Morgunblaðið - 28.02.2022, Page 14

Morgunblaðið - 28.02.2022, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Nýleg úttekt Ríkisend- urskoð- unar á fjölda, stærð og stærðar- hagkvæmni stofn- ana ríkisins var kynnt í liðinni viku. Fram kemur í skýrslunni að nokkur árangur hafi náðst í fækkun ríkisstofnana síðast- liðinn aldarfjórðung, þeim hafi fækkað um rúman þriðjung á því tímabili. Stofnanir ríkisins eru nú 156 og hefur „einkum fækkað vegna sameininga, hlutafjárvæðingar og flutn- ings verkefna til sveitarfé- laga,“ segir í skýrslunni. Þar er rakið nefndastarf og skýrsluskrif margra undan- farinna ára um opinberar stofnanir og mikilvægi þess að fækka þeim með sameiningum og ná meðal annars þannig fram hagræði. Þá eru kynntar úrbóta- tillögur Ríkisendurskoðunar, meðal annars um að mikilvægt sé að „stjórnvöld fylgi eftir og taki afstöðu til tillagna sem lagðar hafa verið fram í fjölda skýrslna um aukið samstarf og jafnvel sameiningu ríkisstofn- ana frá miðjum 10. áratugi síð- ustu aldar“. Ríkisendur- skoðun telur að sá fjöldi smárra stofnana sem enn eru til staðar sé „óhagstæður í rekstrarlegu og faglegu tilliti en líkur eru einnig á að ein- hverjar þeirra gætu hæglega rúmast innan stærri skipu- lagsheilda hins opinbera,“ eins og það er orðað. Þá er nefnt að tækifæri kunni að vera í auk- inni samvinnu, svo sem sam- vinnu um „miðlæga stoðþjón- ustu“. Ennfremur þurfi ráðuneyti að hafa góða yfirsýn yfir stofnanir sínar og sinna eftirlitsskyldu, en eftir því sem undirstofnunum fjölgi þrengist möguleikar ráðu- neyta til að sinna þessum skyldum sínum. Almennt eiga þessar ábend- ingar Ríkisendurskoðunar ef- laust rétt á sér þó að dæmi séu um stórar og illa reknar stofn- anir með óhóflegri yfirbygg- ingu og svo örlitlar en vel reknar stofnanir með svo að segja engri yfirbyggingu eða óþarfri sóun. En gallinn við skýrslu á borð við þá sem Rík- isendurskoðun hefur nú lagt fram er að þar er ekki tekið á meginvandanum í rekstri rík- isins, enda ekki að því stefnt með skýrsluskrifunum. Meginvandinn sem ríkið glímir við að þessu leyti, og raunar hið opinbera almennt, því að þetta á ekki síður við um sveitarfélögin, er ekki stærð stofnana heldur fjöldi opinberra starfsmanna. Sá vandi magnast svo við þær aðstæður sem verið hafa á undanförnum árum þegar ríki, og enn frekar sveitarfélög, hafa gengið enn lengra en al- menni markaðurinn í launa- hækkunum og styttingu vinnuviku sem er gríðarlega kostnaðarsöm og sér ekki fyr- ir endann á þeirri vanhugsuðu ráðstöfun. Mikill fjöldi opinberra starfsmanna og ekki síður stöðug fjölgun er verulegt áhyggjuefni og ætti að vera eitt helsta viðfangsefni þeirra sem fara með opinber fjármál. Skipulag stofnana ætti að fá minni athygli þó að það þoli ef- laust einnig skoðun. Þessi mikli fjöldi og sífellda fjölgun stafar af því að hugmyndir að góðum og þörfum verkefnum skjóta sífellt upp kollinum og fáir verða til þess að beita sér gegn þeim á þeirri forsendu að verkefnið sé utan verksviðs hins opinbera eða í það minnsta að þegar skattar eru í hæstu hæðum sé ekki verjandi að ráðast í ný verkefni þó að þau kunni að vera jákvæð. Þá er sérstakt vandamál að stofnanir sem einu sinni er komið á fót virðist engin leið að leggja niður þegar for- sendur eru breyttar. Fjöl- miðlanefnd er dæmi um þetta, stofnun sem varð illu heilli til í aðlögunarferlinu að Evrópu- sambandinu sem vinstri stjórnin lagði út í eftir fall bankanna en lifir enn góðu lífi þó að fyrir löngu hafi orðið ljóst að Ísland er ekki á leið í Evrópusambandið. Önnur