Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2021, Side 5

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2021, Side 5
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið8 9 Þegar ég fer að hugsa til baka og rifja upp þessi ár fyrir norðan, er nokkuð ljóst að ég hef bæði verið ofvirk og sennilega eitthvað fleira. Þá var ekki einu sinni búið að finna upp orðið og ritalinið ekki komið til sögunnar svo ég slapp til allrar hamingju við það. En að flytja af Tún­ götunni og suður á Laugarveg var eins og að komast langt út í sveit. Leiksvæðið stækkaði og varð bæði fjölbreyttara og skemmtilegra. Maður fékk eiginlega að ólmast úr sér þennan aukakraft og vera maður sjálfur í mun náttúru­ legra umhverfi en innan um brotajárnið í Mjölhús­ portinu. Ég man vel eftir að ég fór einhverju sinni í heimsókn í Hlíðarhús, en þar bjuggu tvær ömmusystur mínar. Sigríður sem var kona Snorra framkvæmdastjóra Rauðku og Ólöf mamma Grétu konu Óla Blöndal í Aðalbúðinni og síðar á bókasafninu. Þar kom að mér var hleypt inn í stássstofuna í fyrsta skipti og þótti þá ekki hættandi á annað en mér yrði fylgt eftir hvert fótmál til að gæta þess að ég skemmdi ekkert eða bryti. Svo var fiktið, forvitnin og æðibunugangurinn í mér öllum vel kunnur og greinilega ekki að góðu einu. Það var mikið farið í fjallið á veturna og þá gjarnan með krossviðarplötu sem stundum hafði verið hituð og beygð í endann. Á svona plötu gat setið heil hjörð af krökkum og þegar skriður var kominn á hana með krakkahópnum á, var hún auðvitað alveg óstöðvandi og algerlega stjórnlaus. Það varð því allt undan að láta sem fyrir okkur varð og við gátum þess vegna alveg eins endað ofan í fjöru. Við fórum stundum saman heill hópur af krökkum og fundum stórar snjóhengjur til að stökkva fram af. Leiðin lá þá oftast upp í gilin í fjallinu fyrir ofan suðurbæinn og þar á meðal hin stórhættulegu Strengsgil. Við gerðum okkur auðvitað enga grein fyrir hættunni því þetta var svo geðveikt gaman. Svo var mikið haldið til á ísnum á Leirunum og jakahlaupin voru gríðarlega spennandi þrátt fyrir að stundum yrðu slys og skautasvellið á Langeyrartjörn var mjög vinsælt. Steinprammarnir frá stríðsárunum höfðu líka mikið aðdráttarafl. Þangað var oft róið á kajak og klifrað um borð. Það var líka gaman að vera úti við eftir að dimma tók og minningarnar frá síðkvöldunum fyrir norðan eru alveg ógleymanlegar. Þá lagðist maður í mjöllina og bjó til engla meðan alstirndur himinninn glitraði og norðurljósin fóru í stórfiskaleik um himinhvolfið. Á sumrin var farið í þessa hefðbundnu leiki svo sem slá­ bolta, yfir, fótbolta, alls konar eltingarleiki og fleira í þeim dúr, en við fórum líka mikið í fjallgöngur og þá var yfirleitt farið hátt upp. Það var líka sótt á Langeyrina með krukkur fyrir hornsílaveiðar og jafnvel silungsseiðaveiðar. Stundum stífluðum við gömlu sundlaugina fyrir sunnan syðstu húsin við Laugarveginn og hún fylltist af vatni. Þá var mikið buslað og synt og alveg rosalegt stuð. Þarna voru oft að leik með okkur systrunum bræðurnir Tommi og Óli Hertervig, Kara Jóhannesar og Hjalli bróðir hennar, Jón Heimir flautuleikari, Guðbjörn Haralds og fleiri og fleiri. Það var líka mikið sport að fara niður á bryggjurnar og pilka, en sumir strákarnir mættu vopnaðir heimatilbúnum skutlum og skutluðu rauðmaga sem héldu sig við bryggjustaurana. Harðfiskfengurinn hífður uppá aðra hæð! Svo vorum við alveg gríðarlega miklar harðfiskætur, en stundum var settur kvóti á okkur. Þá var gripið til þess ráðs að laumast í hjallinn hinum megin við götuna og krækja sér í fisk.  