Morgunblaðið - 28.01.2022, Page 13

Morgunblaðið - 28.01.2022, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2022 malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í MALBIKUN Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband. Þjóðarsjóður Norðmanna, olíu- sjóðurinn, hefur aldrei verið jafn fjárhagslega sterkur og nú. Hann óx um nær 180 milljarða dollara í fyrra samkvæmt nýbirtum reikningum, jafnvirði 2.300 milljarða króna. Þessi góða ávöxtun stafar af fjár- festingum í bandarískum hlutabréf- um, að því er talsmaður sjóðsins sagði í gær. Hagnaðurinn samsvarar 14,5 prósenta ávöxtun. Besta ávöxtunin hefur komið af fjárfestingum olíusjóðsins í fyrir- tækjunum Microsoft, Alphabet (móðurfyrirtæki Google) og Apple. Øystein Olsen seðlabankastjóri Nor- egs segir að þjóðin geti sannarlega verið ánægð með þennan árangur. Þetta er fjórða besta hlutfallslega ársávöxtun í sögu olíusjóðsins sem stofnaður var í kjölfar þess að Norð- menn hófu olíuvinnslu. Hann er stærsti ríkisfjárfestingasjóður í heiminum. Talsmenn Seðlabankans, sem hef- ur umsjón með vörslu sjóðsins, segja að ekki sé hægt að ganga að jafn góðum árangri í framtíðinni. „Við verðum að vera undir það bú- in að fjárfestingarnar skili lægri ávöxtun,“ sagði Trond Grande, fjár- festingarstjóri hjá norska seðla- bankanum. Bent er á að hlutabréfa- markaðir víðast hvar í heiminum hafi horfst í augu við lækkanir frá áramótum vegna aukinnar verð- bólgu og ótta um hækkandi vexti. Þá hefur óvissan sem Úkraínudeilan veldur haft slæm áhrif á markaðina. Samtals á norski olíusjóðurinn hluti í yfir níu þúsund fyrirtækjum víðs vegar um heiminn. Þá hefur hann einnig fjárfest í ríkisskulda- bréfum. Reuters Noregur Norðmenn stunda um- fangsmikla olíuvinnslu. Græddi 180 millj- arða dollara 2021 - Norski olíusjóðurinn aldrei sterkari Stephen Breyer, dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna, hefur ákveðið að láta af störfum. Hann er 83 ára gamall og þekkt- ur fyrir frjáls- lyndar skoðanir í réttarfarsmál- um. Við brotthvarf hans úr rétt- inum fær Biden Bandaríkjaforseti tækifæri til að útnefna nýjan frjáls- lyndan dómara og ætti sá að ná staðfestingu öldungadeildarinnar miðað við að demókratar eru nú í meirihluta þar. Nokkuð var þrýst á afsögn Breyers til að ekki færi eins og þegar Ruth Ginsberg neitaði að hætta og lést í dómarasæti 87 ára gömul, en þá gátu repúblikanar skipað íhaldssaman dómara í henn- ar stað. Biden lofaði því í kosninga- baráttunni 2020 að skipa svarta konu í dómaraembætti við Hæsta- rétt. BANDARÍKIN Biden fær að út- nefna nýjan dómara Stephen Breyer Tölvupóstar sem bresk þingnefnd hefur undir höndum benda til þess að Boris Johnson for- sætisráðherra hafi fyrirskipað að gæludýr Breta í Afgang- istan, hundar og kettir, yrðu flutt heim með for- gangi áður en talíbanar tækju völd- in í landinu í ágúst í fyrra. Johnson hefur fram að þessu þvertekið fyrir að hann hafi látið dýr taka pláss í flugvélum og látið skilja eftir fjölda fólks sem starfaði fyrir Breta í landinu. Í tölvupóstunum er hins vegar vísað til þess að dýrin skuli flutt úr landi samkvæmt fyrir- mælum forsætisráðherra. Málið er honum því erfitt. Illa þykir hafa verið staðið að brottflutningi Breta frá Afganistan og er þingnefnd að rannsaka það. BRETLANDI Tók Johnson gælu- dýr