Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2017, Page 23

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2017, Page 23
23Siglfirðingablaðið Tormóna varð Þórdís Þórdís Vala segir að Bragi hafi þótt fremur óstýrilátur á unglingsárunum. Ein var þó sú manneskja sem hann beygði sig alltaf fyrir og hlýddi skilyrðislaust. Það var Tormóna amma hans. „Pabbi mat ömmu sína mikils og vildi að ég bæri nafn hennar. Tormóna hafði hins vegar lagt blátt bann við því áður en hún dó að skírt yrði í höfuðið á henni vegna þess hvað nafn hennar var sérkennilegt. Pabbi fann leið framhjá því sem sýnir hugkvæmni hans. Hann hafði samband við fræðimenn við Háskólann og fékk ráð hjá þeim. Þeir sögðu að Tor væri sama nafn og Þór og Móna væri svipaðrar merkingar og dís. Þannig er nafnið mitt Þórdís tilkomið.“ Kærleikur og virðing Upp úr 1950 veiktist Harða af berklum og þurfti að dveljast langtímum saman á Kristneshæli í Eyjafirði. Þórdís Vala segir að til þess hafi verið tekið hvað Bragi hafi verið umhyggjusamur í veikindum móður hennar. „Hann fór oft að heimsækja hana jafnt sumar sem vetur, oft í slæmum vetrarverðum en þá var ekki öðrum farartækjum til að dreifa en póstbátnum. Þegar hún var fjarri vegna veikinda sendi hann henni bréf vikulega eða oftar. Ég held að hann hafi skrifað henni eitthvað á hverjum degi. Það ríkti mikil hlýja í samskiptum þeirra alla tíð og kærleikur og virðing. Ég minnist þess ekki að þau hafi hækkað róminn hvorki sín á milli eða í samskiptum við okkur systurnar. Þau kvörtuðu heldur aldrei yfir hlutskipti sínu þótt mamma hefði þurft að glíma við erfið veikindi.“ Hagyrðingur og ljóðskáld Bragi var mjög lipur hagyrðingur og eftir hann liggja margar lausavísur. Einnig birtust eftir hann ljóð og smásögur í blöðum og tímaritum. Eitt ljóða hans, „Eins og bæjarlækurinn“, fylgir þessari grein en það birtist í Lesbók Morgunblaðsins. Þórdís Vala segir að vænst þyki sér um kvæði og þulur sem Bragi orti til eða um dætur sínar og barnabörn. Þessi kvæði voru gjarnan myndskreytt. „Hann orti fallegt kvæði sem nefnist „Mamma litla“ er hann horfði á Sirrý leika sér að brúðu. Jón Ásgeirsson, tónskáld og hálfbróðir pabba, samdi lag við kvæðið og hefur það verið sungið í útvarpið. Þá orti hann undurfallegt kvæði til dóttur minnar en hún heitir í höfuðið á móður minni sem var yndisleg kona. Kvæðið kallar hann „Vögguvísu Hörðu litlu“. Þetta eru sex heilræðavísur og endar hver vísa á orðunum „vertu eins og hún amma þín...“ og svo bætir hann við „...allra kvenna blíðust“ eða „...allra kvenna fegurst“ allt eftir efni hverrar vísu. Hann samdi fallegt kvæði um Gústa guðsmann sem nefnist „Maríuleiði“, en það merkir að sigla góðan byr. Hann gaf Gústa kvæðið ásamt teikningu af bátnum Sigurvin sem Gústi reri á.“ Bragi og Harða með dætrum sínum Systu og Sirrý. Myndin er tekin 1957 sú eina af þeim saman.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.