Morgunblaðið - 28.02.2022, Síða 26
_ Víkingur tryggði sér um helgina
Íslandsmeistaratitil kvenna í borð-
tennis eftir 3:1-sigur á KR í TBR-
húsinu.
Nevena Tasic, Stella Karen Krist-
jánsdóttir og Agnes Brynjarsdóttir
skipuðu Víkingsliðið.
Víkingar hafa verið sigursælir í
borðtennis á árinu en liðið vann tvö-
faldan sigur á Reykjavíkurleikunum
fyrr í þessum mánuði.
_ GR-ingurinn Haraldur Franklín
Magnús hafnaði í
þriðja sæti á
Johnson Workwe-
ar-golfmótinu í
Durban í Suður-
Afríku en mótið er
hluti af
Áskorenda-
mótaröð Evrópu.
Haraldur lék frá-
bærlega í mótinu og notaði aðeins
267 högg á 72 holum. Alla hringina
lék hann undir 70 höggum en það
hafa ekki margir Íslendingar gert á
atvinnumannamótum. Haraldur lék á
68, 66, 67 og 66 höggum.
Besti árangur Haraldar á Áskorenda-
mótaröðinni er 2. sæti. Einn Íslend-
ingur hefur unnið mót á þessari
mótaröð en það er Birgir Leifur Haf-
þórsson. Haraldur fékk rúmar 2 millj-
ónir króna í verðlaunafé en stigin á
stigalista mótaraðarinnar skipta ef til
vill meira máli. Í lok keppnis-
tímabilsins komast efstu kylfingarnir
á Áskorendamótaröðina inn á
Evrópumótaröðina árið eftir.
_ Argentínska knattspyrnustjóranum
Marcelo Bielsa hefur verið vikið frá
störfum hjá enska úrvalsdeildarfélag-
inu Leeds United eftir tæplega fjögur
tímabil við stjórnvölinn. Leeds fékk
0:4-skell gegn Tottenham á heima-
velli í gær, sem reyndist síðasti leikur
Bielsa á hliðarlínunni. Liðið hefur
tapað fjórum leikjum í röð með
markatölunni 17:2 og fengið 60 mörk
á sig á leiktíðinni. Bielsa kom Leeds
upp í efstu deild á sínu öðru tímabili
með liðið eftir 16
ára fjarveru frá
deild þeirra bestu.
Yfirstandandi
tímabil hefur hins
vegar reynst erfitt
og er Leeds að-
eins tveimur stig-
um fyrir ofan fall-
sæti.
_ Vanda Sigurgeirsdóttir verður
áfram formaður KSÍ næstu tvö árin
en ársþing KSÍ fór fram í Hafnarfirði
á laugardaginn. Vanda gat ekki verið
á staðnum vegna Covid-smits og
flutti hún framboðsræðu sína raf-
rænt. Hún hlaut 105 atkvæði í for-
mannskjörinu en Sævar Pétursson
fékk 44 atkvæði.
Eitt
ogannað
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2022
Lengjubikar karla
A-deild:
KR – Keflavík ........................................... 1:1
Breiðablik – ÍA ......................................... 3:1
Lengjubikar kvenna
A-deild:
Tindastóll – KR ........................................ 1:1
Fylkir – Keflavík ...................................... 0:3
Selfoss – ÍBV ............................................ 0:4
England
Crystal Palace – Burnley........................ 1:1
- Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna veikinda.
