Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2021, Blaðsíða 3

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2021, Blaðsíða 3
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið4 5 Kalla voru komnir á stærri bát og Guðbjörn hafði fjárfest í rassmótor og “hjálpað” Konna einu sinni sem oftar í þokuslæðingi við netin þá sjá þeir þegar þokunni létti að Konni leggur frá og stefnir yfir fjörðinn. Þá voru þeir með silunganetin þvert yfir bátinn og þurftu að vera fljótir að losa sig. Þá fer mótorinn ekki í gang, og þetta er svona spennumyndamóment, og í þann mund að mótorinn tekur við sér kemur Konni á fullri ferð á trillunni og sér veiðiþjófana. Einhverju sinni eru þeir Steini hjá Gvendi í Bænum, móðurbróður Guðbjörns, en Konni nágranni hans sér þar pörupiltana. Hann snarast að þeim með haglabyssu, silungsþjófarnir taka á sprett og Konni lætur höglin vaða. Guðbjörn var í nýrri úlpu og púðurskotið náði að bræða plastið í úlpunni! Ljósakúpan Svo kom að því að Guðbjörn kvaddi Barnaskólann og hélt á vit nýrra ævintýra í Gagnfræðaskólanum við Hlíðarveginn. Þar réði ríkjum Jóhann Jóhannsson skólastjóri. Einhverju sinni er Guðbjörn seinn fyrir og Jóhann að læsa skólanum. Guðbirni þykir þetta heldur klént, enda kannski tímamismunur á suðurbæ og norðurbæ. Jóhann er að ganga frá hurðinni og Guðbjörn bankar en stjóri virðist ekkert heyra! Þá grípur Guðbjörn kúst sem þarna var og ætlar að láta heyra betur í sér en svo illa vill til að hann rekur kústhausinn upp í ljós yfir hurðinni og brýtur það í mél! Þá kom heyrnin til Jóhanns eins og fyrir kraftaverk og hann snýst á hæl og opnar en byrjar strax á skömmum og segir að Guðbjörn verði að borga ljósið! Guðbjörn jánkar því en getur lítið einbeitt sér að náminu þann daginn  sífellt hugsandi um hvað ljósið kosti! Um kvöldið fer hann í könnunarleiðangur ásamt Steina Kalla vini sínum og þeir uppgötva fljótt að ljósakúpan norðanmegin á skólanum er alveg eins. Þeir hafa því hraðar hendur og skipta um bæði peru og kúpul en leggja leifarnar af anddyrisljósinu við innganginn norðanmegin. Stjóri verður ákaflega glaður  þegar hann sér nýtt ljós og þakkar Guðbirni fyrir en lætur þess jafnframt getið að einhverjir ribbaldar hafi brotið ljósið yfir norðurdyrunum! Átök sem enduðu vel Eins og komið hefur fram var Guðbjörn sterkur og fyrirferðarmikill strákur. Guðbrandur Magnússon kennari var skapstór og átti það til eins og Guðbjörn orðar það að rjúka upp og varð þá eins og indíáni með ör í bakinu. Einhverju sinni var Guðbjörn búinn að  ganga vel á þolinmæði Guðbrandar. Skiptir þá engum togum að þeir takast á inni í tíma og strákurinn hefur kennarann undir. Allir krakkarnir eru farnir dauðskelkaðir út úr stofunni og Jóhann skólastjóri kominn á vettvang og þeir rísa á fætur og stjóri biður þá að finna sig á skrifstofunni. Þegar þangað er komið segir Guðbrandur við Jóhann: „Leyfðu mér að tala við hann einan.“ Þá er Guðbjörn alveg með það á hreinu að nú séu dagar hans í skólanum taldir en Guðbrandur gengur að honum, tekur í hönd hans og segir: “Fyrirgefðu, þetta var mín sök!” Eftir þetta urðu þeir bestu vinir! Sjávarborg og fleira Neðan við Laugarveginn  hófu ungir athafnamenn smíði staurakofa í fjörunni, Árni Þórðar segir Leó Óla svo frá: “Mig minnir að upphafið hafi verið með þeim hætti að við vorum nokkrir strákar á samkomu í Herkastalanum og þar voru sýndar myndir af kofum sem voru byggðir á staurum úti í sjó. Þetta þótti okkur alveg rosalega flott og við vildum endilega reyna þetta líka. Það voru því í framhaldinu nokkrir guttar af Laugarvegsendanum sem stóðu saman að þessu framtaki, þ.e. ég, Þórður bróðir, Kiddi og Árni Haralds, Baddi og Kjartan Óla, Maggi Ben, Brandur Jóns, og Bjössi Ingiborgar, vonandi gleymi ég engum. Við byrjuðum á því að ná okkur í tóma kapalrúllu á haugunum og rúlla henni suður Leirurnar. Þar var hún lögð á hliðina og varð undirstaða byggingarinnar. Við drógum að okkur allt það timbur sem við náðum í. Mikið af því kom úr snurpunótarbátunum á Langeyrinni, en auðvitað alveg heill hellingur af haugunum. Á þessum tíma var Jón Björnsson að byggja og hann gaf okkur hálffulla tunnu af bognum nöglum úr uppslættinum sem var mikil búbót og entist okkur lengi. Syðsta hverfi Siglufjarðar Laugarvegshverfið iðaði af lífi og fjöri GUÐBJÖRN