Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Page 17
„þ.e. innlent framkvæmdavald varð ábyrgt gagnvart Alþingi. Sú bjartsýni og sá framfarahugur, sem fylgdi heimastjórninni og uppbyggingu atvinnulífsins – og birtist ekki síst í ljóðum Hannesar Hafstein – átti einkar vel við skapgerð Ólafs Thors.“ Trúverðugum ber saman um manninn Matthías Johannessen, skáld og ritstjóri Morg- unblaðsins, skrifaði ævisögu Ólafs Thors, mikið verk og fróðlegt í tveimur bindum og til þeirra vitnar Jakob um „að Ólafur hafi erft bestu eðliskosti beggja foreldra – bjartsýni og hugsjónahita föður síns og varfærni móður sinnar, Margrétar Þorbjargar. Jakob nefnir að það hafi jafnan verið talið eitt af mestu afrekum Ólafs Thors hversu vel honum fórst að halda hinum stóra flokki sínum saman. Hann vitn- ar til palladóma „Lúpusar“ (Helga Sæmundssonar): „Teygjan í Sjálfstæðisflokknum er mikil, en þræð- irnir liggja allir í hægri hönd Ólafs Thors, og hann heldur fast og togar drjúgt, þegar honum þykir þess þurfa. Meginskýringin á samheldni Sjálfstæð- ismanna er þó vafalaust vinsældir Ólafs.“ Og Jakob hefur eftir Jóhannesi Nordal, sem var annar af tveimur aðal efnahagsráðunautum viðreisn- arstjórnarinnar, að Ólafur „hafi vissulega getað verið harður í horn að taka, en hann hafi verið „óvenju- næmur fyrir því, hvernig mönnum leið í návist hans. Ef hann særði einhvern óvart með athugasemdum sínum, var hann fljótur að bæta úr því með einni eða tveimur setningum. Jóhannes sagði Ólaf hafa verið vinnuþjark, „sérlega töluglöggur og með afbragðs gott minni.“ Og Jóhann- es bætti við: „Hann tók allt, sem hann fjallaði um, föstum tökum.“ Og hann sagði enn: „ég tel hann mesta stjórnmálamann, sem ég hef átt samstarf við, og þann stjórnmálamanninn, sem mér hefur þótt vænst um sem manneskju.“ Lítil saga verður stór í minningunni Mamma og amma bréfritara leigðu í nokkur ár ris- íbúð í fallegu og elskulegu húsi, Hólavöllum, sem var skrásett sem Suðurgata 20. Það hús átti Ingibjörg Guðmundsdóttir, ekkja Péturs Magnússonar, banka- stjóra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Hún var falleg kona og bráðskemmtileg. Var upp um nokkra brekku að fara á milli húsanna númer 18 og 22 við Suðurgötu. Aðgengi að Hólavöllum var ekki síðra frá Garðastræti á milli húsa númer 45 og 43, en hús Ólafs Thors var númer 41. Bréfritari sá Ólaf Thors iðulega koma til og frá heimili sínu, stundum akandi með myndarlegum sveigjum undir stýri á snotri Buick-bifreið sinni og stundum var rölt niður á Austurvöll til að sjá blómsveig lagðan við stall Jóns forseta og hlýða á ræðu Ólafs Thors. Og óvænt fékkst svo ógleymanlegt tækifæri til að heilsa og spjalla við foringjann og goðsögnina stund- arkorn. Til að gera stutta sögu langa Þannig var að Ásgeir Pétursson sýslumaður kom til Ingibjargar móður sinnar að Hólavöllum. Ásgeir bað strákinn, sem þar var, að hlaupa með bréf út til Ólafs Thors, sem hann gerði glaður, nema hvað. Ólafur kom röltandi niður stiga sinn, hnarreistur og brattur, með vindil í hendi í sínu myndarlega húsi og bauð strák inn og tók við bréfinu. Spurði því næst um nafn og hverra manna hann væri og hefur sjálfsagt ætlað að þar færi buri Péturs og Ingibjargar. Honum var óðamála svarað að það væri Ásta amma, sem leigði á Hólavöllum og við með og að hún hefði verið í Miðbæjarskólanum um leið og Ólafur sjálfur, enda jafngömul, og að Ólafur föðurafi og Lúðvík Norðdal læknir móðurafi hefðu báðir verið á fyrsta landsfundi Sjálfstæðisflokksins 1929 „og ég bar út Morgunblaðið í Barmahlíðinni“. Tók Ólafur þessari rullu glaðlega og spjallaði hlý- lega um efni ræðustúfsins. Þrátt fyrir nokkuð langa endursögn og að alls ekki sé víst að þessi „leiðtogafundur“ hafi staðið nema í fá- einar mínútur, þá hefur, allar götur síðan, þótt miklu betra að hann fór óvænt fram heldur en ekki. Ekki síst eins og mál áttu eftir að þróast síðar á lífsleiðinni fyrir sendilinn. Hitt er sjálfsagt óvarlegt að gefa sér að hinn þátt- takandinn á þessum „heimssögulega fundi“ hafi sett hann á minnið og er þá skammtímaminnið sennilega einnig innifalið. En það breytir engu. Í þessu tilviki þarf ekki tvo til lengur. Margir og miklir fundir hafa verið sóttir um langt skeið og stundum um langan veg, og þó vildi maður einna síst hafa lent í að missa af þessum, sem var þó bara yfir í næsta hús. Morgunblaðið/Eggert 23.1. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.