Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2021, Blaðsíða 10

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2021, Blaðsíða 10
Siglfirðingablaðið Siglfirðingablaðið18 19 Saltað í 65.575 tunnur Mannlífið var fjölbreytt og þótt bara örlítið sé tiltekið þá höfðu foreldrar þessara barna sem á myndinni eru margt fyrir stafni og lögðu drjúgan skerf til bæjarmála. Mæðurnar allflestar með húsmóðurtitla og þátttakendur í félagsmálum og tóku svo til hendinni í síldarsöltun á sumrin. Þær einhleypu voru útsjónarsamar, ein tók kost­ gangara og fjármagnaði þannig framhaldsnám barna sinna, önnur sá m.a. um ljósaböðin í skólanum. Feðurnir voru í ýmsum störfum s.s. verkamaður, kennari, rakari, framkvæmdastjóri, útgerðarmaður, síldarsaltandi, póst­ afgreiðslumaður, símritari, bílstjóri, húsasmiður. Einn þeirra gladdi okkur með söng sínum og hvatningu um að aftur kæmi vor í dal. Annar var einn af þeim sem vann ýmis afrek á skíðum og lyfti upp geði fólks á löngum vetrardögum. Ekki þarf að fjölyrða um síldina, vinnu við hana og áhrif hennar á allt mannlífið á þessum árum en sumarið 1948 var saltað á Siglufirði í 65.575 tunnur! Það er alveg á hreinu í hvaða vinnu það sumar fór. Bæjarlífið var fjölbreytt og allir sem gátu tóku þátt í því. Börnin á myndinni hafa eflaust verið alin upp með það í huga og hafa plumað sig vel í sínum störfum. Menn syngja, smíða, reka fyrirtæki, kenna, sinna bókhaldsstörfum og fleira gagnlegt. Við getum sagt með stolti um þau eins og marga aðra; Hann/hún er Siglfirðingur! Bæjarblöðin þetta ár gefa okkur svo ýmsar upplýsingar um aðra þætti lífsins, mismerka. Kurt Sonnenfeld opnaði tannlæknastofu. Þórir Konráðsson hætti að starfrækja Hertervigsbakarí og við tóku Kaj Rasmussen og Jóhann Marel Jónsson. Við hinar ágætustu undirtektir voru hvítasunnutónleikar hjá Daníel Þórhallssyni og Sigurjóni Sæmundssyni með undirleik Ragnars Björnssonar. Hæstu skattgreiðendur 1948 vegna tekna ársins 1947 voru Söltunarfélag Kaupfélagsins og Þorgrímur Brynjólfs- son Túngötu 1. Hann seldi fisk, kjöt og vefnaðarvöru. Gústi Guðsmaður hóf trúboð sitt. 3. júlí áttu merkisafmæli mæðginin á Steinaflötum. Geirlaug Sigfúsdóttir 66 ára og synir hennar Helgi og Sigurjón Sveinssynir þrítugir. Hallbjörg Bjarnadóttir hélt tónleika í Nýja bíó 21. júlí. Kom úr söngnámi í Englandi á leið til Bandaríkjanna í frekara framhaldsnám. Þorsteinn Hannesson var ráðinn í Covent Garden óperuna og söng þar m.a. söng Radamesar í Aida eftir Verdi. Eitt glæsilegasta fiskiskip íslenska flotans, Ingvar Guðjóns- son, lagði að bryggju 17. júlí. Það var smíðað í Svíþjóð, eitt hundrað áttatíu og sex smálestir. Búið öllum nýjustu tækjum og vistarverur skipverja hinar fínustu. Stærsta skip sem siglt hefur gegnum Vänern til Vättern. Kostaði fullbúið heila milljón króna. Barnastúkan Eyrarrós nr. 68 átti 25 ára afmæli. Gæslumaður frú Þóra Jónsdóttir og aðeins einn af stofnendum var ennþá í barnastúkunni, frú Friðþóra Stefánsdóttir. Laukur auglýstur í Kjötbúð Siglufjarðar og fljótandi sápa í Apótekinu. Hálfs lítra flaska á sjö og fimmtíu. Á vordögum 2020 birtist í Sigfirðingablaðinu mynd af boðsgestum í 60 ára afmæli Helga Daníelssonar árið 1948. Boðið var upp á þorramat og gestirnir í yngri kantinum, allt nágrannar Helga og Guðbjargar konu hans. Skömmu eftir þessa birtingu kom ábending um að veislurnar hefðu verið tvær og ritstjórninni barst mynd af hinum hópnum. Allir voða sætir og fínir og engin ástæða til að birta ekki þessa mynd líka. Sú sem þetta skrifar