Morgunblaðið - 26.01.2022, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2022VIÐTAL
ast á við verkefnið. Við náðum svo að snúa
rekstrinum við á ótrúlegan hátt. Tap ársins
2018 var þrjátíu milljónir króna en strax árið
eftir vorum við búin að snúa því í tíu milljóna
króna hagnað.“
Farið var í „hreingerningu“ til að ná fyrr-
nefndum árangri og rýnt í alla þætti reksturs-
ins. Hverjum steini var snúið við. „Það var mjög
hollt fyrir okkur að gera það. Við skoðuðum
kostnað við allt frá tónlist á stöðunum upp í bíla-
málin og allt þar á milli. Lykilatriðið var þó að
þetta mátti ekki bitna á gæðunum og þjónust-
unni, sem er aðalmálið.“
Unnur ítrekar mikilvægi þess að hafa gott
starfsfólk. „Við höfum verið mjög heppin með
starfsfólk. Það er lítil starfsmannavelta hjá okk-
ur. Tiltekt heppnast ekki nema með góðu fólki,
því þetta getur haft í för með sér aukið álag og
fleiri verkefni fyrir hvern og einn.“
Fjórir Lemon-staðir eru nú á höfuðborgar-
svæðinu og er sá nýjasti í Olís í Norðlingaholti.
Fara hringinn daglega
Þegar blaðamaður hitti Unni á Lemon í Hafn-
arfirði var hún nýkomin úr hringferð milli stað-
anna. „Við reynum að fara á hvern stað daglega.
Við keyrum út til allra Lemon-staðanna vörurn-
ar sem við búum til hér í eldhúsinu í Hafnar-
firði. Við erum líka stór í fyrirtækja- og veislu-
þjónustu og ég og Jóhanna sjáum um að
afhenda þær pantanir og eigum í samskiptum
við fyrirtækin. Þessi persónulegu tengsl eru
mikilvæg. Maður finnur að fyrirtæki panta aft-
ur og aftur þannig að eitthvað erum við að gera
rétt,“ segir Unnur og brosir.
Hún segir að þær Jóhanna reyni að ganga í
öll störf. „Skemmtilegast finnst mér að vera í
afgreiðslunni. Þar er mesta fjörið og það er
gaman að hitta fólk og spjalla við viðskiptavini.
Þannig fær maður beint í æð hvað virkar og
hvað ekki. Kannski má rekja þetta til þess þeg-
ar ég var stelpa og langaði að verða búðarkona
þegar ég yrði stór.“
Unnur segir að mögulega þurfi þær Jóhanna
að dreifa verkefnum á fleiri aðila á næstu miss-
erum enda er stefnt að umtalsverðri stækkun
fyrirtækisins. „Þá breytist vinnan hjá okkur að-
eins. Fleiri staðir þýða meira utanumhald.“
– Hvað er það sem ýtir á ykkur að stækka?
„Það verða til ný tækifæri með stórum nýjum
Unnur Guðríður Indriðadóttir markaðsstjóri og
einn eigenda fyrirtækisins segir að faraldurinn
hafi haft jákvæð áhrif á reksturinn þegar horft
sé á sölutölur. „Salan datt niður á ákveðnum
tímabilum en við höfum náð að laga okkur vel að
sóttvarnareglum. Við fækkuðum sætum, pöss-
um að sótthreinsa allt í bak og fyrir og aðskilja
svæði. Það hefur líka gert okkur auðveldara
fyrir að við erum meiri svona „take away“-
staður. Við erum ekki með vínveitingaleyfi og
lokum klukkan níu á kvöldin,“ segir Unnur í
samtali við blaðamann ViðskiptaMoggans sem
fékk að gæða sér á Mozzato-samloku og Lotta
Love-djús meðan á viðtalinu stóð. Hvort
tveggja sneisafullt af fjörefnum, að sögn Unnar.
Situr ekki eins lengi
Hún segir að fólk sitji ekki eins lengi inni á
staðnum og áður en heimsending hafi vaxið
mikið, bæði til einstaklinga og fyrirtækja. „Við
bjóðum heimsendingu í samstarfi við Aha og
keyrum út á daginn til fyrirtækja ef pantað er
fyrir fleiri en tíu. Fyrirtækin hafa nýtt sér það
mikið í faraldrinum. Oft hafa mötuneyti þurft að
loka og fyrirtækin þurft að leita nýrra leiða til
að gefa fólki að borða,“ segir Unnur.
Spurð hvort Covid-tíminn hafi verið erfiður
jánkar hún því. „Það hefur oft verið snúið að
passa upp á alla hólfaskiptingu og eins höfum
við þurft að fresta árshátíð örugglega fjórum til
fimm sinnum. Það er eins og alltaf þegar við
höfum ákveðið að hafa partí þá blossi veiran upp
aftur,“ segir Unnur og brosir.
Fyrsti Lemon-staðurinn var opnaður á Suð-
urlandsbraut árið 2013 en stofnendur voru Jón
Arnar Guðbrandsson matreiðslumaður og Jón
Gunnar Geirdal almannatengill. Þeir eru nú al-
farið farnir út úr fyrirtækinu að sögn Unnar.