fram yfir fólk? Boris Johnson Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Bandaríkjastjórn hafnaði formlega kröfum Rússa um að útiloka Úkra- ínu frá NATO í gær. Antony Blink- en, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, sagðist á blaðamannafundi hafa boðið Rússum upp á diplómat- íska leið út úr krísunni, sem Rússar ættu að taka. Rússar höfðu sett fram lista yfir áhyggjuefni vegna aukinna umsvifa NATO. Meðal krafna sem Rússar settu fram var að Úkraína og fleiri ríki yrðu útilokuð frá inngöngu í NATO. Rússa að bregðast við Aðildarríki NATO eru með orr- ustuþotur og herskip reiðbúin til þess að liðsinna úkraínskum her- mönnum komi til innrásar Rússa. Blinken sagðist hafa gert Rússum grein fyrir þeim grundvallaratriðum sem yrðu virt, þar á meðal fullveldi Úkraínu og rétti hvers ríkis til að velja hvort það sækti um aðild að bandalagi á borð við NATO. Þá sagði Blinken að brugðist yrði við yfirgangi Rússa af krafti og varn- ir Úkraínu styrktar í samvinnu við aðra. Hann sagði það síðan Rússa að ákveða hvernig þeir brygðust við en um 100 þúsund rússneskir hermenn eru nú við landamæri Úkraínu. Yfirvöld í Rússlandi sögðu að nú yrði rýnt í svör Bandaríkjanna, en þau voru afhent Rússum í samstarfi við NATO og eru bundin trúnaði. Framtíð Nord Stream í hættu Bandaríkjamenn hótuðu einnig í gær að stöðva opnun Nord Stream 2- jarðgasleiðslunnar ef Rússar myndu ráðast inn í Úkraínu. Leiðslan er 1.225 kílómetra löng og liggur frá Rússlandi til Þýskalands. Gasleiðsl- an mun tvöfalda flutningsgetu jarð- gass en vinna við hana hefur tekið fimm ár og kostað 11 milljarða bandaríkjadala, eða um eina og hálfa billjón íslenskra króna. Leiðslan hef- ur þó ekki enn verið opnuð þar sem hún á enn eftir að fá vottun eftirlits- stofnunar í Þýskalandi. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur boðað Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, til sín á fund í Hvíta húsinu 7. febrúar til að ræða yfir- gang Rússa gagnvart Úkraínu. „Leiðtogarnir munu ræða sameigin- legar skuldbindingar sínar og við- leitni til að reyna að koma í veg fyrir frekari ágang Rússa við Úkraínu,“ sagði Jen Psaki, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, í gær. Höfnuðu kröfu Rússlands - Útiloka Úkraínu ekki frá NATO - Virða fullveldi Úkraínu - Munu bregðast við af krafti - Hóta að stöðva opnun Nord Stream 2-jarðgasleiðslunnar AFP Deilur Antony Blinken, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna. Mikinn feginleik mátti sjá á andlit- um fólks í London í gær þegar margvíslegum takmörkunum vegna kórónuveirunnar var aflétt. Meðal annars þurfti fólk á ferð á al- mannafæri, gangandi, hjólandi og með lestum og strætisvögnum, ekki lengur að bera andslitsgrímur. Sumar verslanir biðja þó enn um þær séu settar upp. Ekki þarf leng- ur að sýna sérstök skilríki til að taka þátt í opinberum viðburðum eða fara í leikhús og á sýningar. Í lok þessa mánaðar geta aldraðir á dvalarheimilum fengið gesti eins og þeir kjósa og stefnt er að því að inn- an skamms verði einangrunartími fólks með veiruna styttur. Mörgum Bretum finnst því farið að vora í þjóðlífinu þótt enn sé janúar ekki allur. Bretar fegnir því að ýmsum takmörkunum vegna covid er aflétt Grímurnar teknar niður í London AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.