þekkir mun færri á þessari mynd en á hinni fyrri og ég held að ástæðan sé sú að fólk hafi flutt af brekkunni og farið í annað húsnæði víðs vegar um bæinn. Ykkur verður því að mestu hlíft við sjálflægri frásögn minni eða myndum af mér með þessum pistli. Börnin á þessari mynd eru fædd á bilinu 1935­1946 og nokkuð er um systkini. Flest eru af Hverfisgötunni enda nokkur stór hús þar t.d. nr. 4, 5. Önnur börn eru af Lindargötu og Kirkjustíg. Lífsháski Helga hefur eflaust þótt ástæða til að halda vel upp á afmæli sitt, jafnvel árlega, því til er frásögn af því hvernig hann slapp úr miklum lífsháska í febrúar árið 1925, þá 37 ára gamall, þegar svonefnt Halaveður gekk yfir landið og miðin. Það er talið eitt versta og mannskæðasta óveður sem gengið hefur yfir landið í manna minnum Frásögn skrifuð eftir viðtali við Helga sjálfan birtist í bókinni Hrakningar á heiðavegum eftir Pálma Hannesson og Jón Eyþórsson og kaflinn um Helga heitir Hetjuför Helga Daníelssonar og er skráður 1. nóvember 1950 af sr. Gunnari Árnasyni. Í mjög stuttu máli segir þar frá ferð hans heiman frá honum, Enni í Viðvíkursveit, og suður yfir heiðar. Hann var búinn að ráða sig í vinnu hjá Togarafélaginu Kára sem hafði bækistöðvar í Viðey og ætlaði að standa sína plikt þrátt fyrir vonda veðurspá og úrtölur margra sem töldu þetta algjört feigðarflan. Hann hélt af stað í nýjum ullarfötum yst sem innst, nýjum loðjakka utan yfir, þrennum nýjum sokkum og hafði sauðskinnsskó á fótum. Með einn hest en ekkert nesti. Ekkert okkar hefur trúlega upplifað annað eins veður og geisaði þarna. Ekki sá út úr augum og hann villtist oft og lá við hrapi í gil og af heiðarbrúnum. Stundum gat hann fylgt símalínum. Hann svitnaði í erfiðinu og fötin frusu utan á honum þannig að hann átti erfitt með allar hreyfingar. Hesturinn kom honum að litlu gagni þar sem hann komst illa áfram í sköflunum. Helga hestavini datt í hug að lina þjáningar hestsins en komst ekki í niður í gadd freðinn vasann þar sem hann geymdi hnífinn sinn og áfram bösluðu þeir í blindhríðinni, rokinu og frostgaddinum. Oft kemur fram í frásögninni að Helgi hafði meiri áhyggjur af hestinum en sjálfum sér og m.a. dró hann hnakkinn á eftir sér til að búa til sneiðing fyrir hestinn. Hann kom hestinum svo fyrir í kofaræskni sem hann rakst á, breiddi yfir hann gæru sem hann hafði í hnakknum og hélt áfram ferðinni í blindu og roki. Til að stytta þessa hetjusögu sem sannarlega á rétt á sér til frásagnar rambaði hann á endanum á Fornahvamm þar sem vel var tekið á móti honum enda búið að láta vita af ferðum hans og menn beðnir um að athuga með hann þegar færi gæfist, en flestir töldu hann af. Hesturinn var sóttur daginn eftir og komið í hús en Helgi hélt áfram ferð sinni þegar veðrinu slotaði. Hann er talinn hafa sýnt ótrúlegt þor og þol í þessari ferð sem menn töldu að hann hefði ekki átt að takast á hendur, en vinnan kallaði. Já, það var full ástæða til að halda upp á afmæli. Finnst ykkur ekki eins og mér mjög merkilegt að á öllum myndum sem teknar hafa verið af fólki á Siglufirði á ýmsum tímabilum eru alltaf allir svo fínir, í fallegum fötum, vel greiddir, og bjart yfir fólkinu. Maður getur velt því fyrir sér hvernig efni í föt, tilbúin föt, skótau og tilbehör barst til landsins og bæjarins. Ekki skorti verslanirnar sem töldust árið 1948 vera sjötíu og af flestum gerðum, kannski öllum, og m.a. þrjár hattabúðir. Þá voru 160 ár frá því fyrsta verslunin í bænum hóf starfsemi. Sextugsafmæli Helga Dan og sitthvað smálegt 