Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Síða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.01.2022, Síða 29
ir hún mæðulega í stiklunni sem finna má á netinu. Öll þekkjum við ráðgátumyndir á borð við The Girl on the Train, The Woman in the Window og hvað þær nú allar heita. Út af þeim er lagt í nýrri seríu í átta hlutum sem kemur inn á efnisveituna Netflix á föstu- daginn kemur. Og nafnið? Haldið ykkur nú fast og dragið andann djúpt: The Woman in the House Across the Street from the Girl in the Window. Það er Konan í húsinu beint á móti stúlkunni í glugganum. Töggur í þessum höfundum „Það er töggur í þessum höfundum,“ hugsaði Kristen Bell, sem fer með hlutverk Önnu í þáttunum, þegar hún las handritið. „Þetta var ólíkt öllu sem ég hafði áður heyrt og ég skellihló,“ segir Bell í viðtali við miðilinn Entertain- ment Weekly um kynninguna sem hún fékk á verkefninu. Það atriði hverfist um dóttur persónu hennar og á ugglaust eftir að fá ýmsa til að missa hökuna í gólfið. „Þetta var svo langt út fyrir rammann og absúrd að ég vissi um leið að ég yrði að vera með,“ bætir Bell við. Svo mikla trú hefur Bell á verk- efninu að hún framleiðir það líka, ásamt Will Ferrell og fleirum. Leik- stjóri er Michael Lehmann. Enginn hefur reynt að breiða yfir þá staðreynd að The Woman in the House Across the Street from the Girl next Door sé satíra, drekkhlaðin biksvörtum húmor, en aðstandendur segjast þó alls ekki vera að tala nið- ur til mynda af þessu tagi, heldur þvert á móti votta þeim virðingu sína. „Mér finnst við ekki vera að gera grín að þessum bókum eða mynd- unum sem gerðar hafa verið eftir þeim. Við erum að hlæja með þessari grein en ekki hlæja að henni,“ segir einn höfunda þáttanna, Rachel Ram- ras, við Entertainment Weekly. Þetta hverfðist raunar allt um rétta jafnvægið enda teymið sem að þáttunum stendur allt miklir aðdá- endur Woman in the-sagnanna. „Við fiktuðum stanslaust við þetta og telj- um okkur hafa komið niður á tón sem er ekki sérlega algengur,“ út- skýrir annar höfundanna, Larry Dorf. Hló innra með sér Bell þurfti að vera sérstaklega með- vituð um þetta, sem höfuðpersóna þáttanna. Hvergi mátti slá falskan tón. „Það var mikil áskorun,“ segir hún, „vegna þess að ég þurfti stöð- ugt að velta fyrir mér: Á ég að grín- ast hérna? Eða halda andlitinu og hætta á að fara á svig við brandar- ann? Rachel hélt mér við efnið og ráðlagði mér í grunninn að gera allt eins alvarlega og ég gæti en gleyma samt ekki að hlæja innra með mér. Niðurstaðan er „besti“ vondi leik- urinn sem ég hef viljað ná fram á ferlinum. Þetta var þrælgaman.“ Að því sögðu þá vonar Bell samt sem áður að fólki líði óþægilega meðan það horfir á þættina enda erum við þrátt fyrir allt að tala um trylli með öllum sínum lykkjum og snúningum. „Ef þú ert ekki á kafi í gátunni og getur ekki beðið eftir því hver framdi glæpinn þá gildir einu hversu fyndnir þættirnir eru,“ bætir Ram- ras við. „Þá stillir þú ábyggilega bara á eitthvað annað eftir fáeina þætti. Höfuðmarkmiðið er að áhorf- endur fylgi okkur allt til enda og fá- ránleikinn eykst bara eftir því sem á líður.“ Þriðji höfundurinn, Hugh David- son, segir þau hafa lagt ofurkapp á að hafa endalokin verulega óvænt. „Það sem við viljum alls ekki heyra er: Einmitt, ég vissi þetta allan tím- ann. Þá yrði allt ónýtt fyrir okkur. Þess vegna eyddum við miklum tíma í að finna leið til að koma fólki hressilega á óvart í lokin. Ekkert skipti okkur meira máli.“ Auk Bell leika Tom Riley, Mary Holland, Shelley Hennig, Samsara Yett, Christina Anthony og fleiri í The Woman in the House Across the Street from the Girl in the Window. Þá er bara að opna vínflöskuna og koma sér makindalega fyrir. En í öllum bænum látið pillurnar vera; þetta fer ekki vel saman. Þið gætuð farið að sjá ofsjónir og upplifa eitt- hvað allt annað en það sem í raun og veru er að gerast í þáttunum. Sem er, eftir á að hyggja, kannski bara ljómandi vel við hæfi. Alltént, þið finnið út úr þessu! Kristen Bell fer með aðalhlutverkið í nýju þáttunum á Netflix. AFP 23.1. