Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.1. 2022 LESBÓK LIÐSAUKI Max Cavalera er að leggja upp í tónleika- ferðalag um Bandaríkin í byrjun næsta mánaðar með sveit sinni Soulfly sem væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að ekki er búið að ráða gítarleik- ara að hirðinni eftir að Marc Rizzo hætti í fússi síðasta sumar og skyrpti galli yfir sinn gamla félaga. Í samtali við streymisþáttinn Art Of Rock taldi Cavalera líklegast að hann myndi bara bjalla í nokkra gamla vini og fá þá til skiptis til liðs við sig en Dino Cazares úr Fear Factory hljóp í skarðið fyrir Rizzo á nokkrum tónleikum sl. haust. „Það er geggjað að geta hringt í gaura eins og Dino og þeir eru bara klárir,“ sagði Cavalera. Ekki þarf að stressa sig á æfingum enda þekkja allir alvörugít- arleikarar Soulfly-katalóginn eins og lófann á sér. Bjallar bara í gamla vini Max Cavalera er eldri en tvæ- vetur í málmi. AFP POPP Floor Jansen, hin hollenska söngkona sinfóníska málmbandsins Nightwish frá Finnlandi, svipti á dög- unum hulunni af sólóverkefni sem hún vinnur að. „Það eru mörg lög tilbúin,“ sagði hún í streymi á YouTube, „og það fyrsta kemur út 25. mars. Þannig að niðurtalningin er hafin. Þetta er popplag, hvorki málmur né rokk, en samt ofboðslega mikið ég.“ Fram kom að Jan- sen fer í ýmsar áttir í þessu verkefni sínu og harðara efni er þar jafnframt að finna. Henni finnst þó ekkert að því að skilgreina það allt sem „popp“ enda sé það orð ekkert nema stytting á „popular music“, ellegar vinsældatónlist. Floor Jansen hyggst róa á ný mið í músík sinni. AFP Louisa Jacobson er dóttir Meryl Streep. Til fortíðar með Fellowes PERÍÓÐA Julian Fellowes, höf- undur Downton Abbey, er enn á fortíðarbuxunum í nýjum sjón- varpsþáttum, The Gilded Age, sem frumsýndir verða á efnisveitunni HBO eftir helgina. Nú er sögusviðið New York undir lok 19. aldarinnar og hremmingar yfirstéttarinnar í síbreytilegum heimi. Marian Brook (Louisa Jacobson) flytur til New York frá Pennsylvaníu til að búa hjá frænkum sínum (Cynthia Nixon og Christine Baranski). Þær eru af rótgróinni aðalsætt á svæðinu og eiga í hatrömmum deilum við ný- ríka nágranna sína (Morgan Spec- tor og Carrie Coon). Aðdáendur Downton Abbey ættu að fá þarna sitthvað fyrir sinn snúð. A nna situr ein við gluggann í huggulega húsinu sínu og fylgist með lífinu líða hjá – án hennar. Hún er einmana og drekkur aðeins of mikið rauðvín og fær sér aðeins of mikið af pillum með því enda þótt hún viti að þetta tvennt fer ekki vel saman. Skyndilega fær- ist fjör í leikinn þegar sjóðheitur ekkill, Neil, flytur inn beint á móti, ásamt dóttur sinni. Anna opnar aug- un og sperrir eyrun sem aldrei fyrr enda fátt annað sem veitir henni fró- un en að fylgjast með nágrönnum sínum og athöfnum þeirra. Gamanið kárnar þó fljótt þegar Anna verður vitni að morði á heimili þeirra feðg- ina. Eða er það svo? Enginn trúir henni og lögreglan spjaldar Önnu fyrir að leiða sig í ógöngur. Slík hegðun varði við lög. Hún er afskrifuð sem enn ein ein- mana húsmóðirin með ofskynjanir og almennar grillur. Og alltof mikla móðu á glugga. Sjálf færist Anna sí- fellt nær bjargbrúninni og veltir fyr- ir sér hvort hún sé að ganga af göfl- unum. „Ég er að liðast í sundur eins og spilaborg, sandkastali á háflóði, fúinn stóll eða gamall skrjóður,“ seg- Eins og sandkastali á háflóði The Woman in the House Across the Street from the Girl in the Window nefnast þættir sem koma inn á Netflix næsta föstudag. Svo sem nafnið gef- ur til kynna er um að ræða glæpsamlega satíru. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Hinni einmana Önnu finnst aldrei vera nægilega mikið í rauðvínsglasinu. Netflix Kristen Bell er 41 árs gömul bandarísk leikkona. Hún sló fyrst í gegn í sjónvarpsþáttunum Veronica Mars árið 2004, þar sem hún fór með titilhlutverkið. Eftir það komu hlutverk í vinsælum þáttum á borð við Heroes og Gossip Girl. Stóra tækifærið á hvíta tjaldinu kom í gamanmyndinni Forgett- ing Sarah Marshall árið 2008, þar sem hún lék hina kaldrifjuðu Söruh Marshall sem tróð kinn- roðalaust á tilfinningum fyrrverandi unnusta síns, þangað til hún vildi allt í einu fá hann til baka. Það fýkur bara í mann við að rifja þetta upp. Bell lék einnig í Couples Retreat (2009), When in Rome (2010), You Again (2010), The Boss (2016), Bad Moms (2016), og A Bad Moms Christmas (2017). Þá léði hún Önnu prinsessu rödd sína í Disneyklassíkinni Frozen. Undan- farið hefur hún hlotið lof fyrir leik sinn í þátt- unum The Good Place. Bell er gift leikaranum Dax Shepard og á með honum tvær dætur. Tróð á tilfinningum unnusta síns Anna prinsessa. Popp en samt ofboðslega mikið ég Það geta allir fundið eitthvað girnilegt við sitt hæfi Freistaðu bragðlaukanna ... stærsti uppskriftarvefur landsins!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.