki fyrir Ísland þar sem
hann skoraði eitt mark.
„Ég hlakka mikið til að byrja að
vinna með Arnari og Grétari [Rafni
Steinssyni] svo ég tali nú ekki um
leikmennina sjálfa. Það hafa margir
ungir, efnilegir og tæknilega góðir
strákar fengið tækifæri með liðinu
að undanförnu og mig klæjar aðeins í
puttana að fá tækifæri til þess að
vinna með þeim.
Þetta er aðeins frábrugðið því sem
maður var að gera uppi á Skaga að
því leytinu til að núna er maður að
fara að vinna með atvinnumönnum
og ég er virkilega spenntur fyrir því
að reyna fyrir mér í þannig um-
hverfi,“ sagði Jóhannes Karl.
Mikil endurnýjun átti sér stað hjá
landsliðinu á síðasta ári en sonur Jó-
hannesar Karls, Ísak Bergmann Jó-
hannesson, stimplaði sig rækilega
inn í A-landsliðið á síðasta ári.
Vinnusemi og dugnaður
„Ég er búinn að fylgjast vel með
íslenska landsliðinu í gegnum tíðina
og vissulega hefur maður fylgst
meira með þessu síðustu ár eftir að
sonur minn kom inn í þetta. Að sama
skapi hafa margir ungir strákar
fengið tækifæri með liðinu síðasta
árið og verkefnið er því gríðarlega
spennandi á allan hátt. Efniviðurinn
er til staðar og þetta eru allt strákar
sem eru tilbúnir að leggja mikla
vinnu á sig. Það þurfa allir að leggj-
ast á eitt, líka við í þjálfarateyminu,
enda landið lítið sem og knatt-
spyrnusambandið. Hæfileikarnir
einir og sér koma þér ekki langt
áfram heldur er það vinnusemin og
dugnaðurinn og með þessum dyggð-
um næst árangur.
Árangurinn mun ekki nást á einni
nóttu og við þurfum að gefa ungu
leikmönnum tækifæri til þess að
gera sín mistök en markmiðið er að
endingu að koma liðinu aftur á stór-
mót. Mitt markmið er svo að hjálpa
strákunum að verða betri fótbolta-
menn og ég þarf líka að halda áfram
að þróa mig sem þjálfara. Ég fæ
stórt tækifæri til þess með komu
Grétars Rafns sem mun hjálpa mér
að bæta mig enn frekar. Vonandi
mun það skila sér til einstakra leik-
manna og inn í landsliðið því stóra
markmiðið er alltaf að vinna sem
flesta fótboltaleiki.“
Íslenska liðið fékk á sig 18 mörk í
tíu leikjum í J-riðli undankeppni HM
2022 á síðasta ári.
„Arnar ræður því algjörlega hvaða
leikkerfi við spilum en það er ekkert
launungarmál að við þurfum að verj-
ast betur. Stundum hentar það liðinu
betur að verjast aftar á vellinum og
þá geturðu kallað leikkerfið 4-5-1 eða
4-1-4-1. Það getur líka hentað vel
gegn ákveðnum andstæðingum að
verjast framar á vellinum og þá get-
urðu kallað það leikkerfi 4-3-3 þann-
ig að þessi nöfn á þessum leikkerfum
eru bara eins og þau eru. Menn
mega auðvitað hafa sínar skoðanir á
þeim en mér finnst við þurfa að taka
betri ákvarðanir, út frá andstæð-
ingum, hvenær við ætlum að verjast
og hversu nálægt markinu okkar við
ætlum að hleypa þeim.
Það er mín skoðun að við þurfum
að mæta mótherjum okkar framar á
vellinum því við erum með bæði orku
og hlaupagetu í þessum ungu
strákum sem geta það. Við þurfum
að færa okkur framar á völlinn og
lyfta aðeins ákefðinni í varnar-
leiknum. Það vantar aðeins upp á
þar, til þess að hleypa andstæðingum
ekki jafn auðveldlega að markinu
okkar eins og raunin varð í síðustu
undankeppni.“
Enginn á afslætti
Íslenska karlalandsliðið fór á tvö
stórmót með tveggja ára millibili,
EM 2016 í Frakklandi og HM 2018, í
Rússlandi.
„Það var mikil ákefð í liðinu sem
fór á tvö stórmót, ásamt samvinnu
og vinnusemi. Það var í raun alveg
sama hvaða leikmaður átti í hlut eða
hvar hann spilaði á vellinum, það var
enginn á neinum afslætti þegar kom
að vinnusemi og skipulagi. Það voru
leikmenn í þeim landsliðshóp sem
leiddu þá vinnu með frábæru for-
dæmi og það er eitthvað sem við get-
um klárlega nýtt okkur þó leikstíll-
inn með boltann verði kannski
aðeins öðruvísi hjá okkur.
