Fréttablaðið - 17.05.2022, Side 6

Fréttablaðið - 17.05.2022, Side 6
3,7 prósent atkvæða fékk Miðflokkurinn í Garðabæ. Það sem þátttakendur uppskera: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu • Hugrekki til að segja sína skoðun óháð áliti annarra • Kjark til að tala um eigin líðan og annarra • Leiðir til að eignast vini, bæta samskipti og styrkja sambönd • Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri • Betra skipulag og skýrari markmið • Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun • Kveikja eldmóð og sýna seiglu Námskeið hefjast: 9 til 12 ára Leiðtogabúðir 20. júní 8.45-17.00 4 dagar í röð 10 til 12 ára 13. júní 9.00-13.00 átta virka dagar í röð 13 til 15 ára 13. júní 13.30-17.00 átta virka dagar í röð 16 til 19 ára 3. ágúst 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti 20 til 25 ára 30. maí 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti Komum sterk inn í sumarið Skráning á dale.is eða 555 7080 Ókeypis kynningartími dale.is/ungtfolk *Hægt er að nota frístundastyrki bæjarfélaga sem greiðslu - Youth_Ad_040722 bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL Meirihluti kjósenda í sameinuðu sveitarfélagi Þing- eyjarsveitar og Skútustaðahrepps hafnaði sitjandi meirihlutafull- trúum sveitarfélaganna tveggja í kosningunum um helgina. Tveir listar voru í framboði, E-listi og K-listi. K-listann leiddi oddviti Skútustaðahrepps, Helgi Héðinsson, sem jafnframt er vara- þingmaður f y rir Framsóknar- f lokkinn. Listinn fékk 47 prósent og fjóra menn kjörna. Nýja fólkið, E-listinn, fékk 53 prósent og fimm menn kjörna. Þar var fólk í efstu sætum sem ekki hefur setið í sveitarstjórnum í héraðinu undanfarin ár. Gerður Sigtryggsdóttir, full- trúi af E-lista, segir að meirihlutar úr báðum sveitarfélögum ásamt minnihluta í Þingeyjarsveit hafi sameinast um að bjóða fram saman undir merkjum K-listans. Því sæti útkoma kosninganna tíðindum. Gerður segir K-listann hafa goldið fyrir boðaðar breytingar sem hefðu þýtt að þrír sviðsstjórar væru ráðnir og þeir farið með vald sveitarstjóra ásamt einum kjörnum fulltrúa í stað eins sveitarstjóra, með auknu f lækjustigi og fjárút- látum. „Þetta hefði orðið gjörólíkt hefð- bundinni stjórnsýslu sveitarfélaga,“ segir Gerður sem kveður fulltrúa Íbúalistans þó hlakka til að starfa með fulltrúum minnihlutans. n Hugmyndir um bruðl hafi bylt sitjandi fulltrúum í Þingeyjarsveit Oddviti Framsóknarflokksins í borginni segir flokkinn hafa umboð til pólitískrar forystu. Oddviti Sjálfstæðismanna segir að stærsti flokkurinn eigi að fá borgarstjórastólinn. bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, vill ekki svara hvort til greina komi að hann og Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, skipti með sér borgar- stjórastólnum á kjörtímabilinu. Með öllu er óljóst hvort Einar Þor- steinsson hallar sér til hægri eða til vinstri við myndun nýs meirihluta í borginni. Framgangur annarra flokka er í höndum Einars en hann átti fundi í gær með að minnsta kosti fjórum oddvitum annarra f lokka í borgarstjórn, þar á meðal Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálf- stæðisf lokksins, og Degi. Fundur Dags og Einars fór fram á leyni- legum stað undir kvöld. „Málefnalega snýst þetta um stóru málin, Borgarlínu og sam- göngusáttmála,“ segir Dagur B. Egg- ertsson sem hrósar Einari. „Hann er að gera rétt með því að spjalla við alla,“ segir Dagur. Einar gæti myndað meirihluta með Samfylkingu og Pírötum með eða án Viðreisnar. Hann sagði á Baráttan um borgina er nú komin í hendurnar á Einari K O S N I N G A R 2 0 2 2 n Sjálfstæðis- flokkurinn n Samfylkingin n Framsóknar- flokkurinn n Píratar n Sósíalistar n Viðreisn n Flokkur fólksins n Vinstri græn 4 3 2 1 1 1 6 5 Skipting sæta í borgarstjórn Reykjavíkur Ýmsir möguleikar eru á meirihlutasamstarfi í borgastjórn þótt sumir flokkar útiloki aðra. MYND/HRINGBRAUT Fulltrúar E-listans fögnuðu sigri í sameinuðu sveitarfélagi. MYND/AÐSEND Fréttavaktinni á Hringbraut í gær að Framsóknarf lokkurinn væri með fjóra fulltrúa í borginni með mjög skýrt um boð til pólitískrar for ystu. Einar hefur ef til vill einnig val um myndun meirihluta til hægri með Sjálfstæðismönnum, Kolbrúnu Baldursdóttur, borgar f ulltr úa Flokks fólksins, og Þórdísi Lóu Þór- hallsdóttur, fulltrúa Viðreisnar. Fréttablaðið spurði Dag hvort hann gæti hugsað sér að gefa frá sér borgarstjórastólinn í meiri- hlutasamstarfi með Framsóknar- flokknum. „Ég hef í fyrri viðræðum aldrei gert þá kröfu,“ svarar Dagur. Þá vill hann ekki svara hvort til greina komi að þeir Einar deili borgar- stjórastólnum á kjörtímabilinu. „Það er alveg ótímabært að ræða það,“ segir Dagur, enda séu mál- efnin í fyrsta sæti, síðan komi verka- skipting. Hildur Björnsdóttir segir að það væri ótrúverðugt hjá Framsókn ef f lokkurinn hygðist mynda nýjan meirihluta með gamla meirihlut- anum, þar sem Framsókn talaði í kosningabaráttunni fyrir breyt- ingum. Spurð hvort hún geri kröfu um borgarstjórastól ef f lokkurinn myndar meirihluta með Fram- sóknarflokknum og fleiri f lokkum segir Hildur að hefð sé fyrir að odd- viti stærsta f lokksins fái borgar- stjórastól. n gar@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA „Þetta var fyrst og fremst mjög kjánalegt,“ segir Har- aldur Á. Gíslason, umboðsmaður Miðflokksins í Garðabæ, sem í kosn- ingunum á laugardag gerði athuga- semd við það hvernig kjörseðillinn var brotinn saman. „Seðillinn var ekki brotinn til helminga heldur tvíbrotinn og Mið- flokksendinn var brotinn sér. Þann- ig að hann sást ekki nema þú opn- aðir seðilinn alveg. Ég tók ekki eftir þessu fyrr en ég kaus sjálfur,“ segir Haraldur sem kveður kjörstjórnina hafa tekið vel í athugasemd Mið- flokksmanna og afhent kjörseðilinn opinn til kjósenda eftir það. Haraldur kveður engin eftirmál verða vegna þessa máls. „Ég held nú ekki að við höfum tapað manni fyrir þetta,“ bendir hann á. Mið- flokkurinn fékk 3,7 prósent atkvæða í Garðabæ og var langt frá því að ná inn bæjarfulltrúa. „Ég hafði svo sem ekki stórar áhyggjur af þessu.“ n Sá ekki flokkinn sinn fyrir brotinu Listar Garðabæjarlistans og Mið- flokksins í Garðabæ voru undir broti til hægri á kjörseðlinum. MYND/AÐSEND 6 Fréttir 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.