Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.02.2022, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022 Atvinnuauglýsingar Interviews will be held in Reykjavik in May and June For details contact: Tel.:+ 36 209 430 492 Fax:+ 36 52 792 381 E-mail: omer@hu.inter.net internet: http://www.meddenpha.com Study Medicine and Dentistry In Hungary “2022” Rað- og smáauglýsingar Tilkynningar Auglýsing um skipulagsáform í Skútustaðahreppi Skipulags- og matslýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011 – 2023. Sveitarstjórn Skútustaðahrepps samþykkti þann 23. mars 2022 að kynna skipulags- og matslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011 – 2023 í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi felur í sér skilgreiningu efnistökusvæðis í landi Garðs þar sem áætlað er að taka 120.000 m3 af efni á 4,4 ha svæði. Skipulags- og matslýsingin verður aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsin, www.skutustadahreppur.is og á skrifstofu sveitarfélagsins. Skipulags- og matslýsingin er auglýst með umsagnarfresti frá og með 28. febrúar til og með 21. mars 2022. Umsagnir við lýsinguna skulu berast skipulagsfulltrúa á netfangið atli@skutustadahreppur.is f.h. Skútustaðahrepps Atli Steinn Sveinbjörnsson, skipulagsfulltrúi Félagsstarf eldri borgara Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qi-gong kl. 7-8. Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Postulínsmálun kl. 9-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl. 9.45-10. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10.Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa. Kl. 9-10.30 botsía- æfing. Kl. 9-11.30 postulínsmálun. Kl. 10.50-12.15 jóga. Kl. 13-16 opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 13.15-15 kanasta. Gullsmári 13 Opin handavinnustofa kl. 9-16. Qi-gong heilsueflandi æfingar kl. 9. Brids kl. 13. Jóga kl. 17. Félagsvist kl. 20. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30. Útvarpsleik- fimi kl. 9.45. Minningahópur kl. 10.30. Jóga með Ragnheið Ýr kl. 12.20. Zumba með Carynu kl. 13.10.Tálgun, opinn hópur kl. 13-16. Brids kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 8.30. Morgunleikfimi útvarpsins kl. 9.45. Gönguhópar frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll kl. 10. Dansleikfimi í Borgum kl. 11. Félagsvist kl. 13. Prjónað til góðs og frjáls skartgripagerð kl. 13.Tréútskurður Korpúlfsstöðum kl. 13. Línudans kl. 15. Gleðin býr í Borgum. Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna kl. 9-11.30. Leir, Skólabraut kl. 9. Billjard, Selinu kl. 10. Jóga/leikfimi á Skólabraut kl. 11. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Síðasti dagur skráningar í dag vegna leikhúsferðar nk. fimmtudag á sýninguna ER ég mamma mín. Skráning hjá Kristínu í síma 8939800. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Merktirpennar Sólarfilmur Húsviðhald Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 Nú "&&$# þú það sem þú !ei%a# að ' FINNA.is með morgun- "&$#!% ✝ Sigríður Guð- laug Sigurðar- dóttir (Silla) fæddist á Ólafsfirði 11. jan- úar 1937. Hún lést á Vífilsstöðum 10. febr- úar 2022. Foreldrar hennar voru Sigurður Pétur Jónsson vélstjóri, f. 6.4. 1907, d. 3.10. 1980, og Freygerður Anna Þorsteins- dóttir, húsmóðir og afgreiðslu- kona, f. 15.2. 