stofnun sem komið var á fót þegar óvenjulega margir lentu í óvæntum og sérstökum skuldavanda, Um- boðsmaður skuldara, er enn starfandi þó að efnahags- umhverfi og skuldastaða al- mennings sé allt önnur en var. Ríki og sveitarfélög verða að fara að huga að því hvaða verkefnum þau eiga að sinna og þar með hvaða verkefnum þau verði að hafna. Þessir opinberu aðilar verða að sníða sér stakk eftir vexti, miða um- fang starfseminnar við þol al- mennings, sem þegar greiðir of háa skatta og á skilið að þeir verði lækkaðir. Þetta er stóra málið sem stjórnmálamenn þyrftu að huga að, ekki tækni- legar útfærslur á rekstri þeirra stofnana sem talið er nauðsynlegt að skattgreið- endur haldi úti. Meginatriðið er að umfang hins opin- bera er of mikið} Huga þarf að hlutverki ríkis og sveitarfélaga Í nýlegri grein sinni „Blóðmerar, myndbandið og frumvarp Ingu Sæ- land“ heldur Halldór í Holti uppi vörnum fyrir pyndingar á varnar- lausum hryssum við blóðtöku og segir að myndband Evrópskra dýravelferð- arsamtaka leiði alls ekkert dýraníð í ljós. „Ég bið alþingismenn og ykkur sem hafið hneykslast mest, að horfa á myndbandið aftur og meta upp á nýtt,“ segir hann og bætir við: „Ekkert af þessu er dýraníð og ætti því ekki að hneyksla.“ Með öðrum orð- um telur Halldór að allt sem kom fram í þessu ógeðfellda myndbandi sé fullkomlega eðlilegt. Halldór heldur því jafnframt fram að dýralæknir hafi tekið blóðið á mynd- bandinu. Sjáum þá hvað Dýralæknafélags Íslands hefur um myndbandið að segja á heimasíðu sinni: „Dýralækna- félag Íslands (DÍ) fordæmir þá ómannúðlegu meðferð á hrossum sem kemur fram í myndbandi Evrópskra dýravelferðarsamtaka um blóðmerar hér á landi. Hörku og ónærgætni sem dýrunum er sýnd er aldrei hægt að réttlæta. Skarkali, ringulreið og sú umgjörð sem sjá má í myndbandinu er einungis til að auka á streitu og hræðslu dýranna og alls ekki til þess fallið að auðvelda rekstur eða frekari meðferð.“ Halldóri finnst þungbært að hlusta á „órökstuddar fullyrðingar“ mínar og útleggingu sumra þingmanna á því sem fram kemur á myndbandinu. Ætli þau andþyngsli Halldórs séu ekki fremur léttvæg í samanburði við þann ótta sem skín úr augum blessaðra villimeranna á myndbandinu sem barðar eru miskunn- arlaust til hlýðni, sparkað í þær og potað með harðri stöng þangað til þær verða vit- stola af skelfingu. Það hefur aldrei verið talið mönnum til sæmdar að níðast á hryssum né öðrum dýrum. Öllu sómakæru fólki býður við slíku ofbeldi og gróði af slíku athæfi er stundum nefndur blóðpen- ingar. Halldór fullyrðir að aldrei í tæp 40 ár hafi hryssum sínum orðið meint af blóð- töku á nokkurn hátt. Ef hans viðmið um nærgætni við blóðtöku úr hryssum speglast í aðför- unum á myndbandinu, leyfi ég mér að vísa þeirri full- yrðingu heim í Holt. Margir bændur hafa haft við mig samband og for- dæmt það ofbeldi sem á sér stað í heimildarmyndinni. Þeir vita vel að sú háttsemi sem þar kemur fram er ekkert annað en dýraníð enda fara langflestir bændur vel með dýrin sín. Pyndingar eru aldrei réttlætan- legar, hvort sem menn eða aðrar lifandi verur eru þolendur ofbeldisins. Inga Sæland Pistill Blóðugur málstaður Halldórs í Holti Höfundur er dýravinur, alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is V olodimír Zelenskí, forseti Úkraínu, hefur með stað- festu og baráttuanda sín- um sigrað hjörtu úkra- ínsku þjóðarinnar og vakið samhug bróðurparts heimsbyggðarinnar síðastliðna viku eftir að Rússland réðst inn í Úkraínu. Pólitískur ferill Zelenskís spannar aðeins þann tíma sem hann hefur setið í