Fréttablaðið - 17.05.2022, Page 17
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS
Fasteignablaðið
20. TBL. 17. MAÍ 2022
Heimili fasteignasala
kynnir í einkasölu: Fallegt
endaraðhús með bílskúr á
mjög rúmgóðri og fallegri
endalóð á þessum eftirsótta
stað í suðurhlíðum borgar-
innar. Aðkoma að húsinu er
falleg og garðurinn glæsi-
legur með stórri verönd,
skjólveggjum og fallegum
og vel hirtum gróðri.
Eignin hefur fengið gott við-
hald í gegnum árin, eikarparket
er á gólfum og nýlegar innrétt-
ingar í eldhúsi, baðherbergjum og
þvottahúsi. Allar innihurðir hafa
nýlega verið sprautulakkaðar. Þrjú
rúmgóð svefnherbergi (möguleiki
að bæta við herbergi). Stofa/borð-
stofa, sólstofa, eldhús, tvö baðher-
bergi, geymsla, þvottahús og bíl-
skúr. Heitur pottur er á verönd við
húsið. Skipt var um flesta glugga
á efri hæð 2017 auk sólstofu. Nýr
þakkantur 2022. n
Neðri hæð:
n Forstofa: Komið er inn í rúm-
góða forstofu með nýjum flísum
á gólfi og góðum fataskáp.
n Gestasalerni: Með nýjum flísum
á gólfi, nýlegu salerni og nettri
nýlegri innréttingu.
n Stofa: Falleg og björt stofa með
parketi á gólfi.
n Borðstofa: Borðstofa er rúmgóð
og björt milli stofu og eldhúss.
Parket er á gólfi. Inn af borðstofu
er sólstofa með náttúrusteini á
gólfi og útgengi frá henni í garð.
Heildarendurnýjun á eldhúsi
2020. Gluggar ofan við vask sem
snúa út í bakgarð. Útgengi frá
eldhúsi út í bakgarð.
n Þvottahús: Þvottaherbergið er
rúmgott með nýlegri innréttingu
með vaski og flísum á gólfi.
Efri hæð:
n Hol: Þegar komið er upp á efri
hæðina er komið inn að stóru
og björtu holi. Góð lofthæð er
í rýminu. Þakgluggar. Parket á
gólfi.
n Hjónaherbergi: 15 fm, með
parketi á gólfi.
n Barnaherbergi I: 14 fm, með
parketi á gólfi og góðum fata-
skáp.
n Barnaherbergi II: 10 fm, með
parketi á gólfi og góðum fata-
skáp.
n Baðherbergi: Baðherbergið með
baðkari og nýlegum sturtuklefa
og nýlegu salerni. Flísar á gólfi
og hluta veggja. Nýleg innrétt-
ing.
n Bílskúr: Bílskúrinn er 28 fm.
Upphitaður bílskúr með nýrri
rafdrifinni hurð og aðgengi að
heitu og köldu vatni.
Lóð:
n Hellulagt er að aðalinngangi.
Fyrir aftan húsið er stór og glæsi-
leg timburverönd með heitum
potti, sólskáli með rafmagns-
hitara í lofti og sér garðskúr.
Allar nánari upplýsingar veitir
Sigríður Lind Eyglóardóttir, lög-
giltur fasteignasali. sigridur.lind@
heimili.is / 8994703.
Fallegt raðhús á góðum stað
Húsið er á
góðum stað í
Suðurhlíðum
Reykjavíkur.
Stofan er björt og rúmgóð.
Eldhúsið er uppgert.
Ráðgjöf varðandi húsnæðisskipti, erfðaskrá, kaupmála
eða dánarbúskipti. Lögmaður þér við hlið við sölu fasteignar
án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu.
BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu. Kynntu þér málið.
Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð
Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is
Sérhæfð lögfræðiþjónusta
með áherslu á 60+
Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali.
Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is