1912, d. 7.5. 1987. Systkini Sigríðar eru Anton, f. 1932, Andrés, f. 1934, Guðrún Árna, f. 9.11. 1935, d. 15.11. 1993, Þorsteinn Gunnar, f. 24.9. 1939, d. 11.8. 1940, Margrét, f. 1943, og Valgerður, f. 1947. Eiginmaður Sigríðar var Hall- dór Jónsson, f. 9.3. 1926, d. 24.11. 2011. Börn þeirra eru Pétur Freyr, f. 4.6. 1968, d. 21.12. 2016, og Anna Halldórs- dóttir, f. 7.6. 1973. Dóttir Péturs og Guð- nýjar Höskuldsdóttur, f. 30.12. 1969, er Re- bekka Sigríður, f. 13.6. 1993. Unnusti hennar er Helgi Júlíus, f. 14.12. 1990. Þau eiga soninn Leó, f. 31.3. 2021. Eiginmaður Önnu er Tryggvi Már Gunnarsson, f. 18.9. 1973, og börn þeirra eru Sunna, f. 8.7. 2001, Hrefna, f. 28.4. 2004, og Halldór Gauti, f. 17.5. 2008. Sig- ríður starfaði lengst af sem dag- móðir á heimili sínu, Álfhólsvegi 133a í Kópavogi. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 28. febrúar 2022, klukkan 13. „Farðu nú varlega mamma mín“ var eitt af því síðasta sem ég sagði við mömmu. Þetta var á miðviku- dagskvöldi og eins og öll önnur kvöld heyrðumst við í síma áður en hún fór að sofa. Hún sagðist vera öll að hressast og var að hugsa um að kíkja kannski aðeins fram áður en hún færi í háttinn – athuga hvort það væru ekki einhverjir skemmti- legir frammi í setustofu. Kíkja að- eins fram, já. Konan sem hafði ekki haft mátt í fleiri vikur til að ganga ætlaði að drífa sig aðeins fram og kíkja á fólkið. Þetta samtal er lýs- andi fyrir mömmu – félagslyndi, já- kvætt viðhorf, aldrei uppgjöf og allt- af áfram gakk. Og ég, eins og vanalega, með áhyggjur af því að nú færi hún of hratt yfir og gleymdi göngugrindinni í ákafanum. „Farðu nú varlega mamma mín“. Á fimmtu- dagsmorgni vaknaði hún ekki aftur. Mamma var glaðlynd að eðlis- fari og það var oft kátt á hjalla þar sem hún var. Hún var yfirleitt ekk- ert að skafa af hlutunum og ég sé hana ljóslifandi fyrir mér þegar hún var ung í vinnu sem kokkur á síldarbát. Algjör töffari með pípu í munnvikinu að rífa kjaft við kall- ana á bryggjunni. Þá hefur hún heldur betur verið í essinu sínu. Öll mín uppvaxtarár vann mamma sem dagmamma. Fimm daga vikunnar var heim- ilið undirlagt af leikföngum, vögn- um og öllu því dóti sem fylgdi því að hafa mörg börn inni á heimilinu. Ég sé mömmu fyrir mér, sitjandi á gólfinu að leika við barnaskarann, syngjandi hástöfum og með þvílíka röð og reglu á hlutunum að ekki var annað hægt en að dáðst að því hvað allt gekk smurt fyrir sig. Alla morgna vakti hún unglinginn mig með „Gamla Nóa“ eða einhverju álíka þreytandi lagi því börnin mættu sum rúmlega sjö og hún var komin í söngstuðið fljótlega upp úr því. Mamma lagði mikið upp úr því að hafa heimilið okkar fallegt og var mikil húsmóðir. Skúraði og skrúbbaði hátt og lágt fyrir allar helgar og aldrei færri en tólf sortir fyrir jólin. Hún var bóngóð og hjálpsöm og börnin mín eiga fal- legar minningar um frábæra ömmu sem tók á móti þeim opnum örmum í pössun og gistingu þegar á þurfti að halda og þá fylgdu iðu- lega brúnaðar kjötbollur með í kaupbæti. Hún tók alltaf vel á móti vinum og vandamönnum og við vinahópurinn höfum komist upp með ýmislegt í gegnum tíðina með mömmu hlæjandi á hliðarlínunni. Nú síðustu árin hefur heilsan verið slæm og ótrúlegt hvað mamma hefur sýnt mikla þraut- seigju og jákvæðni í gegnum