Fréttablaðið - 17.05.2022, Qupperneq 9
Sigmundur Davíð var formaður
Framsóknarflokksins 2009-2016. Í
þingkosningunum 2013 fékk flokk-
urinn 24,4%. Á þessum tíma var
Sigurður Ingi varaformaður, en til
ágreinings kom milli þeirra félaga, og
klofnaði flokkurinn. 2017 stofnaði
Sigmundur Davíð svo Miðflokkinn.
Hvernig hefur fylgið þróast?
Í þingkosningunum 2017 fékk Fram-
sóknarflokkurinn 10,7% atkvæða
og Miðflokkurinn 10,8%. Samtals
21,5%, minna samtals en fyrir klofn-
inginn, en munurinn var lítill.
Í þingkosningunum 2021 reyndi
svo aftur á stöðu og styrk þessara
fyrrum samherja, þá andstæðinga,
og hafði Sigurður Ingi þá miklu
betur. Framsókn fékk 17,3% atkvæða
og Miðflokkur Sigmundar Davíðs
aðeins 5,4%.
Klaustursmálið spilaði þar nokkra
rullu, Sigurði Inga í vil, án þess, að
hann hafi til fylgisaukningar unnið.
Til samans voru flokkarnir þann-
ig enn með svipað fylgi 2021, 22,7%.
Gróft talað, hefur fylgi Fram-
sóknarmanna, hvað svo sem flokks-
nafngiftum líður, því verið 20-25%
síðasta áratug.
Hvað með kosningarnar nú?
Auðvitað eru sveitarstjórnarkosn-
ingar nokkuð annað en þingkosn-
ingar. En flokksböndin eru líka rík
í þeim, og grunnfylgi oft svipað og í
þingkosningum.
Ef fimm stærstu kjördæmin í sveit-
arstjórnarkosningunum eru skoðuð,
Reykjavík, Kópavogur, Hafnar-
fjörður, Reykjanesbær og Akureyri,
en í þessum kjördæmum eru yfir
180 þúsund kjósendur, af alls um 250
þúsund kjósendum í landinu, þá er
meðaltalsfylgi Framsóknar nú 17,4%.
Á sama tíma er fylgi Miðflokksins
í þessum sömu kjördæmum komið
niður í 2-3%, nema á Akureyri, þar
sem flokkurinn fékk 7,9%. Tala má
um meðaltal upp á 3,5%. Þannig, að
enn er samtalan svipuð, um 21%.
Þetta hrun Miðflokks er heldur
ekki Sigurði Inga að þakka, heldur
held ég, að kjósendur hafi átt erfitt
með að skilja vel ýmislegt tal og sér-
staklega athæfi Sigmundar Davíðs í
seinni tíð, eins og það, þegar hann
hakkaði í sig hrátt nautahakk úti í
móa, velti sér um velli með hundum
og auglýsti þetta svo.
Hvað með Sigurð Inga?
Jú, auðvitað er Sigurður Ingi líka bara
maður, ekki alveg gallalaus, frekar
en Sigmundur Davíð eða við hin, og
honum varð á tungubrjótur í veizlu
hjá Bændasamtökunum, sem margir
töldu rasískan.
Flestir áttuðu sig þó á því, þegar
málið var skoðað betur, að ummæl-
in, sem Sigurður Ingi átti að hafa við-
haft, voru svo klikkuð, að þau gátu
ekki einu sinni kallazt rasísk.
Allir, sem sjálfir glugga í glas,
skildu, að þetta hefði bara verið
fyllirís rugl í innviðaráðherranum.
Hann slapp því með skrekkinn og
skottið milli lappanna.
Vann Framsókn stórsigur nú?
Nei, í raun ekki. Heildarfylgið á bak
við Framsókn hefur ekki aukizt, eins
og sjá má hér að ofan.
Aukinn fjöldi fulltrúa er í raun
ekki auknu fylgi að þakka, heldur
fremur því, að raðir andstæðinganna
rugluðust, eins og vel má sjá t.a.m. á
því, að Einar Þorsteinsson, sem var
formaður Týs, félags ungra Sjálf-
stæðismanna í Kópavogi, skipti eins
og hendi væri veifað um ham; gerðist
Framsóknarmaður í Reykjavík.
Sannleikurinn um Framsóknarflokkinn
Ole Anton
Bieltvedt
alþjóðlegur kaup-
sýslumaður og
stjórnmálarýnir
Eins náði Sjálfstæðisflokkurinn
ekki vel vopnum sínum í þessum
kosningum, þar sem margir vildu
kenna formanni hans um klúðrið við
Íslandsbankasöluna, sem reyndar
var framkvæmdaaðilum að kenna,
fremur en Bjarna, og færðust þann-
ig fulltrúar af Sjálfstæðisflokknum á
Framsókn, án eigin verðleika Fram-
sóknar.
Því má líka „sigri“ Framsóknar
við það, að sigur vinnist í 100 metra
hlaupi vegna þess, að keppinaut-
unum hafi farið aftur, fremur en, að
viðkomandi hafi bætt sig.
Frjálslyndur miðjuflokkur?
Í Norður-Evrópu eru 15 stjórnmála-
f lokkar, sem telja sig vera frjáls-
lynda miðjuflokka, og kenna sig við
„Center“.
Nær allir þeirra skilja og túlka
stefnu sína þannig, að samvinna
evrópskra þjóða í ríkjasambandi
ESB sé ekki bara æskileg, heldur
bráðnauðsynleg, og, að þátttakan
í þessu ríkjabandalagi, með systra-
og bræðraþjóðum sínum, auðvitað
okkar Íslendinga líka, sé eitt grunn-
stefnumálanna.
Meðan Halldórs heitins Ásgríms-
sonar, formanns Framsóknarflokks-
ins 1994-2006, naut við, eins í for-
mannstíð Jóns heitins Sigurðssonar,
þar á eftir, má segja, að Framsókn
hafi verið víðsýnn, samvinnusinn-
aður og frjálslyndur miðjuflokkur,
sannur slíkur, einn af 15 í Evrópu,
en með tilkomu Guðna Ágústs-
sonar, svo að ekki sé talað um Sig-
mund Davíð og Sigurð Inga, þá er sá
draumur búinn.
Með þessum mönnum hrökk
f lokkurinn til baka um áratugi í
gamla og úrelta afturhalds- og ein-
angrunarstefnu; hreinan heimóttar-
skap.
Kannske verður Framsókn aftur
blessunarlega raunverulegur frjáls-
lyndur miðjuflokkur með Einari
Þorsteinssyni, Brynju Dan og
Ásmundi Einari!? n
DOMINOS.IS | DOMINO’S APP | 58 12345
MIÐSTÆRÐ AF PIZZU MEÐ ÞREMUR
ÁLEGGSTEGUNDUM Á 1.100 KR. EF ÞÚ SÆKIR
ÞRIÐJUDAGUR 17. maí 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