Fréttablaðið - 17.05.2022, Page 2

Fréttablaðið - 17.05.2022, Page 2
Að þetta gamall maður hafi verið kosinn, ég man ekki eftir neinu slíku dæmi. Ólafur Þ. Harðar- son, stjórnmála- fræðiprófessor Sögulegar kosningar urðu um helgina hvað varðar framgang eldri borgara. Aldurshöfðingi þeirra sem náðu kjöri er á níræðisaldri. bth@frettabladid.is SAMFÉLAG „Ég man ekki í f ljótu bragði eftir neinum sem er eldri en Brynjólfur, eflaust hafa álíka gamlir menn verið á listum, oft í heiðurs- sætum, en að þetta gamall maður hafi verið kosinn, ég man ekki eftir neinu slíku dæmi,“ segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðipró- fessor. Framgangur eldri borgara í sveit- arstjórnarkosningunum náði hæstu hæðum um síðustu helgi. Brynjólfur Ingvarsson, sem hlaut glæsilegt kjör og fékk 12,2 prósenta fylgi á Akur- eyri sem bæjarfulltrúi fyrir Flokk fólksins, er á níræðisaldri. Af fleirum í kringum eftirlauna- aldur er það að segja að Guðmundur Árni Stefánsson í Hafnarfirði, þar sem Samfylkingin fékk fjóra menn, er fæddur 1955. Helga Jónsdóttir, fædd 1954, fékk mikið fylgi fyrir Vini Kópavogs og tvo menn kjörna. Páll Magnússon, fyrrverandi sjónvarps- stjóri og þingmaður, fæddur 1954, treysti stoðir meirihlutans í Eyjum. „Ég held að það sé mjög heppi- legt að í hópi kjörinna fulltrúa sé bæði ungt fólk og fólk sem komið er á virðulegan aldur. Mér sýnist að í síðarnefnda hópnum séu fleiri en nokkru sinni sem fara inn í bæjar- stjórnir eða eru mjög nálægt því,“ segir Ólafur. Brynjólfur Ingvarsson, aldurs- höfðingi á Akureyri, bjó sig undir reiðtúr þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær. Hann er á 81. ald- ursári, segist við góða heilsu, enda reyni hann að ganga daglega, synda eða ríða út. Brynjólfur segist þakklátur fyrir kjörið, enda sé mikilvægt að eldri borgarar hafi rödd meðal kjörinna fulltrúa. „Það er búið að ræða það í ára- tugi að aldraðir búi við áhyggju- laust ævikvöld en í seinni tíð verður margt eldra fólk sífellt áhyggjufyllra,“ segir geðlæknirinn Brynjólfur. Brynjólfur segir húsnæðismál aldraðra í lamasessi. Sá málaflokkur hafi einkum orðið til þess að hann fór fram. Úrræði milli þess að eldri borgarar búi í eigin einbýlishúsi og fari á stofnun vanti alveg. „Það þarf millistig,“ segir Brynj- ólfur. „Þetta er aðalverkefnið sem ég sé fram undan hjá mínum flokki,“ bætir Brynjólfur við og þakkar kjós- endum traustið. n Brynjólfur hefur pólitískan feril kominn á níræðisaldur Brynjólfur Ingvarsson geðlæknir ríður út daglega og segir það mikla heilsubót. Allt bendir til að hann sé elsti oddviti í kosningum innanlands sem nær kjöri. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Steinhella 17a / 221 Hafnarfjörður / s. 577 5050 / www.gluggasmidjan.is gæða veka PLaSTgLuggar • Útlit eins og timburgluggar • Henta mjög vel í gluggaskipti! • Þarf ekki að skrapa og mála eins og timburglugga! Gott verð og stuttur afhendingartími! Dagur mannréttinda helenaros@frettabladid.is VEÐUR Einstök veðurblíða var um allt land í gær og fór hitinn yfir nítján gráður á nokkrum stöðum. Á Brúsastöðum á Norðurlandi vestra mældist hitinn 19,5 gráður, á Húsavík 19,3 og í Ásbyrgi 19,1 gráða. Þorsteinn Jónsson, veðurfræð- ingur á Veðurstofu Íslands, segir kannski ekki verða alveg jafn hlýtt í dag en að hitinn geti þó farið upp í 19 gráður á sömu stöðum og í gær. Á höfuðborgarsvæðinu mæld- ist hitinn í gær hjá Korpu yfir 16 gráður. Útlit er fyrir aðeins lægra hitastig í dag vegna skýjaðs himins en búast má við um 14 gráðum og rigningu seinnipartinn að sögn Þorsteins. n Nær tuttugu stiga hiti nyrðra í gær Veðurblíða í Ásbyrgi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR 19,5 stiga hiti mældist á Brúsastöðum í gær. ragnarjon@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Í svari dómsmála- ráðherra, Jóns Gunnarssonar, við fyrirspurn þingmanns Pírata, Andr- ésar Inga Jónssonar, um þvingaðar brottvísanir frá landinu kemur ekki fram hvort fólki hafi verið gefin lyf til þess að auðvelda meðhöndlun þeirra sem fluttir eru úr landi. Að sögn Andrésar Inga kemur það á óvart að ekkert sé minnst á þetta atriði í svari ráðherra þar sem sér- staklega hafi verið beðið um upp- lýsingar varðandi það. „Sérstaklega er óskað upplýsinga um það hvort fólki hafi verið gefin lyf gegn vilja þess í þeim tilgangi að auðvelda yfirvöldum brottvísun- ina,“ orðaði Andrés fyrirspurn sína en svarið birtist í gær. Aðspurður segist Andrés ekki vita hvert hann eigi að snúa sér til þess að fá svör varðandi málið en íhugar þó að endursenda fyrirspurn sína með meiri áherslu á þetta tiltekna atriði. Í svari dómsmálaráðherra segir að heimilt sé að beita svokölluðu flutningsbelti þegar fólk er fjarlægt úr landi með valdi en lyfjagjöfinni var sleppt. n Andrés veit ekki hvert á að snúa sér Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti mannréttinda- og hvatningarverðlaun í gær við hátíðlega athöfn í Höfða á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar. Líf Magneudóttir, oddviti VG í Reykjavík, fylgist vel með Degi en hún hefur lýst því yfir að VG gefi ekki kost á sér í meirihluta í borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Andrés Ingi Jónsson, þing- maður Pírata 2 Fréttir 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.