embætti. Hann var kjörinn forseti í apríl árið 2019 með 73 prósent atkvæða þrátt fyrir að margir teldu framboð hans vera gjörning. Zelenskí hafði áður gert garðinn frægan sem leikari og uppistandari. Um tíma var ýjað að því að hann væri strengjabrúða auðkýfingsins Ihors Kolomoisky, sem stóð straum af kosningabar- áttu hans og er eigandi sjónvarps- stöðvarinnar sem sýndi þætti Ze- lenskís. Zelenskí afsannaði þá kenn- ingu að vissu leyti þegar hann beitti sér gegn því að bankinn Privat- Bank, sem var í eigu Kolomoisky áður en hann var ríkisvæddur, yrði einkavæddur á ný. Zelenskí fæddist í austurhluta Úkraínu árið 1978. Hann og fjöl- skylda hans eru gyðingar og rúss- neska er þeirra móðurmál. Rússneska tungan hefur lengi verið það sem rússnesk yfirvöld telja að skilji héruðin Dontesk og Luhansk í austurhluta Úkraínu frá landinu og sé til marks um að um- rædd héruð tilheyri í raun Rúss- landi. Zelenskí hefur barist fyrir hinu gagnstæða. Hann lauk laganámi við há- skólann í Kænugarði en beindi kröftum sínum svo að afþreying- argeiranum. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Þjónn fólksins (e. Servant of the people). Í kosningabaráttunni lagði Ze- lenskí áherslu á tvennt. Annars vegar að binda enda á stríðið í aust- urhluta Úkraínu og að bjarga efna- hag Úkraínu úr heljargreipum rússneskra auðmanna, svonefndra ólígarka. Það hefur gengið brösuglega að standa við þessi fyrirheit. Zelenskí sýndi aðild að Evr- ópusambandinu og Atlantshafs- bandalaginu áhuga, sem vakti reiði hjá Vladimír Pútín. Afskiptaleysi gerir fólk að vitorðsmönnum Traust þjóðarinnar til Zelenskís tók dýfu þegar Rússland hóf her- æfingar við landamæri Úkraínu í apríl á síðasta ári. Það hefur þó komið tvíeflt til baka undanfarna daga. Lykilandartak var þegar Ze- lenskí birti ávarp á samfélagsmiðlum, nokkrum klukkustundum fyrir innrás Rússa, þess efnis að hann hefði reynt að hringja í Vladimír Pútín til þess að koma í veg fyrir stríð, en án árangurs. Áréttaði hann að stríð væri ekki lausn- in en þegar Rússar gerðu árás myndu þeir ganga í flasið á Úkraínumönnum, ekki sjá undir iljarnar á þeim. Þá var einnig áhrifaríkt þegar Ze- lenskí lýsti því yfir eftir innrásina að ef vestrænar þjóðir réttu ekki hjálp- arhönd myndi stríðið banka á þeirra dyr fyrr en varði. Á öryggisráðstefnunni í München hinn 19. febrúar minnti Zelenskí vestræna þjóðarleiðtoga á að afskipta- leysi gerði þá að vit- orðsmönnum. Zelenskí er helsta skotmark Rússa, og fjöl- skylda hans skipar annað sætið á þeim lista. Þrátt fyrir það afþakkaði hann boð bandarískra yf- irvalda um aðstoð við að flýja. Hann sagðist ekki þurfa far heldur skot- vopn enda ætli hann sér að hrekja burt her Pútíns. Með framtíð Úkraínu á herðum sér Þjónn fólksins (e. Servant of the people) eru sjónvarps- þættir. Pólitísk satíra með gam- ansömu ívafi, þar sem Volodimír Zelenskí fer með aðal- hlutverkið. Zelenskí leikur sögu- kennara í framhaldsskóla sem slysast inn í forsetaframboð eftir að eldræða hans um stjórnmál lekur á netið. Í emb- ætti forseta heyr hann baráttu gegn misrétti og spillingu. Þættirnir Þjónn fólksins voru sýndir á árunum 2015 til 2018 en í beinu fram- haldi ákvað Zelenskí að fara í raun- verulegt for- setaframboð. Flokkur hans heitir Þjónn fólksins eftir þáttunum og hef- ur að geyma fólk sem Zelenskí hafði unnið með í kvikmyndageir- anum. Satíra sem raungerðist LÉK FORSETA ÁÐUR EN HANN VARÐ FORSETI AFP Baráttuhugur Zelenskí afþakkaði boð Bandaríkjamanna um flótta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.