Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2017, Side 7
7Siglfirðingablaðið
bústjórinn, tók það til ráða að auglýsa
eftir starfsfólki í dönsku blaði, en hann
hafði á yngri árum búið í Danmörku.
Fékk hann fyrst um hundrað
umsóknir um tvö störf. Þannig
æxlaðist það smám saman að allmargir
Danir og Norðmenn komu til starfa
við Hólsbúið. Móðir mín sagði þá
sögu að þegar hún kom fyrst að Hóli,
sem nýráðin kaupakona, hefði hún
flúið aftur í bæinn, á skjól sveitunga
sinna að vestan, vegna þess að hún gat
ekki talað við neinn á íslensku á Hóli
daginn sem hún mætti til starfa.
Þetta fjölþjóðlega samfélag er þeim
sem þetta skrifar, og var lítill pjakkur
á Hóli um 1960, minnisstætt. Margir
af þessum erlendu vinnumönnum
á Hóli héldu sambandi við foreldra
mína þar til yfir lauk, t.d. Hans
Adamsen, sem varð síðar starfsmaður
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík, og
Erling Frydenlund, sem fór frá Hóli á
Bændaskólann á Hólum og rak síðan
lengi stórt kúabú í Noregi. Til Erlings
fóru margir íslenskir nemendur
bændaskóla til verklegs náms.
Breyttar aðstæður
Í upphafi var þess getið að erfiðar
samgöngur hefðu verið helsti hvatinn
að stofnun Hólsbúsins. Þegar
samgöngur bötnuðu og tryggara
framboð varð á mjólkurvörum varð
grundvöllur fyrir rekstrinum erfiðari.
Hólsmjólkin seldist ekki eins vel
og áður. Hluti hennar var seldur
Mjólkursamlaginu á Sauðárkróki. Árið
1965 varð afkoma búsins sérstaklega
erfið, rekstrarhalli um 14% af veltu.
Það var því ekki um annað að ræða
en að draga saman seglin. Ákveðið var
að slátra 10-15 gripum strax í lok þess
árs.
Lokaskrefið var svo tekið í lok maí
1966, þegar Hólsbúsnefnd bókaði:
„Nefndin samþykkir vegna hins
breytta viðhorfs í mjólkursölumálum
hér í Siglufirði, nú sem stendur, að
leggja til við bæjarstjórn að Hólsbúið
verði auglýst til leigu nú þegar með
eða án áhafnar.“
Árni Theódór Árnason
síðasti bústjórinn
1963-1966.
Guðmundur Jónasson framkvæmdastjóri
Mjólkursamsölunnar á Siglufirði og
stjórnendur mjólkursamlaga KEA og KS,
sem áttu samsöluna. Myndin er tekin
daginn sem Mjólkursamsalan
var opnuð 1963.
Á árshátíð á Hótel Höfn. Eiríkur Guðmundsson, Guðmundur Jónasson, Guðrún
Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Skúli Jónasson, Guðmundur Bjarnason,
Marheiður Viggósdóttir, Eiríkur H. Jónsson, Tómas Einarsson,
Sigurlína Sigurgeirsdóttir, Hulda Njálsdóttir, Sigurður Þorsteinsson,
Anna Magnúsdóttir og Guðbrandur Magnússon.