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 w w w. i t r. i s S ý num hver t ö ð r u tilli t s s emi ROKK Darryl McDaniels úr Run DMC hefur sett saman ógurlegt of- urband kringum lagið She Gets Me High sem er endurgerð á smell- inum Black Betty sem flestir tengja við Ram Ram og kom út 1977. Með honum eru engir aðrir en Sebastian Bach úr Skid Row, sem syngur, Mick Mars úr Mötley Crüe, sem leikur á gítar, Duff McKagan úr Guns N’ Roses, sem plokkar bassa, og Travis Barker úr Blink 182, sem lemur húðir. Bach segir lagið, sem kemur senn út, rokka spikfeitt. Ógurlegt ofurband sett saman Darryl McDaniels hress að vanda. AFP BÓKSALA 12.-18. JANÚAR Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Akam, ég og Annika Þórunn Rakel Gylfadóttir 2 Lengsta nóttin Ann Cleeves 3 Böðulskossinn Mons Kallentoft 4 Minningar skriðdýrs Silje O. Ulstein 5 Salka – tölvuheimurinn Bjarni Fritzson 6 Þetta gæti breytt öllu Jill Mansell 7 Þú sérð mig ekki Eva Björg Ægisdóttir 8 Lok, lok og læs Yrsa Sigurðardóttir 9 Almanak Háskóla Íslands Þorsteinn Sæmundsson/Gunn- laugur Björnsson/Jón Árni 10 Kalmann Joachim B. Schmidt 1 Lengsta nóttin Ann Cleeves 2 Böðulskossinn Mons Kallentoft 3 Minningar skriðdýrs Silje O. Ulstein 4 Þetta gæti breytt öllu Jill Mansell 5 Kalmann Joachim B. Schmidt 6 Tríó Johanna Hedman 7 Aðeins ein áhætta Simona Ahrnstedt 8 Fjöllin – hjartablóð Sandra Clausen 9 Kassinn Camilla Läckberg /Henrik Fexeus 10 Skaði Sólveig Pálsdóttir Allar bækur Íslenskar kiljur Mér finnst vera smávægileg pressa að upplýsa alþjóð um bókmennta- smekk minn. Mér líður svolítið eins og ég þurfi að segjast aðeins lesa hámenningarlegar heims- bókmenntir en í sannleika sagt þá hef ég eiginlega bara áhuga á að lesa hrylling, furðusögur eða bæk- ur um fólk í einhvers konar tilvist- arkreppu. Samkomutakmarkanir síðustu ára hafa verið ágætar fyrir mig því ég hef lesið mikið síðustu tvö ár. Einn rithöfundur sem ég byrjaði að lesa eftir að faraldurinn hófst er Grady Hendrix. Hann skrifar einhvers konar gamanhrylling með poppkúltúrsívafi og bæk- urnar hans eru frábærar fyrir hrollvekjuaðdá- endur. Mér finnst líka kost- ur að aðal- söguhetjan er oftast kona og hann Grady má eiga það að hann skrifar frábærar kvenpersónur. Mæli með bókinni Horrorstör fyrir öll þau sem hata að fara í IKEA eins og ég. Af nýlegum íslenskum bókum sem hafa náð til mín má nefna bæði Arn- aldur Indriðason deyr eftir Braga Pál Sigurðarson og Til- finningar eru fyrir aumingja eftir Kam- illu Einarsdóttur. Ég hef aldrei lesið bók á borð við þá fyrrnefndu áður en mér fannst hún alger snilld. Hún er virkilega ógeðfelld og ekki fyrir viðkvæma en hún er mjög vel skrifuð. Bókin situr í mér og er ein besta bók sem ég hef lesið. Til- finningar eru fyrir aumingja er síð- an ótrúlega mikil skemmtilesning fyrir svona snemmiðaldra fólk eins og mig. Virki- lega gott að lesa hana í beinu fram- haldi af bók Braga og núllstilla sig að- eins. Ég er í bóka- klúbbnum Sólinni og síðast fékk ég senda bókina Samþykki eftir Vanessu Sprin- gora. Efni bók- arinnar er ekki beint skemmtilegt og er nokkurs konar uppgjör konu við fortíð sína en bókin er áhugaverð um- fjöllun um mörk, misnotkun að- stæðna og fellur vel að núverandi samfélagsumræðu að mínu mati. Í jólagjöf fékk ég nýjustu bók Friðgeirs Einarssonar, Stórfisk. Mér fannst hún frábær. Ég hef rætt um þessa bók við annað fólk sem hef- ur ekki verið jafn hrifið en ég fer ekki ofan af því að þessi bók er virkilega góð lesning fyrir fólk sem er áhugasamt um tilvistarkreppur annarra. Ég hef miklar mætur á Friðgeiri Einarssyni. Honum tekst að gera verslunarferð manns um miðja nótt, þar sem ekkert sér- stakt gerist, að skemmtilesningu. Allir ættu að lesa bækurnar hans Friðgeirs, og ef þú lest þetta, Frið- geir, þá er ég stærsti aðdáandi þinn. TINNA EIRÍKSDÓTTIR ER AÐ LESA Hryllingur og furðusögur Tinna Eiríks- dóttir er fram- haldsskóla- kennari.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.