Fréttablaðið - 17.05.2022, Side 1
Málefnalega snýst
þetta um stóru málin,
Borgarlínu og sam-
göngusáttmála.
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar og borgarstjóri
1 0 0 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 1 7 . M A Í 2 0 2 2
Kryfur
íslenska sögu
Didda er síðasti
móhíkaninn
Tímamót ➤ 10 Lífið ➤ 18
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/skodasalur
Škoda Kodiaq
Vinsæli ferðafélaginn!
Verð frá 7.590.000 kr. Eigum nokkra lausa bíla á lager!
Fjórhjóladrifinn, mjög vel útbúinn með 2.5 tonna dráttargetu
Fulltrúar flokkanna í borgar-
stjórn Reykjavíkur þreifa
nú fyrir sér um myndun nýs
meirihluta. Framsóknar-
menn virðast vera með bestu
stöðuna í þeim viðræðum.
bth@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Meirihlutar féllu víða
í sveitarstjórnarkosningunum um
helgina, meðal annars í Reykjavík
þar sem kjörnir fulltrúar ræða nú
um myndun nýs meirihluta.
Meirihluti Samfylkingarinnar,
Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna
missti samanlagt tvo borgarfull-
trúa og þar með meirihluta sinn í
borgarstjórn Reykjavíkur. Líf Magn-
eudóttir, borgarfulltrúi Vinstri
grænna, hefur sagst ekki sækjast
eftir að taka þátt í viðræðum um
nýjan meirihluta en fulltrúar hinna
f lokkanna þriggja segjast verða
samstíga í komandi viðræðum. Þar
sem Píratar hafa sagst ekki vilja
starfa með Sjálfstæðisf lokknum,
virðist ljóst að flokkarnir þrír þurfi
að leita samstarfs við Framsóknar-
flokkinn.
„Málefnalega snýst þetta um
stóru málin, Borgarlínu og sam-
göngusáttmála,“ segir Dagur B.
Eggertsson, borgarstjóri og oddviti
Samfylkingarinnar.
Einar Þorsteinsson, oddviti
Framsóknarflokksins, átti fundi í
gær með að minnsta kosti fjórum
oddvitum annarra flokka í borgar-
stjórn, þar á meðal Hildi Björnsdótt-
ur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, og
Degi. Einar sagði á Fréttavaktinni
á Hringbraut í gærkvöldi að Fram-
sóknarflokkurinn væri með mjög
skýrt umboð til pólitískrar forystu.
Hildur segir það ótrúverðugt hjá
Framsóknarf lokknum að mynda
meirihluta með gamla meirihlut-
anum, þar sem f lokkurinn hafi
talaði fyrir breytingum.
Í Garðabæ munaði tólf atkvæðum
á því að Garðabæjarlistinn næði inn
sínum þriðja manni á kostnað sjö-
unda fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
og krafðist listinn endurtalningar í
gær. Talið verður á morgun. SJÁ SÍÐU 6
Framsókn er í kjörstöðu í Reykjavík
Mikil mildi þykir að ekki fór verr laust fyrir klukkan tvö í gær þegar vinnulyfta losnaði af flutningabíl á aðrein þar sem Miklabraut og Hringbraut mætast í Reykjavík. Vinnulyftan lenti á eins góðum
stað og hægt var, olli hvorki slysi né miklum töfum á umferð. Hins vegar er ljóst að miklar skemmdir urðu á vinnulyftunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
KJARAMÁL „Ég hef nú rannsakað
þessi mál lengi og því ekki mikið
sem kemur mér á óvart í þessu,“
segir Stefán Ólafsson, prófessor
í félagsfræði og ábyrgðarmaður
Kjara frétta Eflingar sem komu út í
gær.
Hann segir þó hafa komið sér í
opna skjöldu hversu erfitt öryrkj-
ar, sem vilja bæta hag sinn með
atvinnuþátttöku samhliða lífeyris-
töku, eigi með að ná endum saman.
„Örorkulífeyrisþegi sem af lar
sér allt að 200 þúsund króna með
atvinnuþátttöku. Það kemur mér á
óvart hvað það bætir hag hans lítið,“
segir hann og bætir við að þetta sé
dæmi um ofurskerðingar. SJÁ SÍÐU 4
Aukatekjur hjálpa
öryrkjum lítið