Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 ✝ Guðrún Jó- hanna Helga- dóttir fæddist 7. september 1927 í Keflavík. Hún lést á Droplaugarstöðum 6. febrúar 2022. Foreldrar henn- ar voru Helgi Guð- mundsson, læknir í Keflavík, f. 1891 á Bergsstöðum í Svartárdal, d. 1949, og Sigurbjörg Hulda Matthías- dóttir hjúkrunarkona, f. 1891 í Haukadal í Dýrafirði, d. 1968. Systkini Jóhönnu voru: Guð- mundur, f. 11. okt. 1919, d. 14. nóv. 1984, Matthías, f. 12. apríl 1921, d. 9. feb. 1986, Haukur, f. 25. okt. 1922, d. 15. okt. 1990, Ólafur, f. 12. ágúst 1924, d. 29. júní 2002, Björg, f. 11. júlí 1926, d. 16. sept. 1926, Ragnheiður, f. 7. sept. 1927, d. 26. okt. 1943, María, f. 12. ágúst 1930, d. 18. apríl 2020, Kristinn, f. 15. sept. 1932, d. 16. sept. 1932 og Sig- urlaug, f. 6. ágúst 1936, d. 27. apríl 1985. Þann 10. nóvember 1945 gift- ist Jóhanna séra Yngva Þóri Árnasyni, f. 17. sept. 1916 í Reykjavík, d. 4. feb. 1991. For- eldrar Yngva Þóris voru Bjarni Ívarsson bókbindari, f. 1885 í Reykjavík, d. 1965, og Ragn- heiður Magnúsdóttir Blöndal húsfreyja, f. 1886 í Akureyjum, d. 1965. Kjörforeldrar Yngva Þóris voru Árni Gíslason versl- unarmaður, f. 1889 í Vest- mannaeyjum, d. 1957, og Sigur- björg Sigurðardóttir verslunarmaður, f. 1886 í Borg- arfirði eystra, d. 1967. Jóhanna og Yngvi Þórir eign- uðust 10 börn, þar á meðal þrí- bura. 1) Árni, f. 27. apríl 1946, k. Sigrún Bergmann Bald- ursdóttir. Börn eru Sveinbjörn Ragnar, k. Kristín Harpa Hann- esdóttir, og Hilmar, synir Val- dísar Jónu Sveinbjörnsdóttur, Sigrún Halla, dóttir Ingibjargar ir. Synir þeirra eru Egill Örn, Atli Már, k. Signý Ósk Snorra- dóttir, Yngvi Jóhann og Helgi Aron. Barnabörn eru 2. 10) Þór- dís Hadda, f. 5. maí 1970. Börn hennar og Ketils Sigurjóns- sonar eru Guðrún Diljá og Sig- urjón Bogi, k. Laufey Gunn- arsdóttir. Jóhanna ólst upp í Keflavík í stórum systkinahópi. Hún fór snemma að aðstoða foreldra sína við verk sem til féllu á stóru heimili og á læknisstofu föður hennar. Eftir lát Ragnheiðar tvíburasystur Jóhönnu, sem lést úr berklum, dvaldi Jóhanna um skeið í Reykjavík hjá föð- urbróður sínum og konu hans en fór síðan sem ráðskona í Ár- nes í Trékyllisvík á Ströndum. Þar kynntist hún séra Yngva Þóri manni sínum sem var þar prestur. Hjónin bjuggu í Árnesi fyrstu árin en fluttu 1948 að Prestbakka í Hrútafirði þar sem sr. Yngvi Þórir þjónaði sem sóknarprestur við Prestbakka- kirkju, Óspakseyrarkirkju og Staðarkirkju. Jóhanna og Yngvi Þórir bjuggu á Prestbakka í hartnær 40 ár. Á Prestbakka ráku þau lengst af sauðfjár- búskap og einnig kúabúskap um tíma. Heimilið var fjölmennt og gestkvæmt og komu börn tíðum til sumardvalar. Árið 1986 brugðu þau búi og fluttu frá Prestbakka þegar sr. Yngvi Þórir lét af embætti sökum ald- urs. Bjuggu þau lengst af í Kópavogi en sr. Yngvi Þórir lést árið 1991. Síðar flutti Jóhanna í Hólmasund 18 í Reykjavík og bjó þar í 20 ár. Eftir að hafa orð- ið fyrir slysi á heimili sínu fyrir rúmu ári, naut Jóhanna að- hlynningar á Vífilsstöðum og síðar Droplaugarstöðum þar sem hún lést. Jóhanna og séra Yngvi Þórir eignuðust 10 börn, 30 barnabörn og eru barna- barnabörnin orðin 29. Afkom- endur Jóhönnu