Morgunblaðið - 28.02.2022, Page 10

Morgunblaðið - 28.02.2022, Page 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Að sinna stjórnmálum er þjónusta og inntakið er samskipti við fólk. Að boða stefnu og lausnir er mik- ilvægt en svo þarf líka að taka erf- iðar spurningar og svara þeim. Því finnst mér mikilvægt að funda; heyra viðhorf fólks; sjónarmið þess og óskir,“ segir Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylk- ingar. Að undanförnu hefur Krist- rún farið víða og fundað með kjós- endum. Fór fyrst um Vestfirði og Norðurland vestra og var nú um helgina austur á landi. Tala um Verbúðina vestra „Vestur á fjörðum töluðu margir líka um sjávarútvegsmál, mikilvægi strandveiða og byggða- kvóta og vísa meðal annars í Ver- búðina. Rökræðan um sjávar- útvegsmálin er áhugaverð,“ segir Kristrún og heldur áfram: „Viðhorfin eru annars ólík á milli byggðarlaga, jafnvel þótt stutt sé á milli staða. Umræðan er líka allt öðruvísi nú en var fyrir kosningarnar í haust. Andrúms- loftið afslappaðra. Þetta hef ég oft fundið þar sem er verið yfir nótt í heimagistingu og morgunkaffið tekið með gestgjöfum. Samtöl við þá skapa persónuleg sambönd. Margir úti á landi tala um að gera þurfi betur í samgöngum, mennt- un, heilbrigðismálum og atvinnu- tækifærum svo aðstæður séu sam- bærilegar því sem gerist í þéttbýlinu. Eðlilega sárnar fólki, sem leggur mikið til samfélagsins, að talað sé um slíkt sem kjör- dæmapot og ölmusu.“ Þúsund milljarðar á nokkrum dögum Kristrún Frostadóttir, sem er þingmaður í Reykjavíkurkjör- dæmi suður, tók sæti á Alþingi nú í haust og er fulltrúi Samfylkingar í fjárlaganefnd. Þegar þingið kom saman var nefndarinnar að ganga frá fjárlögum og hún hafði til þess um þrjár vikur. „Þó meginlínur fjárlagafrum- varpsins hafi legið fyrir er mikil vinna og ábyrgð sem fylgir því að samþykkja 1.000 milljarða króna pakka á nokkrum dögum. Próf- steinn á áherslur stjórnvalda eru fjárlög, sem byggjast svo á fjár- málaáætlun sem er til nokkurra ára í senn. Nú kemur í ljós að milli þessara tveggja grundvallar- plagga er misræmi. Áherslumál í stjórnarsáttmála hafa bersýnilega ekki verið fjármögnuð. Þó á margt sannarlega að efla, bæta og styrkja, segir ríkisstjórnin. Meðal annars er talað um endurbætur á almannatryggingakerfinu, svo stöðvuð verði kjaragliðnum milli örorkulífeyrisþega og launafólks, 10. árið í röð. Þarna vantar inn stórar upphæðir, sem hvergi er nefnt hvaðan koma skuli,“ tiltekur Kristrún og heldur áfram: Hagstjórn er samvinna „Stefnu og félagslegum áherslum verða að fylgja fjár- munir svo fyrirætlanir gangi upp. Ríkisreksturinn er hins vegar á öðru róli; með skattastefnu hefur tekjuhliðin verið veikt sem nemur tugum milljarða króna á ári hverju. Útkoman verður kerfis- bundin vanfjármögnun á mikil- vægum kerfum. Slíkt verður ekki heldur bætt upp með neyslu- sköttum, sem snerta lágtekjuhópa alltaf mest.