Morgunblaðið - 26.01.2022, Side 1

Morgunblaðið - 26.01.2022, Side 1
Skráningaráform í haugasjó Tvö íslensk fyrirtæki, sem bæði starfa á heil- brigðissviði, stefna nú á skráningu á markað. Miklar sviptingar á hlutabréfamörkuðum gera það að verkum að mikil óvissa er uppi um hverjar lyktir mála verða. Heimildir Viðskipta- Moggans herma þó að stjórnendur og stærstu hluthafar beggja fyrirtækja séu hvergi bangn- ir. Sé horft til bandaríska hlutabréfamarkaðar- ins kemur í ljós að á síðasta fjórðungi nýliðins árs varð mikið hrun á hlutabréfaverði margra fyrirtækja á sviði heilbrigðis- og líftækni. Þannig má t.d. nefna að NASDAQ Biotechno- logy-vísitalan hefur lækkað um fjórðung frá því í september og má segja að með þeim sviptingum hafi allar þær hækkanir sem urðu á árinu þurrkað út ávinning fjárfesta fyrir ár- ið. Í byrjun desember síðastliðins greindi Morgunblaðið frá því að Kerecis yrði skráð á markað innan tíðar og að skráningarvirði þess yrði á bilinu 80-90 milljarðar króna. Hægt hef- ur á skráningarferlinu en heimildir blaðsins herma að í lok síðasta árs hafi vonir staðið til að skráningin myndi ganga í gegn um eða upp úr áramótum. Fjárfestakynning sem kynnt hefur verið og ViðskiptaMogginn hefur undir höndum sýnir að tekjur Kerecis á fyrsta fjórðungi þessa rekstrarárs verði 11,5 milljónir dollara, jafn- virði 1,5 milljarða króna. Er það aukning um meira en 100% frá fyrsta fjórðungi síðasta árs þegar tekjurnar námu 5,4 milljónum dollara. Eru þessar tölur m.a. sagðar auka mjög tiltrú forsvarsmanna fyrirtækisins á að fyrirtækið eigi erindi á markað nú. Afar vel hefur gengið að kalla fjárfesta að borðinu í tengslum við fyrirhugaða tvíhliða skráningu Alvotech á markað. Hafa íslenskir fjárfestar auk mjög stórra erlendra fjárfesta lagt fyrirtækinu til tugi milljarða króna að undanförnu. Hins vegar er enn með öllu óljóst hvort og hversu miklar innlausnir verða á þeim fjármunum sem lagðir hafa verið inn í sérhæfða yfirtökufélagið Oaktree Acquisition Corp. sem er lykillinn að skráningu Alvotech á markað. Þeir sem lagt hafa fjármuni inn í það hafa enn heimild til innlausnar auk vaxta en lækkandi hlutabréfaverð á mörkuðum getur haft áhrif á fjárfestingarvilja þeirra. Hluthafa- fundur verður boðaður í þeirra hópi í lok febr- úar. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Fyrirtækin Alvotech og Kerecis stefna á skráningu á hlutabréfamark- að. Miklar sviptingar í hlutabréfum, ekki síst í Bandaríkjunum, gera verkefnið meira krefjandi en ella. Unnur Guðríður Indriðadóttir, mark- aðsstjóri og einn eigenda fyrir- tækisins, telur að höfuðborgarsvæðið rúmi níu Lemon-staði. „Ég hef fulla trú á þeirri tölu, en maður þarf að passa sig að opna ekki of marga, svo maður lendi ekki í samkeppni við sjálfan sig,“ segir Unnur í ítarlegu samtali við ViðskiptaMoggann. Fjórir Lemon-staðir eru nú á höfuðborgarsvæðinu og er sá nýjasti í Olís í Norðlingaholti. Í skoðun er að opna Lemon-staði á fleiri Olís-stöðvum og mögulega einn- ig inni í Hagkaupsverslunum. „Það er verið að skoða samstarf með Hag- kaup, m.a. með opnun á nýjum Lemon-stað í Hagkaup Garðabæ síð- ar á árinu.“ Unnur, sem eignaðist stóran hlut í félaginu árið 2015 og hóf sjálf störf hjá því 2018, segir að tímabilið 2017- 2018 hafi staða félagsins ekki verið góð og breytingar verið nauðsynlegar til að koma því á réttan kjöl. „Ég ákvað því að henda mér í djúpu laug- ina og takast á við verkefnið. Við náð- um svo að snúa rekstrinum við á ótrú- legan hátt. Tap ársins 2018 var þrjátíu milljónir króna en strax árið eftir vorum við búin að snúa því í tíu milljóna króna hagnað.“ Farið var í „hreingerningu“ til að ná fyrrnefndum árangri og rýnt í alla þætti rekstursins. Hverjum steini var snúið við. „Það var mjög hollt fyrir okkur að gera það. Við skoðuðum kostnað við allt frá tónlist á stöðunum upp í bílamálin og allt þar á milli. Lykilatriðið var þó að þetta mátti ekki bitna á gæðunum og þjónustunni.“ Sér fyrir sér níu Lemon-staði í borginni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Unnur Guðríður segir að viðsnún- ingur hafi orðið í rekstri Lemon. Lemon hyggst sækja fram eftir að Hagar keyptu stór- an hlut í skyndibitakeðjunni á síðasta ári. 6 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Global Fintech as a Service rapyd.net/is SPARNEYTNARI OG LANGDRÆGARIÁLAGSPRÓFIÐMIKLA Á Ritz-Carlton gripu menn til sinna ráða þegar bitterinn kláraðist. 8 Faraldurinn leiddi í ljós að aðfanga- keðjur sem eru of straumlínulagaðar eru viðkvæmar fyrir áföllum. 10 VIÐSKIPTA 11 Kristín Vala Matthíasdóttir hjá Bluebird Nordic segir að með nýjum breiðþotum skapist grundvöllur fyrir félagið að sækja inn á ný markaðssvæði. EUR/ISK 26.7.'21 25.1.'22 160 155 150 145 140 135 148,45 145,65 Úrvalsvísitalan 3.700 3.500 3.300 3.100 2.900 2.700 26.7.'21 25.1.'22 3.262,57 3.192,29 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2022

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.