og Yngva Þóris eru nú 69 talsins. Útför Jóhönnu fer fram frá Háteigskirkju í dag, 28. febrúar 2022, klukkan 13. Athöfninni verður streymt á: https://laef.is/johanna-helgadottir/. Virkan hlekk má finna á: https://www.mbl.is/andlat/. Hallgrímsdóttur, Hafsteinn og Telma Bergmann, m. Atli Rúnar Þor- steinsson, börn Sig- rúnar. Barnabörn eru sex. 2) Gísli Jó- hann, f. 30. sept. 1947, d. 31. júlí 1979, k. Rumpaip- un Jeannie Yngva- son. Dóttir þeirra er Jóhanna, m. Jade Bissat. Barnabörn eru tvö. 3) Ragnheiður, f. 30. sept. 1947, börn hennar og Pálma Jóhann- essonar eru Jóhanna Svandís, Ríkharður Þórir, k. Evelyn San- tos Johannesson, og Þorsteinn Freyr, k. Oddný Ingimarsdóttir. Barnabörn eru fimm. 4) Helgi, f. 30. sept. 1947, d. 16. jan. 2012, k. Rósa Irene Yngvason. Börn eru Þór Elfar, sonur Guðrúnar Kristínar Þórsdóttur, Helgi, Shanine Irene og Jacquline Z., börn Rósu Irene. 5) Sigurbjörg, f. 18. apríl 1949, d. 5. apríl 2010, synir hennar og Tore Gomo eru Yngvi og Geir, k. Juvy Penalosa Prollo. Barnabarn er eitt. 6) Ey- steinn Þórir, f. 8. maí 1955, syn- ir hans og Bergljótar Viktors- dóttur eru Ægir Þór, k. Sunna Arnarsdóttir, Gísli Jóhann, k. Arndís Huld Hákonardóttir, og Yngvi Þórir, k. Sveinbjörg Birta Schmidt. Barnabörn eru sjö. 7) Ingibjörg Hulda, f. 14. apríl 1958, m. Ingvar Þór Magnússon. Börn þeirra eru Þórunn Mál- fríður, m. Bjarki Iversen, og Magnús Kári, k. Helga Guðrún Lárusdóttir. Barnabörn eru þrjú. 8) Guðmundur Bjarni, f. 4. mars 1961, k. Halldóra Sól- bjartsdóttir. Börn eru Birna Dögg, dóttir Áslaugar Björg- vinsdóttur, Friðrik Atli, k. Berg- lind Klara Guðmundsdóttir, Hinrik Þór, k. Birna Sól Högna- dóttir, og Heiðdís Tinna, börn Halldóru. Barnabörn eru þrjú. 9) Magnús Þórir, f. 20. apríl 1965, k. Helga Heiða Helgadótt- Framan af aldri ólst mamma upp í foreldrahúsum í Keflavík. Á þessum tíma, var ekkert sjúkra- hús í bænum. Þeir sem þörfnuð- ust læknisþjónustu komu inn á læknisheimilið á öllum tímum sólarhringsins, t.d. sérstaklega ef um alvarleg tilfelli var að ræða t.d. hópslys, sbr. „brunann mikla“ á jólaskemmtun í bænum og t.d. vegna heimstyrjaldarinn- ar sbr. t.d. vegna brunasára sjó- liða eftir árás þýsks kafbáts á skip út af Garðskaga o.s.frv. Mamma kynntist því mörgu á heimilinu, sá og heyrði margt af því sem þar fór fram. Hún að- stoðaði við ýmis verkefni á læknastofunni og lærði því ým- islegt af störfum foreldranna. Eitt sinn, þegar foreldrar mömmu voru að heiman, bar að sjómann, sem hafði fengið öngul í gegnum höndina. Mamma tók að sér að fjarlægja öngulinn og búa um sárið, ein síns liðs, þá aðeins 12 ára að aldri. Hún bjó að þess- ari reynslu að heiman og nýtti hana óspart síðar við að hjálpa fólki og dýrum. Eftir að hafa misst tvíbura- systur sína í berklafaraldrinum, flutti mamma til Árness í Tré- kyllisvík, þar sem hún kynntist elsku pabba, sem var prestur þar. Síðar fluttu þau til Prest- bakka í Hrútafirði, siglandi með búslóðina á mótorbáti til Borð- eyrar. Þegar þangað var komið, voru húsin í bágbornu ástandi. Aðeins 28 ára að aldri hóf hún baráttu við að fá húsakostinn endurnýj- aðan. Hún fór m.a. til Reykjavík- ur, nánar tiltekið í kirkjumála- ráðuneytið og sat þar á bekk frammi á gangi, fram á aðra viku, bíðandi eftir að ráðuneytisstjór- inn veitti sér áheyrn. Á mánu- deginum í nýrri viku, verður ráðuneytisstjórinn var við að mamma bíður þar enn, og hváði þá furðu lostinn „frú, ertu hér ennþá?