Svo læddumst við með fiskinn að húsveggnum. Síðan var slakað bandi niður úr kvistglugganum að norðaustanverðu og fengurinn hífður upp. Þá gat veislan hafist og ég er ekki frá því að fiskurinn sem kom í hús þessa leiðina hafi verið heldur betri á bragðið en sá sem kom hina hefðbundnu leið inn um dyrnar.” Guðbjörn gat bætt við þessa sögu: “Eitt sinn vorum við Dísa heldur stórtæk og tókum fisk af tveimur rám í hjallinum sem var í eigu Jósa og Bödda. Þetta var svo mikið að við gripum til þess ráðs að hífa þetta uppí herbergi Dísu á nr. 35. Ég fékk bakþanka og var viss um að nú yrðum við nöppuð því að það stórsá á fiskbirgðunum. En um nóttina gerði stórhríð og viti menn­ snjóflóð féll á hjallinn og þar með fóru öll sönnunargögn um þennan stórglæp fyrir bí!” Öskubíll húrrar niðrí garð Í siglfirskri ófærð voru bara örfáir bílar á ferð; Verslójeppinn, Landrover Gests Fanndal, olíubílarnir og svo öskubíllinn sem þurfti auðvitað að losa sorp frá húsum úr þar til gerðum öskutunnum. Tveir menn höfðu þann starfa á þessum árum Teddi og Sveinn, með viðurnefnin í öskunni, og bílstjórinn var Árni stjúpfaðir Steina Kalla. Eitt sinn tók ég mig til og stal varadekkjum af vörubílnum pabba og rúllaði þeim út að húsi Halla Árna. Við vorum þá búnir að fylgjast með öskubílnum fikra sig inn Laugarveginn og gekk mikið á í ófærðinni og ekki allt á lágu nótunum. Við félagarnir gerðum för með dekkjunum eins og þar hefði verið bíll á ferð að garði Halla Árna. Þegar öskukallarnir höfðu losað sorp  frá Óla löggu og Jóni og Ingiborgu þá ætlar Árni að snúa við áður en hann fer sunnar þar sem ekki hægt að gera. En okkur var hálfilla við sanddæludýpin tvö hvort sem við vorum siglandi, gangandi eða skautandi. Annað var meðfram öllum nýja flugvellinum, en hitt út af Langeyrinni. Á stórstraumsfjöru var hægt að ganga nánast þurrum fótum yfir fjörðinn, en sandbotninn var mjög bleytukenndur við dýpin. Mig minnir að það hafi verið Árni Haralds sem einhverju sinni hætti sér aðeins of nálægt barminum og festist ofan í sandinum. Við gátum þó náð honum upp þar sem hann var kominn í frekar vond mál, orðinn blýfastur og sökk alltaf dýpra og dýpra. Innfjörðurinn og næsta nágrenni hans voru algjör paradís fyrir krakka, ég fer ekki ofan af því. Löggan gatar kajakana Guðbjörn man eftir rassíu sem löggan gerði á innfjarðarfjörunni. Það komu nokkrar löggur með hagla­ byssur og skutu í botninn á kajökunum sem þar voru í nausti. Þetta varð til þess að Egill Melsted, sem rak reiðhjólaverslun á Aðalgötunni, fékk nokkrar hringingar dag eftir dag innan úr Fljótum, þar sem viðkomandi spurði um ýmsar stærðir af dekkjum og  slöngum sem Egill hafði nánast aldrei heyrt minnst á og var þar af leiðandi lengi í símanum að athuga lagerinn. Á meðan hreinsuðu Guðbjörn og félagar það sem til var af mutteringum og slöngubótum úr búðinni. Eða eins og Guðbjörn segir “aðgerðir löggunnar höfðu í för með sér miklu meiri glæpaöldu í miðbænum en þekkst hafði!” Tryggvi rafveitustjóri