Keypti staðinn árið 2015
„Ég kom að fyrirtækinu árið 2015 sem eig-
andi og byrjaði svo að vinna hér sjálf 2018. Áður
starfaði ég í fjármálageiranum. Ég vann hjá
sparisjóðunum sem síðar urðu Byr, sem rann
svo inn í Íslandsbanka. Þegar það gerðist skipti
ég um vettvang og fór að vinna hjá VR.“
Hjá bönkunum sinnti Unnur einkum mark-
aðsmálum og verkefnastjórnun en endaði á því
að verða aðstoðarmaður bankastjóra Byrs. Hjá
VR tók hún við ritstjórn VR-blaðsins, sá um
kynningarmál og tengsl við félagsmenn og trún-
aðarmenn. „Það var mjög skemmtilegur tími,“
segir Unnur.
Spurð hvað varð þess valdandi að hún ákvað
að fjárfesta í veitingastað árið 2015 segir Unnur
að vinkona hennar, Jóhanna Soffía Birgisdóttir,
núverandi framkvæmdastjóri Lemon, hafi unn-
ið hjá Lemon frá upphafi og þannig hafi hún
kynnst félaginu. „Henni bauðst að kaupa hlut í
fyrirtækinu og sömuleiðis bauðst mér og eigin-
manni mínum Sveinberg Gíslasyni að kaupa á
sama tíma. Við hugsuðum málið vel og vandlega
og ákváðum svo að slá til. „Af hverju ekki?“
hugsuðum við.“
Unnur segir að tímabilið 2017-2018 hafi staða
félagsins ekki verið góð og breytingar verið
nauðsynlegar til að koma því á réttan kjöl. „Ég
ákvað því að henda mér í djúpu laugina og tak-
hluthafa. Auk okkar fjögurra eigendanna, þ.e.
okkar hjónanna og Jóhönnu og Snorra Arnars
Viðarssonar, eiga Hagar 49% hlut í félaginu
sem þeir keyptu sumarið 2021. Það er stórkost-
legt að fá svona traust fyrirtæki inn í rekst-
urinn. Það er líka ákveðin vísbending um að við
séum á réttri leið. Þetta er nýr kafli í okkar
sögu. Við munum klárlega opna fleiri staði í
samstarfi við Haga eins og sagt var frá þegar
kaupin voru undirrituð á sínum tíma. Næsti
Lemon-staður verður í Olís við Gullinbrú. Þar
er stórt hverfi og enginn Lemon-staður. Við
opnum í mars nk.,“ segir Unnur en Olís er í eigu
Haga.
Í skoðun er að opna Lemon-staði á fleiri Olís-
stöðvum og mögulega einnig inni í Hagkaups-
verslunum. „Það er verið að skoða samstarf með
Hagkaup, m.a. með opnun á nýjum Lemon-stað
í Hagkaup í Garðabæ síðar á árinu. Margar
hugmyndir eru svo í vinnslu með Hagkaup sem
skýrast betur á næstu misserum. Svo hefur mig
lengi langað að fara hringinn í kringum landið
með Lemon. Auk þeirra fjögurra staða sem við
rekum hér á höfuðborgarsvæðinu eru reknir
Lemon-staðir á Akureyri, Húsavík og á Sauðár-
króki samkvæmt sérleyfi.“
Unnur segir að Norðlendingar hafi tekið
Lemon vel, en fyrst var opnað á Akureyri, þá á
Húsavík og loks Sauðárkróki.
Vill ekki lenda í samkeppni við sjálfa sig
En áður en Lemon herjar frekar á lands-
byggðina verður haldið áfram að byggja upp á
höfuðborgarsvæðinu. „Við erum ekki búin þar.
Það er næst á dagskrá.“
Spurð hvað hún telji að höfuðborgarsvæðið
rúmi marga Lemon-staði segist Unnur sjá fyrir
sér níu staði. „Ég hef fulla trú á þeirri tölu, en
maður þarf að passa sig að opna ekki of marga,
svo maður lendi ekki í samkeppni við sjálfan
sig.“
Unnur segir mikinn meðbyr með Lemon
þessa dagana, fólk sé mjög ánægt með matinn
og þjónustuna og það muni hjálpa félaginu að ná
hæstu hæðum eins og hún orðar það.
Um vöruúrvalið segir Unnur að Lemon sé í
grunninn samloku- og djússtaður en auðvelt sé
Af hverju
ekki að kaupa
Lemon?
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Skyndibitastöðum hefur mörgum gengið vel í faraldrinum, þótt veiran
hafi einnig valdið ýmsum áskorunum. Samloku- og djússtaðurinn Lemon
er þar ekki undanskilinn en veltan jókst um rúmlega eitt hundrað milljónir
á síðasta ári. Einn eigenda Lemon segir tækifærin liggja víða.
”
Það er verið sé að skoða
samstarf með Hagkaup,
m.a. með opnun á nýjum
Lemon-stað í Hagkaup í
Garðabæ síðar á árinu.
Allar upphæðir eru í m.kr.
Viðsnúningur
í rekstri Lemon
Ár Tekjur Afkoma
2017 386 -0,285 tap
2018 351 -26 tap
2019 349 9 hagnaður
2020 367 43 hagnaður
2021* 475 42 hagnaður
Hlutfall veisluþjónustu er 12%
*Áætlun
fyrir 2021