“ Varð þetta til þess að er- indi mömmu var sett íferli og síð- ar samþykkt. Hafði því annáluð þrautseigja og elja mömmu loks skilað þeim árangri að undirbún- ingur að uppbyggingu Prest- bakka fór á fullan skrið. Því má fyllilega segja að húsakosturinn á Prestbakka í dag, sé a.m.k. að nokkru leyti minnisvarði um þrautseigju mömmu. Mamma var mjög vinnusöm. Ásamt bústörfum sá hún af myndarskap og alúð um heimilið. Hún bakaði kynstrin öll af kræs- ingum og á hátíðisdögum og bauð upp á kirkjukaffi þegar messað var. Hún bætti fatnað og saumaði nýjan og handprjónaði ýmislegt. Á haustin tók hún slátur og útbjó flestar tegundir af þeim gómsæta mat, sem hún verkaði af kunn- áttu og natni. Mamma var allajafna óþreyt- andi að halda íbúðarhúsinu við og betrumbæta. Hún valdi af kost- gæfni efni til framkvæmda og sótti oft suður til Reykjavíkur. Hún málaði, mældi upp, vegg- fóðraði, dúk- og teppalagði o.s.frv., af vandvirkni og elju- semi. Mamma var glaðvær kona, hrein og bein í fasi og óspar á að hrósa fólki, svo hlý og gjafmild og alltaf tilbúinn að aðstoða og hjálpa öðrum. Hún sýndi ávallt í verki að henni var umhugað um velferð fólks og lét alltaf gott af sér leiða. Hún var alltaf einstaklega gestrisin og dró aldrei af sér við að sinna gestum sem bar að garði. Elsku mamma, ég sé þig fyrir mér nú komna til elsku pabba, Gísla, Helga, Sibbu og hins fólks- ins þíns. Minningin um þig lifir áfram. Magnús Yngvason. Elskuleg tengdamóðir mín, Jóhanna Helgadóttir, er látin. Ég kynntist Jóhönnu fyrir 32 árum síðan þegar maðurinn minn, Guð- mundur Bjarni, fór með mig í heimsókn til tengdaforeldra minna, ég var þá 22 ára og kveið því að hitta foreldra hans, en sá kvíði reyndist algjörlega óþarfur því um leið og ég kom inn úr dyr- unum á heimili þeirra beið Jó- hanna mín þar brosandi með út- rétta arma og faðmaði mig að sér og bauð mig innilega velkomna og hvíslaði því í eyrað á syni sín- um þannig að ég heyrði að hún væri ekki hissa á því að hann hefði orðið skotinn í mér. Svona var tengdamóðir mín, alltaf bros- andi, blíð, kát og full af lífsgleði, þannig man ég eftir henni og lífs- gleði hennar hvarf ekki þótt heilsu hennar hafi verið farið að hraka mikið, lífsgleði hennar ent- ist henni alveg fram undir það síðasta, hún tengdamóðir mín var algjör dugnaðarforkur en fannst óþægilegt að þiggja lof um sjálfa sig. Við Jóhanna brölluðum margt saman, hún hafði einstaklega gaman af fallegum fatnaði og húsbúnaði og að fegra heimili sitt og var heimilið hennar stolt, en hún elskaði ekkert meira en að fara í verslunarleiðangra. Það voru margar verslunarferðirnar sem við fórum í saman og komum við yfirleitt klyfjaðar heim annað hvort með fatnað eða eitthvað inn á heimilið. Jóhanna var einstak- lega gjafmild og vildi alltaf vera að gefa og gleðja aðra, það þurfti að hafa sig alla við að fara ekki með skottið fullt af gjöfum heim. Eitt sumarið fórum við Jó- hanna tvær saman til