Þú þarft á ákveðnum sveigjan-
leika að halda í þessu eins og öðru og
það er okkar hlutverk að hjálpa
þessum strákum þannig að þeir geti
spilað fleiri en eitt leikkerfi. Það er
fullt af hlutum og leiðum sem við
þurfum að spegla okkur í, út frá and-
stæðingi, en það sem mun koma okk-
ur á stórmót er vinnuseminn enn og
aftur. Það voru þvílíkir persónu-
leikar í þessu liði sem fór á tvö stór-
mót og það er eitthvað sem við vilj-
um reyna að leika eftir,“ sagði
Jóhannes Karl í samtali við Morgun-
blaðið.
Markmiðið að
koma liðinu
á stórmót
Morgunblaðið/Eggert
Aðstoðarþjálfari Skagamaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson mun aðstoða
Arnar Þór Viðarsson hjá íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu.
- Jóhannes Karl Guðjónsson er nýr
aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins
ÍR vann sinn þriðja leik í röð í úr-
valsdeild karla í körfuknattleik,
Subway-deildinni, þegar liðið heim-
sótti topplið Keflavíkur í Blue-
höllina í Keflavík í 14. umferð
deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 94:77-sigri ÍR
en Igor Maric var stigahæstur
Breiðhyltinga með 26 stig og fimm
fráköst.
Keflavík byrjaði leikinn betur og
leiddi með sex stigum eftir fyrsta
leikhluta, 27:21. Jafnræði var með
liðunum í öðrum leikhluta og var
staðan 49:42, Keflavík í vil, í hálf-
leik.
ÍR-ingar náðu yfirhöndinni í
þriðja leikhluta þegar þeir skoruðu
24 stig gegn 13 stigum Keflavíkur
og ÍR leiddi með fjórum stigum að
honum loknum, 66:62.
Breiðhyltingar leiddu með þrem-
ur stigum þegar sex mínútur voru
til leiksloka, 74:71, en þá kom
skelfilegur kafli hjá Keflvíkingum
og ÍR fagnaði öruggum sigri.
Sigvaldi Eggertsson skoraði 21
stig fyrir ÍR, Jordan Semple 19 stig,
ásamt því að taka sjö fráköst. Jaka
Brodnik var stigahæstur Keflvík-
inga með 20 stig og Dominykas
Milka skoraði 16 stig og tók átta
fráköst.
ÍR er með 12 stig í áttunda sæti
deildarinnar eftir fjórtán spilaða
leiki en Keflavík er sem fyrr í efsta
sætinu með 20 stig en þetta var
annar tapleikur liðsins í röð í deild-
inni.
Þriðji sigur ÍR-inga í röð
26 Igor Maric var stigahæstur gegn
toppliðinu í Keflavík með 26 stig.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
_ Daníel Leó Grétarsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, gekk í gær til
liðs við pólska úrvalsdeildarliðið Slask
Wroclaw sem keypti hann af enska B-
deildarliðinu Blackpool. Daníel, sem er
26 ára Grindvíkingur, kom til Black-
pool frá Aalesund í Noregi í október
2020. Hann hefur leikið fimm A-
landsleiki fyrir Íslands hönd, þar af
fjóra síðustu leiki ársins 2021. Daníel
samdi við Slask til ársins 2025 en liðið
er í tíunda sæti af átján liðum í pólsku
úrvalsdeildinni.
_ Enski knattspyrnumaðurinn James
Dale sem hefur leikið með Víkingi í
Ólafsvík og Njarðvík undanfarin ár er
genginn til liðs við Þrótt í Vogum, sem
leikur í fyrsta skipti í 1. deild í ár. Dale
er 28 ára miðjumaður og lék áður með
skosku liðunum Brechin og Forfar en
hann var fyrirliði Ólafsvíkinga í 1.
deildinni á síðasta tímabili.
_ Amad Diallo er genginn til liðs við
skoska knattspyrnufélagið Rangers að
láni frá Manchester United. Sóknar-
maðurinn, sem er 19 ára gamall, skrif-
aði undir lánssamning sem gildir út
tímabilið en hann gekk til liðs við Unit-
ed frá Atalanta í október 2020. Diallo
hefur aðeins komið við sögu í einum
leik á leiktíðinni með United, gegn Yo-
ung Boys í Meistaradeildinni.
_ Íran varð í gær fyrsta Asíuþjóðin til
að tryggja sér sæti á heimsmeistara-
móti karla í knattspyrnu í Katar sem
fram fer í nóvember og desember á
þessu ári. Íran lagði Írak að velli, 1:0, í
Teheran í gær með marki frá Mehdi
Taremi. Íran er með 19 stig og er
öruggt með að enda í öðru tveggja
efstu sæta A-riðils úrslitariðla Asíu þó
þremur umferðum sé ólokið.
Eitt
ogannað