1948 Guðbjög og Helgi Dan prúðbúin á Gamalmennaskemmtun. Ljósmynd Steingrímur Kristinsson. Guðbjörg og Helgi í útreiðartúr við Laugarveg. Ljósmynd Kristfinnur. Siglfirðingablaðið16 Sextugsafmæli Helga Dan og Merkisatburðir 1948 Á vordögum 2020 birtist í Sigfirðingablaðinu mynd af boðs- gestum í 60 ára afmæli Helga Daníelssonar árið 1948. Boð- ið var upp á þorramat og gestirnir í yngri kantinum, allt ná- grannar Helga og Guðbjargar konu hans. Skömmu eftir þessa birtingu kom ábending um að veislurnar hefðu verið tvær og ritstjórninni barst mynd af hinum hópnum. Allir voða sætir og fínir og ngin ástæða til að birta ekki þessa mynd líka. Sú sem þetta skrifar þekkir mun færri á þessari mynd en á hinni fyrri og ég held að ástæðan sé sú að fólk hafi flutt af brekkunni og farið í annað húsnæði víðs vegar um bæinn. Ykkur verður því að mestu hlíft við sjálflægri frá- sögn minni eða myndum af mér með þessum pistli. Börnin á þessari mynd eru fædd á bilinu 1935-1946 og nokkuð er um systkini. Flest eru af Hverfisgötunni enda nokkur stór hús þar t.d. nr. 4, 5. Önnur börn eru af Lindargötu og Kirkjustíg. Lífsháski Helga hefur eflaust þótt ástæða til að halda vel upp á afmæli sitt, jafnvel árlega, því til er frásögn af því hvernig hann slapp úr miklum lífsháska í febrúar árið 1925, þá 37 ára gamall, þegar svonefnt Halaveður gekk yfir landið og miðin. Það er talið eitt versta og annskæðast óv ður sem gengið hefur yfir landið í man a minnum Frásögn skrifuð eftir viðtali við Helga sjálfan birtist í bókinni Hrakningar á heiða- vegum eftir Pálma Hannesson og Jón Eyþórsson og kaflinn um Helga heitir Hetjuför Helga Daníelssonar og e skráður 1. nóvember 1950 af sr. Gunnari Árnasyni. Í mjög stuttu máli segir þar frá ferð hans heiman frá honum, Enni í Viðvíkursveit, og suður yfir heiðar. Hann var búinn að ráða sig í vinnu hjá Togarafélaginu Kára sem hafði bæk- istöðvar í Viðey og ætlaði að standa sína plikt þrátt fyrir vonda veðurspá og úrtölur margra sem töldu þetta algjört feigðarflan. Hann hélt af stað í nýjum ullarfötum yst sem innst, nýjum loðjakka utan yfir, þrennum nýjum sokkum og hafði sauðskinnsskó á fótum. Með einn hest en ekkert nesti. Ekkert okkar hefur trúlega upplifað annað eins veður og geisaði þarna. Ekki sá út úr augum og hann villtist oft og lá við hrapi í gil og af heiðarbrúnum. Stundum gat hann fylgt símalínum. Hann svitnaði í erfiðinu og fötin frusu utan á honum þannig að hann átti erfitt með allar hreyfing- ar. Hesturinn kom honum að litlu agni þar sem hann komst illa áfram í sköflunum. Helga hestavini datt í hug að lina þjáningar hestsins en komst ekki í niður í gaddfreð- inn vasann þar sem han geymdi hnífin sinn og áfram bösluðu þeir í blindhríðinni, rokinu og frostgaddinum. Oft kemur fram í frásögninni að Helgi hafði meiri áhyggjur af hestinum en sjálfum sér og m.a. dró hann hnakkinn á eftir sér til að búa til sneiðing fyrir hestinn. Hann kom hestinum svo fyrir í kofaræskni sem hann rakst á, breiddi yfir hann gæru sem hann hafði í hnakknum og hélt áfram ferðinni í blindu og roki. Til að stytta þessa hetjusögu sem 5 Siglfirðingablaðið 15 Bæjarlífið var ölbreytt og all r sem gátu tóku þát í því. Börnin á myndinni haf eflaust verið alin upp með það í huga og hafa plumað sig vel í sínum störfum. Menn syngja, smíða, reka fyrirtæki, kenna, sinna bókhaldsstörfum og fleira gagnlegt. Við getum sagt með stolti um þau eins og marga aðra; Hann/hún er Siglfirðingur! Bæjarblöðin þetta ár gefa okkur svo ýmsar upplýsingar um aðra