Spánar í heimsókn til foreldra minna sem höfðu tekið stórt hús á leigu þar, þar hittum við auðvitað foreldra mína og svo eina dóttur Jóhönnu og manninn hennar sem höfðu komið frá Bandaríkjunum til að hitta okkur þar. Við gistum öll í húsinu sem foreldrar mínir höfðu tekið, við nutum okkar svo vel þennan tíma, fórum í sund á hverjum morgni og sólbað, borð- uðum góðan mat, fórum á strönd- ina og dressuðum okkur upp á kvöldin, eða eins og Jóhanna sagði sjálf þá höfðum við það eins og drottningar. Elsku Jóhanna mín, þú varst mér alltaf svo góð, þakka þér fyr- ir allar yndislegu stundirnar með mér og mínum. Með kveðju og hjartans þökk, Þín tengdadóttir, Halldóra Sólbjartsdóttir. Amma mín, Jóhanna, var fyr- irmynd, staðföst, viljug og líklega duglegasta kona sem ég hef kynnst. Efast um að duglegri konu sé hægt að finna þó víða væri leitað. Ég man vel eftir þeim góðu tímum sem við áttum saman og gleymi þeim aldrei. Það sem er allra efst í huga mínum eru þeir dýrmætu tímar sem við áttum saman í Hrútafirð- inum á Prestbakka. Þar var mikið fjör og gaman, enda á uppeldisstað föður okkar Guðmundar Yngvasonar og systkina hans. Á Prestbakka er ekki ein tomma af túni sem hefur ekki dýrmætar minningar að geyma og amma hafði gaman af að segja frá hinum ýmsu uppákomum sem áttu sér stað á þeim bænum frá árum áður. Sögurnar voru af öll- um toga fyndnar og svo spenn- andi að við frændurnir sátum sem fastast, jafnvel lengi vel eftir að sagan hafði klárast en það var greinilegt að uppátækjasemina hafði ég ekki langt að sækja, þar sem flestar þessar sögur voru af pabba og systkinum hans. Amma var án efa besti sögu- maður sem ég hef kynnst og lík- lega hefði hún náð miklum ár- angri í þeim geira eins og öllu öðru sem hún tók sér fyrir hend- ur. Amma mín var sérlega gest- risin og var hún alltaf með eitt- hvert bakkelsi þegar maður leit við í heimsókn, svo það var aldrei vafamál hvort við systkinin myndum slá til og skella okkur í heimsókn með mömmu og pabba, enda sætabrauðsdrengir og -systur. Amma mín Jóhanna er sá eng- ill sem ég mun leita til þegar á reynir og sakna ég þess innilega að geta ekki átt við hana gott og innihaldsríkt spjall yfir einum vænum snúð og kaffisopa. Hvíldu í friði elsku amma mín. Þitt barnabarn Friðrik Guðmundsson. Elsku Jóhanna amma mín. Þú sem varst svo brosmild og lífsglöð, bjartsýniskona með gestrisnina alveg upp á tíu. Ég get ekkert annað en verið þakklátur fyrir öll kaffiboðin og frábæru matarboðin sem við fór- um í til þín við fjölskyldan. Ég hef ekki kynnst jafn duglegri konu og þér og ert þú fyrirmynd fyrir mig og marga aðra. Það sem það var gaman að kíkja í heimsókn til þín og spjalla við þig um hitt og þetta, þú varst alltaf jafn opin fyrir því að fá vini og vandamenn yfir í kaffi, við gátum spjallað um allt á milli himins og jarðar og enduðum alltaf bæði hlæjandi að sögunum. Þú varst með svo fallegt og hlýtt hjartalag, elsku Jóhanna amma mín. Ég hef aldrei hitt neina mann- eskju sem var jafn einstök og þú, elsku amma mín. Ég er svo þakk- látur fyrir að Marey Sól, dóttir mín og barnabarnabarn þitt, hafi fengið að hitta ömmu sína áður en hún kvaddi þessa jarðvist og ég og hún fengum