Morgunblaðið - 28.01.2022, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022
Listalífið er smám saman að taka við sér aftur eftir strangar samkomutakmarkanir
AFP
Farin Sýningargestir í Litháen virða fyrir sér innsetninguna „Ex It“ eftir Yoko Ono. Sýnt er í útibúi Litháensbanka
í bænum Kaunas. Bærinn er, ásamt Esch-sur-Alzette í Lúxemborg, Menningarborg Evrópu þetta árið.
Völundarhús Riddaraklædd manneskja í Minnesota þræðir sig gegnum völ-
undarhús gert úr ís. Um er að ræða stærsta ísvölundarhús Bandaríkjanna
sem Franz Hall hjá The Zephyr Theatre hannaði. Það er samsett úr 2.900
ískubbum og inniheldur 3.000 marglit LED-ljós. Sköpunin gleður augað.
Blá Málverkið „Blái drengurinn“ eftir Thomas Gainsborough er nú til sýnis í Þjóðarlistasafninu í London í fyrsta
sinn í hundrað ár. Hópur barna naut þess að skoða verkið og höfðu öll börnin klætt sig í bláar flíkur í tilefni dagsins.
» Málverkið „Blái drengurinn“ er til sýnis í Bret-
landi í fyrsta sinn í hundrað ár, Yoko Ono sýnir
innsetningu í Kaunas sem er önnur tveggja Menn-
ingarborga Evrópu þetta árið og risavölundarhús
úr ís er meðal þess sem sjá má í myndasafni AFP
yfir menningarviðburði vikunnar erlendis.
Froskur Sýningin Charles Ray: Figure Ground hefur verið opnuð í Met í
New York. Meðal listaverka er „Strákur með frosk“, en svo skemmtilega
vill til að froskurinn virðist einmitt hvíla á höfði eina gestsins á svæðinu.