Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2017, Page 13
13Siglfirðingablaðið
Noregs enn á ný en fluttum frá
Sarpsborg til Notodden í Þelamörk.
Konan mín byrjaði í kennaraskóla og
ég byrjaði á því að taka stúdentspróf. Ég
tók stúdentsprófið þar á einum vetri og
byrjaði síðan árið eftir í kennaranámi,
þá í handmenntakennaranámi. Námið
tók þrjú ár og eftir það tók ég eitt ár í
félagsfræði.
Árið 1988 vorum við hjónin búin að
mennta okkur og fluttum þá aftur til
Sarpsborg og ég fékk vinnu í Tindlund
Ungdomsskole. Við byggðum okkur
hús og eignuðumst þrjú börn saman en
þau heita Karl Jóhann, Ida og Andrea
og lífið gekk sinn gang. Enn svo kom
að því að leiðir okkar hjóna skildu. Ég
flutti mig þá til í bænum okkar, keypti
mér íbúð og hélt áfram að kenna.
Ég fór reglulega til Íslands í fríum og
hitti þá um verslunarmannahelgi á
Síldarævintýri 1994 konu sem heitir
Svala Jósepsdóttir. Við Svala fórum
svo að vera saman og hún flutti síðan
til Noregs með tvær dætur sínar sem
þá voru sjö og þrettán ára, þær Hildur
og Auður en sonur hennar Pétur bjó
áfram á Íslandi. Það má því segja að
fjölskyldan hafi stækkað um nokkur
númer.
Lífið og tilveran
Ég er nú búinn að vera bráðum
búsettur í Noregi í þrjátíu og sex ár og
hef starfað við kennslu frá því að ég
Tólf ára á söngskemmtun.
Börn þeirra Péturs og Svölu.