Leeds – Tottenham .................................. 0:4
Brentford – Newcastle ............................ 0:2
Manchester United – Watford................ 0:0
Brighton – Aston Villa ............................. 0:2
Everton – Manchester City..................... 0:1
West Ham – Wolves ................................. 1:0
Staðan:
Manch. City 27 21 3 3 64:17 66
Liverpool 26 18 6 2 70:20 60
Chelsea 25 14 8 3 49:18 50
Manch. Utd 27 13 8 6 44:34 47
West Ham 27 13 6 8 46:34 45
Arsenal 24 14 3 7 38:27 45
Tottenham 25 13 3 9 35:32 42
Wolves 26 12 4 10 24:21 40
Southampton 26 8 11 7 34:37 35
Brighton 26 7 12 7 25:30 33
Crystal Palace 27 6 12 9 37:38 30
Aston Villa 25 9 3 13 33:37 30
Leicester 23 7 6 10 37:43 27
Newcastle 25 5 10 10 28:45 25
Brentford 27 6 6 15 27:44 24
Leeds 26 5 8 13 29:60 23
Everton 24 6 4 14 28:41 22
Burnley 24 3 12 9 22:30 21
Watford 26 5 4 17 25:47 19
Norwich City 26 4 5 17 15:55 17
Deildabikar, úrslitaleikur:
Chelsea – Liverpool ................................. 0:0
_ Liverpool vann 11:10 eftir vítakeppni.
Bikarkeppni, 16-liða úrslit:
Reading – West Ham............................... 0:1
- Dagný Brynjarsdóttir kom inn á eftir 74
mínútur og skoraði.
Ítalía
Verona – Venezia .................................... 3:1
- Arnór Sigurðsson og Jakob Franz Páls-
son léku ekki með Venezia.
Sassuolo – AC Milan ................................ 0:0
- Guðný Árnadóttir kom inn á hjá AC Mil-
an á 84. mínútu.
Roma – Inter Mílanó................................ 2:0
- Anna Björk Kristjánsdóttir lék allan
leikinn með Inter.
Frakkland
B-deild:
Amiens – Nimes ....................................... 3:0
- Elías Már Ómarsson kom inn á hjá Ni-
mes á 63. mínútu.
Ajaccio – Rodez........................................ 2:1
- Árni Vilhjálmsson lék allan leikinn með
Rodez og skoraði.
Rússland
Spartak Moskva – CSKA Moskva .......... 0:2
- Hörður Björgvin Magnússon var ónot-
aður varamaður hjá CSKA.
Belgía
OH Leuven – Anderlecht........................ 0:0
- Rúnar Rúnarsson varði mark Leuven.
Ungverjaland
Honvéd – Puskas Academy .................... 0:0
- Viðar Ari Jónsson kom inn á hjá Honvéd
á 90. mínútu.
Portúgal
Benfica – Famalicao................................ 1:0
- Cloé Lacasse lék allan leikinn og skoraði
markið en Heiðdís Lillýjardóttir var ekki í
leikmannahópi Benfica.
Danmörk
OB – Midtjylland...................................... 2:2
- Aron Elís Þrándarson lék ekki með OB.
- Elías Ólafsson varði mark Midtjylland.
Svíþjóð
Bikarkeppni:
Häcken – Falkenberg.............................. 5:0
- Valgeir Lunddal Friðriksson kom inn á
hjá Häcken á 85. mínútu.
Sylvia – Kalmar ....................................... 0:2
- Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn
með Kalmar.
Skiljebo – Elfsborg.................................. 1:8
- Sveinn Aron Guðjohnsen lék fyrstu 60
mínúturnar og skoraði 2 mörk. Hákon Rafn
Valdimarsson varði mark Elfsborgar.
Sirius – Trelleborg .................................. 2:2
- Aron Bjarnason lék fyrstu 81 mínútuna
með Sirius.
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Trelleborg.
Rosengård – Växjö .................................. 3:0
- Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Rosengård.
Häcken – Örebro ..................................... 2:1
- Agla María Albertsdóttir lék fyrstu 71
mínútuna með Häcken og Diljá Ýr Zomers
kom þá inn á sem varamaður.
- Berglind Rós Ágústsdóttir var ekki með
Örebro.
Jitex – Kristianstad ................................. 0:4
- Amanda Andradóttir og Emelía Óskars-
dóttir voru ekki með Kristianstad. Elísabet
Gunnarsdóttir þjálfar liðið.
