Fréttablaðið - 17.05.2022, Síða 9

Fréttablaðið - 17.05.2022, Síða 9
Sigmundur Davíð var formaður Framsóknarflokksins 2009-2016. Í þingkosningunum 2013 fékk flokk- urinn 24,4%. Á þessum tíma var Sigurður Ingi varaformaður, en til ágreinings kom milli þeirra félaga, og klofnaði flokkurinn. 2017 stofnaði Sigmundur Davíð svo Miðflokkinn. Hvernig hefur fylgið þróast? Í þingkosningunum 2017 fékk Fram- sóknarflokkurinn 10,7% atkvæða og Miðflokkurinn 10,8%. Samtals 21,5%, minna samtals en fyrir klofn- inginn, en munurinn var lítill. Í þingkosningunum 2021 reyndi svo aftur á stöðu og styrk þessara fyrrum samherja, þá andstæðinga, og hafði Sigurður Ingi þá miklu betur. Framsókn fékk 17,3% atkvæða og Miðflokkur Sigmundar Davíðs aðeins 5,4%. Klaustursmálið spilaði þar nokkra rullu, Sigurði Inga í vil, án þess, að hann hafi til fylgisaukningar unnið. Til samans voru flokkarnir þann- ig enn með svipað fylgi 2021, 22,7%. Gróft talað, hefur fylgi Fram- sóknarmanna, hvað svo sem flokks- nafngiftum líður, því verið 20-25% síðasta áratug. Hvað með kosningarnar nú? Auðvitað eru sveitarstjórnarkosn- ingar nokkuð annað en þingkosn- ingar. En flokksböndin eru líka rík í þeim, og grunnfylgi oft svipað og í þingkosningum. Ef fimm stærstu kjördæmin í sveit- arstjórnarkosningunum eru skoðuð, Reykjavík, Kópavogur, Hafnar- fjörður, Reykjanesbær og Akureyri, en í þessum kjördæmum eru yfir 180 þúsund kjósendur, af alls um 250 þúsund kjósendum í landinu, þá er meðaltalsfylgi Framsóknar nú 17,4%. Á sama tíma er fylgi Miðflokksins í þessum sömu kjördæmum komið niður í 2-3%, nema á Akureyri, þar sem flokkurinn fékk 7,9%. Tala má um meðaltal upp á 3,5%. Þannig, að enn er samtalan svipuð, um 21%. Þetta hrun Miðflokks er heldur ekki Sigurði Inga að þakka, heldur held ég, að kjósendur hafi átt erfitt með að skilja vel ýmislegt tal og sér- staklega athæfi Sigmundar Davíðs í seinni tíð, eins og það, þegar hann hakkaði í sig hrátt nautahakk úti í móa, velti sér um velli með hundum og auglýsti þetta svo. Hvað með Sigurð Inga? Jú, auðvitað er Sigurður Ingi líka bara maður, ekki alveg gallalaus, frekar en Sigmundur Davíð eða við hin, og honum varð á tungubrjótur í veizlu hjá Bændasamtökunum, sem margir töldu rasískan. Flestir áttuðu sig þó á því, þegar málið var skoðað betur, að ummæl- in, sem Sigurður Ingi átti að hafa við- haft, voru svo klikkuð, að þau gátu ekki einu sinni kallazt rasísk. Allir, sem sjálfir glugga í glas, skildu, að þetta hefði bara verið fyllirís rugl í innviðaráðherranum. Hann slapp því með skrekkinn og skottið milli lappanna. Vann Framsókn stórsigur nú? Nei, í raun ekki. Heildarfylgið á bak við Framsókn hefur ekki aukizt, eins og sjá má hér að ofan. Aukinn fjöldi fulltrúa er í raun ekki auknu fylgi að þakka, heldur fremur því, að raðir andstæðinganna rugluðust, eins og vel má sjá t.a.m. á því, að Einar Þorsteinsson, sem var formaður Týs, félags ungra Sjálf- stæðismanna í Kópavogi, skipti eins og hendi væri veifað um ham; gerðist Framsóknarmaður í Reykjavík. Sannleikurinn um Framsóknarflokkinn Ole Anton Bieltvedt alþjóðlegur kaup- sýslumaður og stjórnmálarýnir Eins náði Sjálfstæðisflokkurinn ekki vel vopnum sínum í þessum kosningum, þar sem margir vildu kenna formanni hans um klúðrið við Íslandsbankasöluna, sem reyndar var framkvæmdaaðilum að kenna, fremur en Bjarna, og færðust þann- ig fulltrúar af Sjálfstæðisflokknum á Framsókn, án eigin verðleika Fram- sóknar. Því má líka „sigri“ Framsóknar við það, að sigur vinnist í 100 metra hlaupi vegna þess, að keppinaut- unum hafi farið aftur, fremur en, að viðkomandi hafi bætt sig. Frjálslyndur miðjuflokkur? Í Norður-Evrópu eru 15 stjórnmála- f lokkar, sem telja sig vera frjáls- lynda miðjuflokka, og kenna sig við „Center“. Nær allir þeirra skilja og túlka stefnu sína þannig, að samvinna evrópskra þjóða í ríkjasambandi ESB sé ekki bara æskileg, heldur bráðnauðsynleg, og, að þátttakan í þessu ríkjabandalagi, með systra- og bræðraþjóðum sínum, auðvitað okkar Íslendinga líka, sé eitt grunn- stefnumálanna. Meðan Halldórs heitins Ásgríms- sonar, formanns Framsóknarflokks- ins 1994-2006, naut við, eins í for- mannstíð Jóns heitins Sigurðssonar, þar á eftir, má segja, að Framsókn hafi verið víðsýnn, samvinnusinn- aður og frjálslyndur miðjuflokkur, sannur slíkur, einn af 15 í Evrópu, en með tilkomu Guðna Ágústs- sonar, svo að ekki sé talað um Sig- mund Davíð og Sigurð Inga, þá er sá draumur búinn. Með þessum mönnum hrökk f lokkurinn til baka um áratugi í gamla og úrelta afturhalds- og ein- angrunarstefnu; hreinan heimóttar- skap. Kannske verður Framsókn aftur blessunarlega raunverulegur frjáls- lyndur miðjuflokkur með Einari Þorsteinssyni, Brynju Dan og Ásmundi Einari!? n DOMINOS.IS | DOMINO’S APP | 58 12345 MIÐSTÆRÐ AF PIZZU MEÐ ÞREMUR ÁLEGGSTEGUNDUM Á 1.100 KR. EF ÞÚ SÆKIR ÞRIÐJUDAGUR 17. maí 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.