Morgunblaðið - 28.02.2022, Page 11

Morgunblaðið - 28.02.2022, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta seinkar áformum okkar um uppbyggingu og er einnig áfall fyrir starfsfólk okkar og samfélagið sem við störfum í en við höfum fjárfest hér fyrir 18 millj- arða króna í tækj- um, aðstöðu og lífmassa á síðustu árum. En við er- um fjárhagslega öflugt fyrirtæki sem er nauðsyn- legt í laxeldi til að geta tekið höggin þegar svona ger- ist og við kom- umst því í gegn- um þetta,“ segir Stein Ove Tveiten, forstjóri Arctic Fish á Vestfjörðum. Fyrirtækið varð fyrir miklu tjóni þegar lax drapst í sjóeldi þess í Dýrafirði. Það var allt stór fiskur, kominn í sláturstærð, og þurfti að flytja hann til Noregs í meltu- vinnslu. Tapaðar tekjur og kostn- aður við aðgerðir vegna dauðans eru áætlaðar 1,6 milljarðar íslenskra króna. Miklar aðgerðir til bjargar Stein Ove segir að árið 2021 hafi verið einstaklega gott framleiðsluár hjá Arctic Fish. Fiskurinn hafi vaxið vel og afföll verið lítil. „Við sáum að eitthvað var að gerast í kvíunum undir lok ársins og í byrjun þessa árs. Það sást á tálknum og hjartað hætti að dæla blóði vegna sýkingar í hjartavöðva. Fiskurinn átti í vand- ræðum og kom upp á yfirborðið,“ segir forstjórinn. Til að bregðast við þessu og reyna að slátra sem mestu af fiski úr kví- unum var slátrun endurskipulögð og sett í forgang að slátra fiski úr um- ræddum kvíum. Einnig var fengið skip frá Noregi til að taka við dauða fiskinum auk þess sem notaðir voru fimm vinnubátar til að takast á við vandamálið. Þá var fengið öflugt norskt sláturskip, Norwegian Gann- et, til að flýta slátrun, til viðbótar brunnbátnum sem notaður er til að flytja laxinn til slátrunar á Bíldudal. Loks var sett upp aukavakt í slátur- húsinu þannig að þar er nú slátrað 20 tíma á sólarhring en þeir fjórir tímar sem eftir eru í sólarhringnum eru notaðir til þrifa. Í raun er slátur- húsið því starfrækt allan sólarhring- inn. „Allt þetta kemur til viðbótar ein- staklega góðu starfi starfsfólks okk- ar við að takast á við vandamálið. Það hefur komið okkur í þá aðstöðu sem við erum í nú, við teljum okkur hafa náð tökum á stöðunni, “ segir Stein Ove. Vandamálin sem komu upp í Dýrafirði tengjast of lítilli sláturgetu á Vestfjörðum og óvissu með lax- eldisleyfi. „Eins og við höfum sagt er þörf fyrir aukna afkastagetu slátr- unar og vonandi verður þörf fyrir enn meiri slátrun í framtíðinni með auknu eldi. Hins vegar er óöryggi með leyfisveitingar og hverju við getum búist við í framtíðinni auk stöðugra ógna við núverandi leyfi okkar sem gerir erfitt að taka ákvarðanir um fjárfrekar fjárfest- ingar í uppbyggingu,“ segir forstjór- inn. Of lítil afkastageta í slátrun Spurður nánar út í þetta segir hann að ef fullnægjandi afkastageta hefði verið fyrir hendi í slátrun hefði verið búið að slátra meira fyrir ára- mót og auðveldara hefði verið að leysa úr vandamálunum í Dýrafirði þegar þau komu upp. Minna hefði verið undir í vetur og auðveldara að bregðast við. Kuldi og óveður áttu þátt í vanda- málunum sem komu upp í kvíunum í Dýrafirði. Stein Ove neitar þegar hann er spurður að því hvort sjórinn í Dýrafirði og öðrum vestfirskum fjörðum sé of kaldur fyrir eldi á laxi. Segir þó að viðhafa þurfi varkárni og fiskurinn þurfi að vera í góðu standi líffræðilega til að draga úr áhættunni sem alltaf er við um- hverfisaðstæður á Íslandi. „Við verðum að laga okkur að aðstæð- unum og safna reynslu til að gera enn betur og draga úr áhættunni af áföllum eins og þessum,“ segir hann. Arctic Fish er að tvöfalda afkasta- getu seiðastöðvar sinnar í Tálkna- firði. Þar eykst svigrúm til að fram- leiða stærri seiði til þess að stytta eldistíma laxins í sjó og draga úr magninu sem er í kvíum yfir hávet- urinn. Halda sínu striki Tvö stærstu laxeldisfyrirtæki landsins eru á Vestfjörðum, Arnar- lax og Arctic Fish. Nú hefur norska fiskeldisfyrirtækið SalMar, móður- félag Arnarlax, tryggt sér yfirráð yfir meirihluta hlutafjár í NTS sem á meirihluta hlutafjár í Arctic Fish. Er búist við að íslensku fyrirtækin taki upp nánari samvinnu og jafnvel sameinist þegar kaupin hafa gengið í gegn. Spurður um áhrif þessarar um- ræðu á dagleg störf stjórnenda og starfsfólks Arctic Fish segir Stein Ove að þau lesi fréttir um þessi við- skipti í Noregi, eins og aðrir. Þau ráði engu um þetta ferli. „Aðal verk- efni okkar er að þróa Arctic Fish áfram sem öflugt fyrirtæki til fram- tíðar,“ segir Stein Ove. Spurður hvort einhverjar breyt- ingar verði á áformum um byggingu laxasláturhúss í Bolungarvík segir hann að ætlunin sé að koma því upp. Hins vegar þurfi leyfi að fást til eldis til þess að sláturhús geti starfað. Stöðugt seinki útgáfu eldisleyfa og óvissa um gildi núverandi leyfa sé viðvarandi. „Það vantar skýrari skilaboð frá stjórnvöldum og ríkis- stjórn um að þau vilji að við fjár- festum meira,“ segir Stein Ove Tveiten. Höfum náð tökum á stöðunni Ljósmynd/Bernharður Guðmundsson Á kvíunum Það tekur á starfsfólk að þurfa að flokka dauðan lax frá til að geta dælt heilbrigðum fiski um borð í sláturskipið Norwegian Gannet. Stein Ove Tveiten - Laxadauðinn í Dýrafirði var mikið áfall í kjölfar einstaklega góðs árangurs í eldinu hjá Arctic Fish - Forstjórinn kvartar undan óvissu með leyfin og kallar eftir skýrari skilaboðum frá stjórnvöldum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.