veik- indin. Sama hvað á hefur dunið, alltaf hefur mamma staðið upp aftur og náð sér á strik. „Hva – það þýðir ekkert að kvarta“ sagði hún yfirleitt þegar ég spurði hvernig hún hefði það og mig grunar að síðustu misserin, þegar heilsan var orðin hvað verst, hafi hún haldið áfram á þrjóskunni einni saman og ekki viljað skilja mig eina eftir af litlu kjarnafjöl- skyldunni okkar. En stundin hennar var komin og nú þarf mamma ekki lengur að fara var- lega. Hún er farin á góðan stað þar sem pabbi og Pétur bróðir taka á móti henni og ég held áfram, umvafin öllum þessum englum og aldrei ein. Hvíl í friði elsku mamma – ég bið að heilsa körlunum okkar. Anna Halldórsdóttir. Jæja þá hefur nú Silla systir mín kvatt þennan heim. Já hún frænka. Í minni fjölskyldu hét hún alltaf frænka. Eitt sinn þegar við vorum að fara í jólaboð spurði þriggja ára barnabarnið mitt „erum við að fara til frænku sem heitir ekki neitt?“ Margar minningar koma upp í hugann. Þegar hún vann á Laugarvatni sendi hún okkur jóla- pakka. Í honum voru m.a. úlpur á okkur Gerðu. Ég man svo vel hvað við vorum montnar af þeim, mín var með belti og Gerðu með spennum í mittinu. Voða flottar. Eftir Laugarvatnsdvölina kom hún heim með litla rauða söngbók. Á meðan hún undirbjó sig til að fara í Húsmæðraskólann að Varmalandi sungum við aftur og aftur lögin úr bókinni góðu og oft- ar en ekki var raddað. Frænka hafði fallega söngrödd og það var dapurt að hún skyldi aldrei syngja í kór, þar hefði hún notið sín vel. Silla fór snemma að heiman og vann ýmis störf. M.a. var hún kokk- ur á síldarbát allmörg sumur. Hún keypti sér litla íbúð í Skipholtinu og naut ég góðs af því þegar ég var í Kennaraskólanum. Þá hafði ég íbúðina í tvo vetur og það munaði heldur betur fyrir mig. Lengst af vann hún sem dag- mamma. Þar komust færri að en vildu. Hún var ákaflega vinsæl og var oftar en ekki boðin í ferming- arveislur þeirra barna sem höfðu verið í dagvist hjá henni. Við eig- um margar góðar minningar frá Mosunum austur á Síðu með þeim frænku, Halla, Önnu og Pétri Frey. Einnig vorum við þar oft með fleiri systkinum okkar. Skemmtum við okkur alltaf vel við leiki og gönguferðir. Halldór var líka duglegur að sýna okkur sveit- ina sína. Á kvöldin var mikið spil- að, glens og gaman. Frænka hafði mjög gaman af að spila á spil og hún gat lagt kapal endalaust. Eftir að Halli dó fórum við saman að versla á föstudögum. Þá áttum við góðar stundir saman. Hún sagði oft „þú ferð nú að fá nóg af að keyra mig svona í hverri viku“. Ég sagðist bara vera að borga fyrir lánið á íbúðinni forðum. Nú hefur hún loksins fengið hvíldina lang- þráðu, laus við verki og vanlíðan. Takk fyrir samfylgdina systir góð. Elsku Anna, Tryggvi, Sunna, Hrefna, Halldór Gauti. Rebekka, Helgi og litli Leó, ykkar sorg er mikil en minningin lifir. Við Óli sendum ykkur okkar dýpstu sam- úðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja ykkur í sorginni. Margrét (Dadda). Börnin mín voru svo heppin í æsku að eiga þriðju ömmuna sem átti þátt í að skapa með þeim þeirra bestu minningar. Þau voru ekki einu börnin sem litu á frænku sem ömmu sína þó hún væri það ekki, enda barngóð kona þar á ferð. Hún var þægileg í samskiptum og átti eftir því sem ég best veit mjög auðvelt með að tala við hvern sem er um hvað sem er. Partur af því var