þætti lífsins, mismerka. Kurt Sonnenfeld opnaði tannlæknastofu. Þórir Konráðsson hætti að starfrækja Hertervigsbakarí og við tóku Kaj Rasmussen og Jóhann Marel Jónsson. Við hinar ágætustu undirtektir voru hvítasunnutónleikar hjá Daníel Þórhallssyni og Sigurjóni Sæmundssyni með undirleik Ragnars Björnssonar. Hæstu skattgreiðendur 1948 vegna tekna ársins 1947 voru Söltunarfélag Kaupfélagsins og Þorgrímur Brynjólfsson Túngötu 1. Hann seldi fisk, kjöt og vefnaðarvöru. Gústi Guðsmaður hóf trúboð sitt. 3. júlí áttu merkisafmæli mæðginin á Steinaflötum. Geirlaug Sigfúsdóttir 66 ára og synir hennar Helgi og Sigurjón Sveinssynir þrítugir. Guðbjög og Helgi Dan prúðbúin á Gamalmennaskemmtun. Ljósmynd Steingrímur Kristinsson sannarlega á rétt á sér til frásagnar rambaði hann á endanum á Fornahvamm þar sem vel var tekið á móti honum enda búið að láta vita af ferðum hans og menn beðnir um að athuga með hann þegar færi gæfist, en flestir töldu hann af. Hesturinn var sóttur daginn eftir og komið í hús en Helgi hélt áfram ferð sinni þegar veðrinu slotaði. Hann er talinn hafa sýnt ótrúlegt þor og þol í þessari ferð se menn töldu að hann hefði ekki átt að t kast á hendur, en vinnan kallaði. Já, það var full ástæða til að halda upp á afmæli. Finnst ykkur ekk eins o mér mjög merkilegt að á öll myndum sem teknar hafa verið af fólki á Siglufirði á ýmsum tímabilum eru alltaf llir svo fíni , í fallegum ötum, vel greiddir, og bjart yfir fólkinu. Maður getur velt því fyrir sér hvernig efni í föt, tilbúin föt, skótau og tilbehör barst til landsins og bæjarins. Ekki skorti verslanirnar sem töldust árið 1948 vera sjötíu og af flestum gerðum, kannski öllum, og m.a. þrjár hattabúðir. Þá voru 160 ár frá því fyrsta versl- unin í bænum hóf starfsemi. Saltað í 65575 tunnur Mannlífið var ölbreytt og þótt bara örlítið sé tiltekið þá höfðu foreldrar þessara barna sem á myndinni eru margt fyrir stafni og lögðu drjúgan skerf til bæjarmála. Mæðurnar allflestar með húsmóðurtitla og þátttakendur í félagsmálum og tóku svo til hendinni í síldarsöltun á sumr- in. Þær einhleypu voru útsjónarsamar, ein tók kostgangara og ármagnaði þannig framhaldsnám barna sinna, önnur sá m.a. um ljósaböði í skólanum. Feðurnir voru í ýmsum störfum s.s. verkamaður, kennari, rak ri, framkvæmdastjóri, útgerðarmaður, síldarsaltandi, póstafgreiðslumaður, símrit- ari, bílstjóri, húsasmiður. Einn þeirra gladdi okkur með söng sínum og hvatningu um að aftur kæmi vor í dal. Annar var einn af þeim sem vann ýmis afrek á skíðum og lyfti upp geði fólks á löngum vetrardögum. Ekki þarf að ölyrða um síldina, vinnu við hana og áhrif hennar á allt mannlífið á þessum árum en sumarið 1948 var saltað á Siglufirði í 65575 tunnur! Það er alveg á hreinu í hvaða vinnu það sumar fór. Guðbjörg og Helgi í útreiðartúr við Laugarveg. Ljósmynd Kristfinnur Hallbjörg Bjarnadóttir hélt tónleika í Nýja bíó 21. júlí. Kom úr sö gnámi í Englandi á leið til Bandaríkjan a í frekara framhaldsnám. Þorsteinn Hannesson var ráðinn í Covent Garden ó eruna og söng þar m.a. söng Radamesar í Aida eftir Verdi. Eitt glæsilegasta fiskiskip íslenska flotans, Ingvar Guðjóns- son, lagði að bryggju 17. júlí. Það var smíðað í Svíþjóð, eitt hundrað áttatíu og sex smálestir. Búið öllum nýjustu tækjum og vistarverur skipverja hinar fínustu. Stærsta skip sem siglt hefur gegnum Vänern til Vättern. Kostaði fullbúið heila milljón króna. Barnastúkan Eyrarrós nr. 68 átti 25 ára afmæli. Gæslu-

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.