tækifæri til að kveðja þig með fallegum orðum, knúsum og kossum. Minning þín mun ávallt lifa í hjarta mér og fylgja hjarta mínu til æviloka. Hvíldu í friði. Guð blessi þig og varðveiti elsku Jó- hanna amma mín. Þinn Hinrik Þór Guðmundsson. Þegar ég hugsa til ömmu sé ég hana fyrir mér hlæjandi, með lífsgleðina skínandi í augunum. Hún brosti svo með augunum. Sjaldan hef ég séð manneskju á hennar aldri hafa annan eins lífs- kraft, hún fylgdist vel með mál- um líðandi stundar, fréttum og þjóðmálum og var áhugasöm um hvernig fólkinu hennar reiddi af. Ósérhlífni, kærleikur og gjaf- mildi koma líka í hugann. Henni var mjög umhugað um líðan ann- arra, þrátt fyrir gigt og líkamleg- ar þrautir hafði hún til dæmis áhyggjur af bakinu mínu og bauðst oft til að gefa mér, tví- tugri stelpu, baknudd og fóta- nudd. Amma var líka algjör nagli enda tíu barna móðir sem lifði tímana tvenna. Hún sagði mér margar sögur frá gömlu dögun- um yfir heitu súkkulaði með rjóma á Hólmasundinu, bæði af gleði og sorgum. Ég vona að ég tileinki mér kjark hennar, seiglu og lífsgleðina. Ég mun virkilega sakna henn- ar ömmu og er svo þakklát fyrir að hafa haft hana í mínu lífi og átt með henni tíma. Hún var fyrir mér fyrirmynd um viðhorf til lífs- ins, um gleði, styrk og kærleika og ég veit að hún mun ávallt fylgja mér í hjarta mínu. Ein af síðustu stundunum sem við amma áttum var í byrjun vetrar þegar við fórum á kaffihús og ræddum meðal annars um mannslíkamann yfir latte og skoðuðum anatómíubók sem henni fannst verulega sniðug. Þetta var dýrmæt stund, enda var amma alla tíð bæði fróðleiks- fús og fræðandi, eins og segir í ljóðinu, „hún var amma svo fróð“. Guðrún Diljá Ketilsdóttir. Á lífsleiðinni er oftast óhjá- kvæmilegt að nokkrar hetjur verði á vegi manns. Fólk af öllum stærðum og gerðum, fólk sem maður dáist að úr fjarlægð eða nálægð, og markar mann fyrir lífstíð. Ein þessara manneskja, sem mörg voru svo lánsöm að elska og vera samferða í lífinu, var amma. Hlýja hennar og brosmildi ylj- aði nefnilega öllum sem komust í tæri við hana. Og það var einmitt vegna lífsgleði hennar og hlátras- kalla, að ég hóf að leggja leið mína oftar í Hólmasundið með dætur mínar síðustu ár. Það er verðugt verkefni að rannsaka hvernig forgangsröðun manns breytist til hins betra við það að verða foreldri. Amma, læknisdóttirin úr Keflavík, kom tíu börnum í heim- inn og öllum á legg. Merkilegt af- rek þess tíma og hvað þá við bág- bornar aðstæður á hjara veraldar, en kannski ekki svo óvænt fyrir okkur sem þekktum hana. Það beit nefnilega voða lít- ið á hana. Á svo langri ævi fór hún auð- vitað ekki varhluta af áföllum, en hún stóð alltaf keik í miðju brim- róti lífsins og oftar en ekki með styrk afgangs til að deila með öðrum sem á þurftu að halda. Hún upplifði sársaukafullan syst- urmissi ung að árum og lifði þrjú barna sinna, en ljós hennar dofn- aði aldrei, þó það flökti á erfiðum stundum. Margar af mínum fyrstu og kærustu æskuminningum eru frá Prestbakka í Hrútafirði, en þar bjuggu amma og afi sér og börn- um sínum heimili í hartnær 40 ár. Við komuna þangað hefði eng- inn álasað ungu hjónunum að snúa við í sporunum, enda blasti við þeim