HARALDSSON handlaginn og hugmyndaríkur forsprakki hrekkjalóma fór þar fremstur Guðbjörn Haraldsson ætt og uppruni. Ástfinna, Ásta, Pálsdóttir fæddist á Siglufirði 16. október 1916. Hún lést 2003. Foreldrar hennar voru: Páll Guðmundsson vélstjóri, f. 1875, d. 1948 og Halldóra Stefánsdóttir húsfreyja f. 1882, d. 1964, oftast nefnd Páll og Halldóra í Bænum. Ásta var 10. í röð 15 systkina. Vegna veikinda Halldóru var Ástfinnu komið á heimili ekkilsins, Björns Pálssonar, útgerðarmanns, f. 1860, d. 1948 og barna hans, Suðurgötu 28, heimilið var oftast var nefnt Þönglaskáli. Árið 1946 kynntist Ásta manni sínum Haraldi Albertssyni bifreiðastjóra, f. 10. ágúst 1906, d. 9. okt. 1983. Synir þeirra eru: 1) Guðbjörn, f.1948,  2) Kristján Flóvent, f. 1952,  3) Árni Valgarð, f. 1955. Ásta og Halli byrjuðu búskap sinn við Grundargötu í húsi sem nú er horfið, gegnt Bílaverkstæðinu Neista. Fljótlega flutti fjölskyldan á Laugarveg 42 í hús sem Gestur Pálsson og fjölskylda hafði byggt eftir að hús þeirra, Vindheimar, skemmdist í ofsaroki. Erum við því syðst í því hverfi sem fjallað er um í þessari grein. Laugarvegurinn og Hafnartúnið frá Vennastígnum og Suðurgatan að Laugarvegsenda. Það var alveg sama við hvern var rætt alltaf bar nafn Guðbjörns á góma. Það má segja að hann hafi verið foringi þessa hverfis þó að synir Jóns Guðjóns og Báru bærust í tal; Onni og Ómi; Gutti og Addi; Örn og Már. Óblíðar móttökur Guðbjörn byrjaði að segja frá skólaárum sínum en fljótt kom í ljós að hann rakst ekki vel í skóla, a.m.k. ekki að mati skólastjórnenda. „Einu sinni í brjálaðri norðanstórhríð erum við Steini Kalla á leið í skólann, og ekki þarf að taka fram við reynda Siglfirðinga að elstu menn muna ekki eftir að gefið hafi verið frí í siglfirskum skólum vegna veðurs, og sækist ferðin seint því að stormurinn var í fangið. Steini snýr við á Laugarvegsendanum en ég göslast þetta áfram. Þegar mig ber að dyrum skólans eru allir farnir inn og Hlöðver að loka en hann mat mér ekki til tekna að hafa hætt lífinu til að komast í skólann. Hann hristi mig óþyrmilega og las vel yfir mér. Það fer seint úr minninu.“ Moskvulína frá Laugarveginum Hlöðver skólastjóri var nágranni minn og bjó ásamt Kat rínu konu sinni í svokölluðu kennarahúsi með Bene dikt Sigurðssyni (Benedikt barnafræðari var góður maður sagði Gústi guðsmaður) og Fríðu konu hans á efstu hæð og Rósu kennara og manni hennar Eiríki Eiríkssyni prentara á neðstu hæðinni. Hlöðver og Benedikt voru framarlega í Sósíalistaflokknum og síðar Alþýðubandalaginu. Mikið var um að vera í heims­ málunum á þessum árum og línan frá Moskvu varð að vera alveg a hreinu. Sölvi Guðnason fékk lóð við hliðina á foreldrum Guðbjarnar, keypti hús, sem hann sagaði í tvennt og flutti á Laugarveginn. Var efri hæð hússins lengi á lóðinni og auðvelt að fara upp á þakið. Benedikt kennari fékk að setja loftnet frá efstu hæðinni í skorsteininn á hálfu húsinu til að ná betur fréttum frá Ráðstjórnarríkjum af Krússjeff og félögum. Guðbjörn og Steini komust brátt að því að með lagni mátti slá glerkúlu á enda loftnetsins í rúðuna hjá Bensa. Við samtöl við son Benedikts komust þeir að því að það sé draugagangur í suðurstofunni! Og jókst þá bankið frekar en hitt! Næst sjá þeir félagar að sr, Ragnar Fjalar kemur í heimsókn og spyrja Magga Ben. þá að því hver sé látinn? En fá brátt þær fréttir að Fríða hafi kallað á sérann vegna draugagangsins í Suðurstofunni! Dró síst úr banki og skruðningum við þessar fréttir. Silungsveiði við Skoger Guðbirni og félögum á Laugarveginum féll sjaldan verk úr hendi. Þetta voru kraftmiklir strákar sem þurftu að hafa nóg að gera og smíðuðu brátt bát sem þeir réru um á innfirðinum í bland við kajakaróður. Guðbjörn vissi af silunganetum sem Konni Konn hafði lagt skammt frá flakinu af Skoger og eins og Guðbjörn orðaði það þá hjálpaði hann oft Konna að losa silung úr netunum! Ásta mamma hans var alltaf glöð þegar Guðbjörn kom úr þessum ferðum og hrósaði syni sínum fyrir dugnaðinn. Konni vissi lítið af þessari hjálpsemi og eftir að þeir Steini Guðbjörn orðinn sjómaður á Hafliða SI 2, aðeins 14 ára gamall. Steini Kalla og Guðbjörn um borð í báti sem Steini átti um 1977. Þennan bát smíðaði Guðbjörn í kjallaranum á Laugarvegi 42.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.