Eskilstuna – Piteå.................................... 2:1
- Hlín Eiríksdóttir lék fyrstu 63 mínúturn-
ar með Piteå.
50$99(/:+0$
HM 2023
Kristján Jónsson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ítalía renndi sér upp að hlið Íslands
með sanngjörnum sigri 95:87 í und-
ankeppni HM karla í körfuknattleik
í gær en liðin áttust við í Bologna.
Liðin mættust tvívegis á fjórum dög-
um en Ísland vann í Hafnarfirði
107:105 á fimmtudaginn eftir tví-
framlengdan leik sem lengi verður í
minnum hafður.
Rússland, Ítalía og Ísland eru öll
með sex stig í riðlinum en Rússland
hefur leikið einum leik minna. Hol-
land er í neðsta sæti með þrjú stig
og á einnig leik til góða. Þrjú efstu
liðin fara áfram á næsta stig undan-
keppninnar. Ákveðið var að fresta
leik Hollands og Rússlands sem fara
átti fram í Hollandi í gær en gest-
gjafarnir höfðu lýst því yfir að þeir
hefðu ekki áhuga á að taka á móti
Rússum vegna stríðsrekstursins í
Úkraínu. Framhaldið varðandi
Rússa er nokkuð óljóst en leikur Ís-
lands og Rússlands er settur á hér
heima 4. júlí en liðin hafa þegar
mæst í Rússlandi.
Ítalir sigu fram úr
Íslenska liðið lék vel í fyrsta leik-
hlutanum í gær og Elvar Már Frið-
riksson lék afar vel. Þá fékk Ísland
mörg stig frá varamönnum og var
staðan 28:27, Íslandi í vil, þegar
fyrsta leikhluta lauk. Ítalir höfðu þá
hitt vel og héldu því áfram. Íslenska
liðið réð illa við Amedeo Della Valle,
sem raðaði inn stigum í öðrum leik-
hluta. Í vörninni fóru Ítalir að ráða
betur við Elvar Má og Tryggva Snæ
Hlinason sem fékk ekki jafn mikið
svigrúm og í heimaleiknum gegn
Ítalíu.
Átta stigum munaði að loknum
fyrri hálfleik, 53:45. Ítalska liðið hélt
áfram að bæta við forskotið í þriðja
leikhlutanum þegar Michele Vitali
átti góða spretti og reyndist fjórði
og síðasti leikhlutinn nokkuð þægi-
legur fyrir Ítalíu þótt íslensku leik-
mennirnir hafi aldrei gefist upp.
Martin ekki leikfær
Elvar Már átti stórleik fyrir Ís-
land og skoraði 30 stig og Jón Axel
Guðmundsson skoraði 16 stig.
Tryggvi gerði 14 stig og þeir Ægir
Þór Steinarsson og Kári Jónsson
átta hvor. Pavel Ermolinskij gaf tíu
stoðsendingar fyrir Ísland og tók 9
fráköst.
Martin Hermannsson fór með til
Ítalíu en kom ekki við sögu. Eins og
fram kom hér í blaðinu á laugardag-
inn þá er hann ekki alveg laus við
meiðsli í kálfa sem héldu honum frá
þegar Ísland mætti Rússlandi. Ís-
land hefur unnið báða leikina í
keppninni sem Martin hefur tekið
þátt í en tapað hinum tveimur.
Haukur Helgi Pálsson og Hörður
Axel Vilhjálmsson voru ekki með
vegna kórónuveirusmits og Krist-
ófer Acox gaf ekki kost á sér.
Fram hefur komið að fastamenn
vantaði í ítalska liðið en í gær má
segja að íslenska liðið hafi einnig
verið vængbrotið. Á hinn bóginn hef-
ur breiddin aukist í íslenska hópnum
í þessari undankeppni.