hrörlegt íbúðarhús, ið- andi af músagangi, götótt og án rafmagns. Við slíkan húsakost bjuggu þau í nokkur ár, eða þar til ný kirkja og prestsbústaður reis á staðnum, nær einvörðungu fyrir þrautseigju og ákveðni hús- móðurinnar að fá fjármagn til verksins. Kirkjumálaráðherra þess tíma sá nefnilega brátt að prests- frúnni úr Hrútafirði yrði ekki snúið frá svo glatt. Enda hafði hún því sem næst flutt inn á bið- stofu ráðuneytisins, hvar hún beið þolinmóð svo dögum skipti eftir að fá tækifæri til þess eins að hafna „nei“ sem svari í þetta sinn. Æðruleysi hennar var engum takmörkum háð. Hún var rögg- söm og hafði litla þolinmæði fyrir væli. Þannig hvarflaði ekki að henni að barma sér þegar hennar beið eitt sinn margra klukkutíma ökuferð á höstum herjeppa á vart færum sveitavegum þess tíma, á fæðingardeildina í höfuðstaðnum kasólétt af þríburum. Nei, því það er ekki hetjum líkt. Ég kveð ömmu með mikilli sorg, en sömuleiðis þakklæti fyr- ir tímann og allar góðu stundirn- ar sem við náðum að verja sam- an, hlæjandi yfir kaffibolla. Með andláti hennar kveð ég ekki bara ömmu mína, heldur líka kæra og trausta vinkonu sem gat ávallt dimmu í dagsljós breytt. Ægir Þór Eysteinsson. Elsku amma, langamma okk- ar. Það var alltaf sérstök stemn- ing að heimsækja þig, þú varst með eindæmum rausnarlegur gestgjafi. Þú sýndir okkur öllum svo mikinn áhuga. Þetta voru uppbyggjandi og dýrmætar stundir sem við áttum með þér. Þú hafðir skoðanir á hlutunum og svo gaman af lífinu. Við rædd- um heimsmálin, pólitíkina, hvernig þríburarnir fæddust og hvað þú varst hissa þegar sá þriðji kom. Þú varst stolt og áhugasöm um þitt fólk. Það voru forréttindi að fá að kynnast þér, þú varst sterk fyrirmynd og gerðir okkur að betri manneskj- um. Við kveðjum þig með sökn- uði og þakklæti í huga. Minning- in lifir um dásamlega mömmu, ömmu og langömmu. Þorsteinn, Oddný, Davíð, Freyja og Sif. Það er undarleg tilviljun að nánast upp á dag fyrir 31 ári fór yfir Ísland sögulegt óveður. Dag- inn eftir óveðrið lést afi minn, hann Yngvi. Núna daginn fyrir óveðrið mikla lést svo amma Jó- hanna. Ég var ansi lítil þegar afi dó og man ekki mikið eftir þeim tíma en þó eitthvað. Það sem stendur mest upp úr er afi sitj- andi í leðurstól og ég hlaupandi í fangið á honum, og amma að brasa í eldhúsinu. Svo áttu þau þetta skemmtilega orgel sem maður fékk að glamra á. Amma og afi ólu upp sín tíu börn á Prestbakka í Hrútafirði. Eftir að ég eignaðist mín þrjú hressu og orkumiklu börn hef ég oft leitt hugann að því hversu mikil forréttindi það voru fyrir pabba og hans systkini að fá að alast upp í umhverfinu á Prest- bakka. Þar sem náttúran var leikvöllurinn. Ég veit a.m.k. að miðjubarnið mitt myndi blómstra í slíku umhverfi. Amma Jóhanna var nákvæm- lega eins amma og við sjáum í Disney-myndunum. Hlý, góð og full af visku og kærleik. Alltaf til staðar fyrir sitt fólk og alltaf opið hús. Algjörlega einstök persóna sem við vorum lánsöm að eiga að. Ég fékk að ferðast aðeins með ömmu og foreldrum mínum þeg- ar ég var krakki, og stendur sér- staklega upp úr ferðin til Flórída. Jóhanna Helgadóttir SJÁ SÍÐU ??

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.