var menntaður í Austur­Þýzkalandi og íhaldið bendlaði hann og nokkra vinstri menn sem höfðu lært austan við járntjaldið við Stasi Austur­Þýzku leynilögguna. Blaðið Siglfirðingur fékk teiknarann snjalla Ragnar Pál til að teikna þesa skopmynd af Tryggva þegar hann var kominn til Siglufjarðar og í framboði fyrir Alþýðubandalagið. Tryggvi var snar í snúningum og Guðbjörn hinn hrekkjótti foringi Laugarvegarins komst oft í hann krappan þegar Tryggvi fór 100 metrana á undir 10 sek. þegar barið var hastarlega á dyrnar rafveitustjórans að kvöldlagi. En Guðbjörn sá við þessu eins og fleiru og náði að loka ytri dyrunum sem opnuðust út svo kyrfilega að Tryggvi varð að játa sig sigraðan og þurfti að hringja í vin til að losa sig úr klípunni. Oft kom það fyrir að maður vaknaði hugsandi um hvað skyldi hafa fyrir stafni þann daginn. Eitt sinn mundi ég eftir því að ég hafði dirkað upp hurðina á spennistöðinni sem var við hliðina á húsinu. Ég brá mér strax út og sló út Suðurbænum. Beið svo í glugganum eftir að flokkur Rafveitunnar kæmi keyrandi til að tékka á hvaða línur hefði slitnað!” Dísa Þórðar var nágranni Guðbjörns og hafði flutt úr villi mannahverfinu á Laugarveginn: Það sem ég man helst eftir úr Villimannahverfinu er strákastóðið, sem átti heima þarna í næstu húsum m.a. þeir bræður Örn og Eiríkur Snorrasynir og Lýður og Gylfi Ægissynir og svo Dóri hennar Siggu. Það var hún sem argaði á hann út um opinn gluggann hin fleygu orð, “í háskólann skaltu helv… þitt því nógar hefurðu gáfurnar.” Það var mikið sport hjá okkur litlu krökkunum að stelast undir girðinguna vestan við Mjölhúsið sem var þá stærsta hús á Íslandi. Þegar inn í portið kom lá leiðin auðvitað beinustu leið upp stigana sem lágu upp á tankana og mömmurnar í hverfinu urðu eðlilega frávita af hræðslu þegar þær sáu til okkar. En á þessum tíma vissum við ekkert hvað lofthræðsla var. Svo áttum við það líka til að nota okkur kaðlana sem voru þarna og spranga svolítið utan á tönkunum. Tunnuverksmiðjan var næsta hús við Mjölhúsið og þar var Ástvaldur pabbi hans Heiðars danskennara. Hann var alveg ógurlega góður kall og mikill vinur minn og gaf mér marga spýtuna og hún Sigrún konan hans Halla Þór var stórvinkona mín og óskaplega góð við mig. Ég átti þó nokkuð marga fullorðna vini þarna í hverfinu. Eins og þeir vita sem til þekkja, sker húsið á Laugarvegi 35 sig verulega úr götumyndinni því það snýr einu horninu að götunni. Svona vildi pabbi hafa þetta því hann gerði sér grein fyrir snjóflóðahættunni úr fjallinu fyrir ofan. Ég veit ekkert hvernig þetta hefur farið saman við bæjarskipulagið en hann var nú ekki mikið fyrir að bakka með hugmyndir sínar ef hann var búinn að ákveða hvernig hlutirnir áttu að vera. Hann átti líka lóð ofan við götuna þar sem hann reisti fiskhjall án þess að spyrja nokkurn mann og ég man að það varð heilmikið vesen út af því. Nokkrar konur í nágrenninu óttuðust að nú yrði alveg ólíft þarna vegna flugu og löggan var talsvert á ferðinni út af hjallinum, en hann reis nú samt og stóð lengi. Þennan bíl smíðaði Guðbjörn í kjallaranum á Laugarvegi 42 og setti á hann gamalt númer sem Halli Alberts hafði aflagt. Tryggvi rafveitu­ stjóri var í fram­ boði fyrir Alþýðu­ bandalagið.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.