Fréttablaðið - 17.05.2022, Side 8

Fréttablaðið - 17.05.2022, Side 8
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Eðlilegt og líklegt er að Einar geri kröfu um borgar- stjórastól- inn. Elín Hirst elinhirst @frettabladid.is Svokölluð innflutt verðbólga, það er hækkanir á inn- fluttum vörum vegna mikilla verðhækkana á alþjóð- legum mörkuðum, er áhyggjuefni margra, ekki sízt vegna áhrifa á matarverð. Verðlagseftirlit Alþýðusam- bandsins komst þó að þeirri áhugaverðu niðurstöðu að innlend matvæli, til dæmis mjólkurvörur og kjöt, hefðu hækkað mun meira en innfluttar vörur undanfarið og nefndi hagfræðingur ASÍ skort á samkeppni sem eina skýringuna á því. Innlend búvöruframleiðsla nýtur þess að háir verndartollar eru lagðir á innfluttar búvörur. Heimildir til að flytja inn búvörur á lægri eða engum tolli, svokall- aðir tollkvótar sem samið er um í alþjóðasamningum, eru takmarkaðar. Auk þess fer íslenzka ríkið þá leið að bjóða upp kvótana og slagar verðið, sem innflytjendur greiða fyrir þá, stundum upp í fullan toll á vörunni. Allt takmarkar þetta samkeppni. Stjórnmálamenn hafa velt upp leiðum til að milda áhrif hækkandi matarverðs á almenning. Matvælaráð- herrann sagði í viðtali að henni fyndist ekki útilokað að fella niður virðisaukaskatt á matvælum tímabundið. Sú leið hefði vissulega áhrif á verð, en þýddi um leið mikið tekjutap ríkissjóðs. Tekjur ríkisins af tollum eru hins vegar mjög litlar. Nærtækari leið væri því að lækka tolla. Ef kjúklingur hækkar til dæmis í verði um 500 krónur á alþjóðlegum mörkuðum, myndi lækkun tolla um 500 krónur þýða sömu vernd fyrir innlenda framleiðslu, í stað þess að innlendir framleiðendur geti hækkað sínar vörur í skjóli aukinnar verðverndar. Í vikunni benti Félag atvinnurekenda á að sumir innlendir búvöruframleiðendur stunda þá vafasömu viðskiptahætti að bjóða hátt í tollkvóta fyrir vörur, sem eru fluttar inn í samkeppni við framleiðslu þeirra, fá þannig meirihluta kvótans í sinn hlut og geta ráðið verðinu. Önnur leið sem mætti fara til að lækka matar- verð er að úthluta tollkvótum fyrir búvörur án endur- gjalds, í stað uppboðanna. Samkeppniseftirlitið hefur mælt með slíkri leið, enda þýddi hún að alþjóðleg sam- keppni veitti innlendu framleiðslunni meira aðhald. n Ráð gegn innfluttri verðbólgu Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnu- rekenda Úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík eru söguleg. Fram- sóknarflokkurinn er óumdeildur sigurvegari. Ýmsar sviðsmyndir eru mögulegar þegar kemur að myndun nýs meirihluta í borginni. Einar Þor- steinsson og Framsóknarflokkurinn hljóta að vera þar í forystuhlutverki, miðað við ákall kjósenda. Eðlilegt og líklegt er að Einar geri kröfu um borgarstjórastólinn. Eins og Einar sagði sjálfur á Fréttavaktinni á Hringbraut í gærkvöld þá er núverandi meirihluti fallinn og nýr tekur við. Kosningaúrslit eru Framsóknarflokknum hliðholl víðar en í Reykjavík. Það sama var upp á teningnum í síðustu kosningum. Flokkurinn hefur breytt um ásýnd, breyst úr því að vera flokkur sem alltaf var að verja kerfið ásamt því að ástunda ýmiss konar sjálfshygli, í að verða flokkur sem boðar að almannaheill sé í fyrirrúmi. Ásmundur Einar Daðason hefur átt drjúgan þátt í þessu með áherslu á velferðarmál og málefni barna. Einar Þorsteinsson segist vilja hafa hreinskilni og gegnsæi að leiðarljósi. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður flokksins, vill koma böndum á ofurhagnað í sjávarútvegi þannig að þjóðin fái réttlátan skerf. Flokkurinn geldur ekki fyrir óviðurkvæmileg ummæli hans eins og margir töldu víst. Vonandi er það breyting sem er einlæg og komin til að vera. n Afleit tímasetning Léleg kjörsóknin í þessum kosningum er mikið áhyggjuefni. Kjörsókn á landinu öll var aðeins 63 prósent en var 68 prósent í síðustu sveitar- stjórnarkosningum. Ný lög tilgreina að sveitar- stjórnarkosningar fari fram annan laugardag í maí. Gagnrýni hefur komið fram á þessa dag- setningu. Hún sé afleit fyrir ungt fólk. Árni Pétur Árnason, háskólanemi og fram- bjóðandi Pírata í Kópavogi, segir umgjörð kosninga fjandsamlega ungu fólki. Á meðan á kosningabaráttu standi sitji háskólanemar og menntskælingar lokaðir inni á bókasöfnum við próflestur og ritgerðarskrif. Pawel Bartoszek, nú fyrrverandi borgarfull- trúi Viðreisnar, tekur í sama streng. Ríkisstjórn og Alþingi verði að endurskoða lögin. Ef það verði ekki gert muni fátt ungt fólk taka þátt í sveitarstjórnum. Það hafi síðan keðjuverk- andi áhrif því ungt fólk kjósi enn síður þegar jafnaldrar þess eru ekki í framboði. n Borgarstjórastóll N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði Komið og skoðið úrvalið benediktboas@frettabladid.is toti@frettabladid.is Óður RÚV til NFS Ólöf Rún Skúladóttir gerði svo geggjaða frétt í aukafréttatíma RÚV í hádeginu á sunnudag að hún var spiluð aftur þegar kvöldfréttatíminn fór í loftið. Segja gárungarnir að þetta minni á gamla góða tíma NFS sem spilaði sömu fréttir í sólarhring. RÚV lagði allt í sölurnar þessar kosningarnar og inniskórnir fóru upp í hillu og fréttamenn RÚV skelltu sér út. Allar hendur voru uppi á dekki og því hjákátlegt að fréttastofan hafi, þrátt fyrir fjöl- menni á vakt, ekki haft úr meiru að moða í kvöldfréttatímanum en endurvinnslu á frétt Ólafar. Geirfuglabjargið Á kosninganótt var enginn skortur á álitsgjöfum á sam- félagsmiðlum sem voru örlátir á alls konar greiningar og skoðanir langt umfram eftirspurn. Þó dró til nokkurra tíðinda á Facebook þegar Össur Skarphéðinsson rumskaði og rauf þögnina þegar hann las það helst úr tölum sem áttu eftir að koma seint og illa að Framsókn væri með friðhelgi í Íslandsbankaklúðrinu auk þess sem flokkurinn væri að vinna annan óbeinan sigur í því að „úrslit kvöldsins virðast vera andlátstilkynning Miðflokksins, sem alls staðar er að hverfa nema í Grindavík. En skammt þaðan voru einmitt heimkynni síðasta geirfuglsins …“n SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.