Stórleikur hjá
Elvari ekki nóg
- Ítalía og Ísland með jafnmörg stig
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stigahæstur Elvar Már Friðriksson stóð upp úr í íslenska liðinu.
Liverpool er deildabikarmeistari
eftir sigur á Chelsea í vítaspyrnu-
keppni eftir rosalegan leik. Marka-
laust var eftir venjulegan leiktíma
og framlengingu og því var gripið
til vítaspyrnukeppni. Þar skoruðu
allir leikmenn vallarins nema vara-
maðurinn Kepa Arrizabalaga og
því var það Liverpool sem fór með
sigur af hólmi.
Á lokamínútu framlengingar tók
Tomas Tuchel þá ákvörðun að setja
varamarkmanninn sinn, Kepa Arri-
zabalaga, inn á fyrir Edouard
Mendy sem hafði varið eins og ber-
serkur allan leikinn. Sú ákvörðun
átti eftir að reynast dýrkeypt þegar
í vítaspyrnukeppnina var komið.
Allir leikmenn vallarins voru
búnir að skora úr sínum víta-
spyrnum, Caoimhin Kelleher,
markvörður Liverpool, þar með tal-
inn, þegar komið var að Kepa.
Hann stillti boltanum upp og negldi
honum himinhátt yfir markið.
Liverpool vann keppnina í fyrsta
sinn í áratug og í níunda sinn frá
upphafi, oftar en nokkur annar.
AFP
Markvörðurinn Caoimhin Kelleher var í stóru hlutverki hjá Liverpool.
Varamarkverðinum
brást bogalistin
Bikarmeistarar Hauka í körfu-
knattleik rótburstuðu topplið
Njarðvíkur 86:57 í Ljónagryfjunni í
Njarðvík í Subway-deild kvenna í
gær. Bikarmeistararnir fóru rólega
af stað síðasta haust og þátttaka
liðsins í Evrópukeppni hafði áhrif á
spilamennsku liðsins hér heima. Nú
virðast Haukakonur til alls líklegar
enda liðið afar vel mannað.
Keira Robinson skoraði 27 stig
fyrir Hauka og gaf 6 stoðsendingar.
Hún hefur fallið vel að leik liðsins
eftir að hún kom frá Skallagrími.
Helena Sverrisdóttir skoraði 17
stig og tók 8 fráköst.
Aliyah Collier skoraði 15 stig fyr-
ir Njarðvík. Njarðvík er í efsta sæti
með 26 stig en Haukar í fjórða sæti
með 22 stig.
Skoraði 44 stig
Fjölnir fór upp að hlið Njarðvík-
ur á toppnum með 93:83 sigri á
Breiðabliki í Smáranum. Aliyah
Daija Mazyck átti stórkostlegan
leik í liði Fjölnis en hún skoraði 44
stig, tók 13 fráköst og gaf 4 stoð-
sendingar. Það skilaði henni í fram-
lag upp á 49 punkta. Í liði Breiða-
bliks var Þórdís Jóna Kristjáns-
dóttir stigahæst með 25 stig.
Ísabella Ósk Sigurðardóttir kom
næst með 19 stig og 13 fráköst.
Valur vann 86:33-risasigur á
Grindavík á Hlíðarenda. Skemmst
er frá því að segja að yfirburðir
Vals voru gríðarlegir en Grindvík-
ingum mistókst að skora yfir 10
stig í fyrstu þremur leikhlutunum.
Hallveig Jónsdóttir var stigahæst
í liði Vals með 18 stig. Hjá Grinda-
vík voru Thea Ólafía Lucic Jóns-
dóttir og Natalía Jenný Lucic Jóns-
dóttir stigahæstar með átta stig.
Njarðvík og Fjölnir
með lítið andrými
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Smárinn Sonja Orozovic úr Fjölni
sækir en Ísabella Ósk er til varnar.