“ Kristrún bendir á að í mörg- um löndum Norður-Evrópu, ríkj- um sem við Íslendingar eigum oft samleið með, byggist hagstjórn á samvinnu ríkis, sveitarfélaga, samtaka launafólks og fyrirtækja. Slíkt sé góð leið til að skapa jafn- vægi og stundum þurfi inngrip í markaðinn. „Í dag er húsnæðismarkaður á Íslandi í ójafnvægi og ein af af- leiðingum þess er að verð eigna rýkur upp. Afborganir af lánum hækka svo víxlverkanir fara af stað. Við þessar aðstæður þyrfti ríkið að stíga inn,“ segir Kristún. „Fyrir slíku hefur verið lítill hljómgrunnur og aðgerðaleysi gæti orðið dýrkeypt fyrir ríkið þegar kjarasamningar losna á næsta ári. Því þarf félagslegar áherslur í húsnæðismálum. Nú virðist mér að slík viðhorf séu að skapast. Bendi þar á orð viðskipta- ráðherra á dögunum um að sann- gjarnt sé að bankarnir komi til móts við almenning, nú þegar vextir hækka og verðbólga eykst. Úthlutun lóða til óhagnaðardrif- inna íbúðafélaga, eins og Reykja- víkurborg hefur gert, hefur líka verið mikilvæg aðgerð í húsnæðis- málum.“ Fundaferð er ekki formannsframboð Þingflokkur Samfylkingar var í fundaferð meðal annars á Suðurnesjum, fyrir austan fjall og austur á landi meðan Kristrún var á sinni yfireið á Vestfjörðum og Norðurlandi. Í þetta segir Krist- rún að ekki eigi að lesa neitt sér- stakt, svo sem um hugsanlegt framboð til formennsku í flokkn- um. Hún hafi ekki tekið neina ákvörðun um slíkt. Verandi með lítið barn heima hafi hins vegar hentað sér vel að taka snarpa fundalotu úti á landi nú þegar svigrúm í fáeina daga skapaðist. „Inntak stjórnmálanna er að taka ákvaðanir um málefni fjöldans. Til slíks þarf traust sem byggist meðal annars á því að fólk þekkist og eigi í góðum sam- skiptum. Mér finnst því mikilvægt að hitta fólk og svara spurningum. Stundum eru þær meðal annars um uppruna minn og ættir, sem eru meðal annars úr Lýtingsstaða- hreppi í Skagafirði. En fyrst og síðast rætt um stjórnmál. Þar segja sumir Samfylkinguna hafa fjarlægst uppruna sinn. Sé komin ýmist of langt til vinstri eða hægri. Skoðanir á flokknum og stefnu hans eru sterkar og ólíkar sem er gott. Stjórnmálaflokkur þarf að rúma allskonar viðhorf. Raunar trúi ég því að margir – mun fleiri en kjósi Samfykinguna – geti á einhvern hátt tengt sig við hana. Stóra verkefnið nú er því að fá fleiri til liðs við okkur og koma flokknum til meiri áhrifa.“ Félagslegum áherslum fylgi fé, segir Kristrún Frostadóttir þingmaður Morgunblaðið/Sigurður Bogi Pólitík Raunar trúi ég því að margir – mun fleiri en kjósi Samfykinguna – geti á einhvern hátt tengt sig við flokkinn, segir Kristrún Frostadóttir. Mikilvægt er að svara erfiðum spurningum - Kristrún Frostadóttir er fædd 1988 og er hagfræðingur að mennt. Lauk meistaragráðu í alþjóðafræði með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál frá Yale í Bandaríkjunum árið 2016. Á að baki fjölbreyttan feril sem hagfræðingur, m.a. hjá Arion banka, Morgan Stan- ley í New York og Lundúnum, Viðskiptaráði Íslands og síðast hjá Kviku-banka. - Kom inn á svið stjórnmál- anna á síðasta ári og var kjörin alþingismaður Samfylkingar í september á síðasta ári. Er á þingi helsti talsmaður flokks- ins í efnhagsmálum. Hver er hún? Fundur Viðhorfin eru annars ólík á milli byggðarlaga, jafnvel þótt stutt sé á milli staða, segir Kristrún, hér á skrafi á Patreksfirði. