Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2017, Page 25

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2017, Page 25
25Siglfirðingablaðið Sumir eiga sér drauma Bragi var að mestu sjálfmenntaður en eflaust hefði þessi fjölhæfi maður farið í langskólanám nú á tímum. „Foreldrar mínir höfðu bæði hæfileika til náms en þeim stóð það ekki til boða. Pabbi skrifaði og talaði góða ensku. Einnig var hann vel að sér í norsku og þýddi meðal annars úr því máli. Í einu kvæða pabba segir að sumir eigi sér drauma. Hann talaði þó aldrei um drauma sína en ég held að þeir hafi komið fram í áhugamálum hans.“ Þörf á yfirlitssýningu Hér hefur verið drepið á margt það helsta í lífi og starfi Braga Magnússonar. Þórdís Vala segir að enn sem komið er hafi verk Braga, ritsmíðar og teikningar, ekki verið tekin saman í heild. Full þörf sé á því og gera jafnframt verk hans aðgengileg fyrir þá sem áhuga hafa. „Pabbi var byrjaður að safna verkum sínum saman en lauk því ekki. Hann hafði gengið frá yfir 100 skopmyndum í möppu og nafngreint alla þá sem þar eru. Hann hafði einnig lesið nokkur kvæði sín inn á segulband. Við eigum bókina Glettur og kvæði og teikningar eru einnig víða til hjá ættingjum og afkomendum. Sumt af þessu hefur birst á prenti. Við höfum líka fundið ljóð eftir hann á lausum miðum. Það væri við hæfi að efna til yfirlitssýningar á verkum pabba á Siglufirði og vonandi tekst að koma því í kring,“ segir Þórdís Vala. Efri röð frá vinstri: Þórir Konráðsson, Vilhjálmur Sigurðsson, Sveinbjörn Tómasson, Björgvin Bjarnason, Jónas Ásgeirsson, Geiri Gústa. Miðröð frá vinstri: Jón Skaftason, Alfreð Jónsson, Jóhannes Hjálmarsson, Jóhann Möller. Neðsta röð frá vinstri: Bragi Magnússon, Jón Engilbert Sigurðsson, Stefán Skaftason. Sundlaug Siglufjarðar, vígsla, talið frá vinstri neðri röð: Snorri Jónsson, Jóhannes Jónsson, Helgi Sveinsson, Bragi Magnússon, Jósef Flóventsson, Helgi Hallsson. Frá vinstri aftari röð: Henning Bjarnason, Heiðar Pétursson, Skarphéðinn Guðmundsson, (Heddi) Arnold Bjarnason, Vigfús Guðbrandsson og Jón Hallsson. Ég kem af fjallinu inn í föla birtu rökkursins af fjallinu úr hvítri kyrrð þagnarinnar úr bjarma sólarinnar inn í blátt ljósið við bæjarlækinn sem hjalar og hjalar. Eins og bæjarlækurinn Hjalaðu við mig hljótt eins og bæjarlækurinn. Leggðu svala hönd þína á heitt enni mitt meðan ég hverf inn í mjúkan svartan faðm svefnsins. (Bragi Magnússon. Ljóðið birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1996.)

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.