örugglega tilkominn vegna þess að mig grunar að hún hafi ver- ið pínu forvitin. Forvitin á jákvæð- an hátt þar sem henni var umhug- að um það sem var að gerast í lífi fólksins í kring. Hún spurði ekki eingöngu spurninga til að vera kurteis heldur fremur af áhuga. Hún kunni það sem margar kennslubækur hafa verið skrifaðar um og margir hafa reynt að leika eftir – mannleg samskipti. Það er oft talað um að myndir segi meira en þúsund orð og það þarf ekki annað en líta á myndina hér fyrir ofan af henni frænku til að sjá hvernig einstaklingur hún var. Hvernig er annað hægt en brosa með henni og komast í gott skap? Það fylgir ekki lognmolla svona konu, það er nokkuð ljóst. Nei, frænka gekk hreint til verks, tusk- an á lofti og orðbragðið ekki alltaf fyrir viðkvæma, sem er einmitt það sem ég elskaði hana fyrir. Hún hló og gerði grín að eigin mistökum eða vandræðalegum uppákomum, hún var skörungur, heita súkkulaðið skyldi soðið upp þrisvar og ekkert múður með það. Hún sagði skemmtilegar sögur af fólki og gömlum tíma, eftirlét öðrum að fara í fjallgöngur og tína ber en beið heima með tilbúið hlaðborð af veit- ingum. Ég vona að mér beri gæfa til að hlátrasköllin hennar ómi sem lengst í hjarta mér. Hvers annars og betra er hægt að óska sér þegar jafn mik- ilvægur hlekkur í lífi manns hverfur á vit nýrra ævintýra. Það er sárt að missa en sársaukinn er líka spegill ástarinnar, þakklætisins og stað- festing á mikilvægi einstaklingsins í lífi annarra. Það er sagt að það þurfi þorp til að ala upp börn, frænka var í mínu þorpi og það er sárt að missa hana. Við kveðjum góða konu í dag. Freygerður Anna Ólafsdóttir. Elsku Silla frænka hefur nú kvatt okkur í síðasta sinn. Ég kall- aði hana aldrei annað en frænku og ef ég slysaðist til kalla hana Sillu eins og flestir gerðu þá fékk maður ekki svar heldur glott og svo sagði hún „Hvað kallaðir þú mig?“ Ég lít til baka með söknuði og þakklæti fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með henni frænku. Árin á Álfhólsvegi koma sterkt upp í hug- ann en þar var alltaf tekið vel á móti öllum af þeim frænku og Halla. Ein fyrsta minning mín er af steini sem stóð stakur í garðinum á Álfhóls- vegi en fyrir mér var þetta stór klettur sem ómögulegt yrði að príla upp á. Með hvatningu frænku og Halla hafðist það þó fyrir rest og þvílíkur sigur sem það var fyrir lít- inn gutta að komast á tindinn sem náði þó líklega ekki einum og hálf- um metra á hæð. Við fjölskyldan vorum alla tíð mikið á Álfhólsvegi auk þess sem við systkinin gistum þar stundum þegar foreldrar okkar voru að heiman. Þær systur, mamma og frænka, tóku með sér margar góðar hefðir frá Ólafsfirði og það var alltaf mikil tilhlökkun fyrir þessum föstu hefðum. Við tók- um slátur, steiktum laufabrauð svo ég talin nú ekki um jóladags- og áramótaboðin sem eru með bestu minningum mínum um hátíð ljóss og friðar. Ferðirnar á Mosa koma líka upp í hugann þar sem við áttum alltaf góðir stundir við spil, leik, sundferðir, göngutúra og endalaus veisluborð. Ég kveð þig elsku frænka og bið Guð að geyma þig. Elsku Anna, Tryggvi, Sunna, Hrefna, Halldór Gauti, Rebekka, Helgi og Leó. Guð gefi ykkur styrk í sorginni, minningin lifir áfram í hjörtum okkar. Jón Gestur Ólafsson. Sigríður Guðlaug Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.