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Lagt er til að allir skólar Reykjavík- urborgar, frístundaheimili og félags- miðstöðvar setji sér áfallaáætlun sem tengist verkefninu Betri borg fyrir börn. Fólk í leiðandi hlutverk- um sæki námskeið um börn, áföll og sorg – fræðslu sem öllu starfsfólki skóla- og frístundasviðs standi einn- ig til boða. Þetta er inntak tillögu Diljár Ámundadóttur Zoega, fulltrúa Viðreisnar, sem samþykkt var sam- hljóða í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur nú í vikunni. Í greinargerð með tillögunni segir að nú þegar séu áfallaáætlanir víða við lýði á vettvangi Reykjavíkur- borgar, stefna sem sé mikilvægt að endurskoða. Sífellt fleiri rannsóknir sýni sterk tengsl milli fjölda áfalla í æsku og geðheilsuvanda, heilsu- brests og skertrar getu á fullorðins- árum. Það er því mikilvægt að styðja við börnin, en talið sé að 60% barna upplifi áfall í einhverri mynd; eitt eða fleiri. Það sem þarna sé um að ræða geti verið andlát, alvarleg veikindi, skilnaður foreldra og erfið sam- skipti, kynferðisofbeldi, einelti í skóla. Þá geti börn oft upplifað dauða eða slys hjá gæludýri sem áfall. „Áföll sem börn verða fyrir geta leitt til heilsubrests síðar á ævinni og því er mikilvægt að grípa inn í ferlið sem fyrst. Slíkt getur sparað samfélaginu mikla fjármuni til lengri tíma litið,“ sagði Diljá við Morgun- blaðið. Þjónustan sé efld Viðvarandi andlegt álag, sorg og áföll sem mörg börn glíma við segir Diljá að sé kennurum og starfsfólki skóla og annarra slíkra stofnana vel þekkt vandamál. Hins vegar vanti á stundum verkfæri eða þekkingu til þess að geta mætt aðstæðunum. Nú eigi að bregðast við slíku með nýjum ráðum, reynslu og þekkingu. „Mér er hjartans mál að þessi mikilvæga þjónusta sé efld. Slíkt hefur mér orð- ið ljóst eftir þátttöku í stjórnmálum og nám í sálgæslufræðum við Há- skóla Íslands,“ segir Diljá um málið. Börnum í áfalli sé betur mætt - Reykjavíkurborg samþykkir áætlun Diljá Ámunda- dóttir Zoega Dóra Björt Guðjónsdóttir mun áfram leiða lista Pírata í Reykjavík- urborg fyrir borgarstjórnarkosning- arnar í vor. Dóra varð hlutskörpust í rafrænu prófkjöri flokksins í Reykjavík um helgina en hún leiddi sömuleiðs listann fyrir síðustu kosningar. Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, verður í öðru sæti listans og hafnaði Magnús Norðdal lögfræð- ingur í þriðja sæti prófkjörsins. í síðustu borgarstjórnarkosn- ingum hlutu Píratar tvo fulltrúa í borgarstjórn og hafa starfað í meiri- hluta á yfirstandandi kjörtímabili. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, odd- viti Pírata í Kópavogi, heldur einnig oddvitasæti sínu eftir prófjör. Í öðru sæti prófkjörsins hafnaði Indriði Ingi Stefánsson og í því þriðja Eva Sjöfn Helgadóttir. At- hygli vekur að eiginmaður Evu Sjafnar, Matthías Hjartarson, er næsti maður á eftir henni á lista. Píratar fengu síðast einn mann kjörinn í bæjarstjórn Kópavogs og hafa starfað í minnihluta á yfirstand- andi kjörtímabili. Hafa Píratar efnt til prófkjörs í fjórum sveitarfélögum til viðbótar; Akureyri, Árborg, Hafnarfirði og Reykjanesbæ. Dóra og Sigur- björg leiða áfram - Úrslit í tveimur prófkjörum Pírata Sigurbjörg Erla Egilsdóttir Dóra Björt Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.