Fréttablaðið - 17.05.2022, Page 11

Fréttablaðið - 17.05.2022, Page 11
KYNN INGARBLAÐ ALLT ÞRIÐJUDAGUR 17. maí 2022 jme@frettabladid.is Prófessor Robert Poulin frá Háskólanum í Otago á Nýja-Sjá- landi vill að fólk hugsi sig tvisvar um áður en það nefnir nýjar tegundir eftir frægu fólki, vegna hættu á að stjörnurnar falli í ónáð síðar. Undanfarið hefur nætur- fiðrildi verið nefnt í höfuðið á Donald Trump, þúsundfætla nefnd eftir Taylor Swift og froskur eftir David Attenborough. Doktor Poulin líkir þessu við frændhygli. Doktor Poulin skrifar: „Hetja eins er þorpari annars og vel þokkaðar stjörnur samtímans geta minnkað í vinsældum … Í staðinn ætti að nefna tegundir eftir lagi þeirra eða staðnum sem þær fundust á,“ bætir hann við. Illa séður kynjamunur Að nefna tegundir eftir sjálfum sér segir doktor Poulin vera illa séð. Hann tekur til dæmis 2.900 tegundir af helminths, sem eru sníkjuormar, sem hann hefur verið að rannsaka. Margar tegundirnar séu nefndar eftir frægum vísinda- mönnum. „Þessar skepnur, sem allar voru uppgötvaðar á síðustu 20 árum, sýna fram á stöðuga kynjahlutdrægni, enda voru tegundirnar oftar en ekki nefndar eftir karlkyns vísindamönnum.“ Hann bætir við: „Að lokum hefur tilhneiging flokkunarfræðinga til þess að nefna nýjar tegundir eftir fjölskyldumeðlimum eða nánum vinum aukist gríðarlega á síðustu 20 árum.“ n Nafntogaðar og nýjar tegundir Þúsundfætlutegundin Nannaria swiftae er nefnd í höfuðið á Taylor Swift. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Kristján Sveinsson, eigandi Novus Habitat á Spáni, og Kristján Þórir Hauksson, einn eigenda Lindar, sjást hér handsala samning um samstarf. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fyrsta skrefið í átt til nýrra heimkynna á Spáni tekið heima Að eignast fasteign á Spáni hefur aldrei verið einfaldara né þægilegra því á dögunum skrif- aði íslenska fasteignasalan Lind undir samstarfssamning við fasteignasöluna Novus Habitat á Spáni. Það gerir skoðunar- og kaupferli fasteigna ytra enn aðgengilegra en áður. 2 ALOE VERA MELTING & BÓLGUR 85%VIRKTCURCUMIN www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.