Fréttablaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 28
8 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURLYKILL AÐ LÍFI Kiwanishreyfingin hefur í gegnum tíðina staðið að mörgum vel heppnuðum styrktarverkefnum á Íslandi. Flest hafa verið unnin í takt við aðalmarkmið heims- hreyfingarinnar, „Börnin fyrst og fremst“. Mörg verkefni hafa verið unnin í samvinnu við Evrópustjórn og öll stuðlað að því að bæta aðstæður og afkomu barna. Það má segja að eitt öflugasta verkefni Kiwanishreyfingarinnar á Íslandi frá upphafi sé gjafir á öryggishjálmum/reiðhjólahjálm- um til 6-7 ára barna. Það verkefni hófst árið 1991 á Akureyri hjá Kiwanisklúbbnum Kaldbak og var það félaginn Stefán Jónsson sem ruddi veginn og gefnir voru hjálmar í skóla á Akureyri það vor. Kiwanisklúbburinn Drangey kom svo að þessu árið eftir og síðan Kiwanisklúbburinn Ós á Höfn í Hornafirði og í kjölfarið fóru fleiri og fleiri klúbbar á landsbyggðinni að gera þetta líka. Byrjaði á Akureyri Verkefnið hafði verið rætt í Umdæmisstjórn um skeið og hafði Stefán Jónsson talað máli þess þar. Það var síðan á Umdæmis- þingi haustið 2004 að þáverandi umdæmisstjóri, Sigurgeir Aðal- geirsson frá Kiwanisklúbbnum Skjálfanda á Húsavík, lagði þetta fyrir þingið og fékk samþykkt með naumum meirihluta að gera þetta að landsverkefni. Síðan þá hefur hreyfingin gefið öllum börnum í 1. bekk ár hvert hjálm á höfuð og hafa þetta verið frá 3.500 hjálmum og upp í 4.400 hjálma ár hvert og nú vorið 2022 voru þetta rúmir 4.400 hjálmar. Í upphafi verkefnisins árið 1991 og þar á eftir fengu klúbbarnir hina ýmsu styrktaraðila til liðs við sig og var oft örðugt að ná inn styrktaraðilum. Var þetta gert að landsverkefni vorið 2005 en þá kom Eimskipafélag Íslands að verkefninu sem aðalstyrktaraðili og hefur það samstarf staðið óslitið síðan. Sigurgeir Aðalgeirsson, þá fráfarandi umdæmisstjóri, hafði haft veg og vanda af samningi við Eimskipafélagið. Það var ómetan- legur stuðningur sem Eimskip hefur staðið fyrir en á þessum 22 árum hefur félagið afhent Kiw- anishreyfingunni tæplega 83.000 hjálma. Í heildina hefur Kiwanis á Íslandi gefið nálægt 1/3 þjóðar- innar hjálma miðað við höfðatölu í dag, eða rúmlega 105.000 hjálma. Ef við gefum okkur að meðalverð á hjálmi uppreiknað til verðs í dag sé um 7.500 krónur, má áætla að Kiw- anishreyfingin hafi sett milli 750 – 800 miljónir króna í þetta einstaka verkefni, fyrst með stuðningi fjölda fyrirtækja en þó einna helst Eimskipafélags Íslands. Góður stuðningur frá Eimskip Eimskipafélagið eitt og sér hefur staðið keikt við bakið á hreyfing- unni í þessi 22 ár og erum við bæði afskaplega þakklát og stolt af þessu samstarfi. Ég undirritaður er að ljúka mínu sjöunda ári sem formaður Hjálma- nefndar Umdæmisins Ísland/Fær- eyjar. Mér til aðstoðar öll árin hef ég haft frábæra félaga sem fulltrúa hvers svæðis sem Kiwanis nær yfir og hafa þau sömu staðið með mér. Það hefur einnig verið afar gaman að vinna með starfsfólki Eimskips og finna þann brenn- andi áhuga og ánægju sem þar hefur ríkt í að bæta öryggi barna á Íslandi. Þetta hefur verið nokkuð föst rútína þar sem fjöldi barna í 1. bekk hvers skólaárs er kann- aður að hausti og einnig í fjölda skóla á landsbyggðinni sem Kiwanis þjónar ekki beint. Síðan er sú samantekt send Eimskip sem síðan sér um að útdeila hjálmum eftir þessu skjali og sér um að allir fái sitt. Öryggi barna í fyrirrúmi Kiwanisklúbbarnir um landið allt taka síðan við og sjá um afhend- ingu ýmist beint á höfuð barnanna eða með því að koma hjálmunum í skólana. Vorið 2015 kom upp ákveðið vandamál í skólum í Reykjavík þar sem skólaskrifstofa Reykjavíkur, með Dag B. Eggerts- son og Skúla Helgason í broddi fylkingar, bannaði hreyfingunni að afhenda börnunum hjálmana í skólunum eða á skólalóðinni. Var þá brugðið á það ráð að fá foreldrafélögin til liðs við okkur til að koma hjálmunum til skila en það varð alltaf misbrestur á að allir fengju sinn hjálm. Það reyndust ekki allir skólar sem hlýddu þessari reglu og á nokkrum stöðum gátum við haldið upp- teknum hætt. Í dag er þetta hægt og hægt að færast í fyrra horf þar sem skólastjórnendur láta þessa tilskipun sem vind um eyru þjóta og horfa í það öryggi sem þessi gjöf veitir börnunum áður en haldið er út í umferðina. Mjög víða er efnt til grillveislna, fjölskylduskemmt- unar eða annarra uppákoma við afhendingu hjálma til að lífga upp á þessa athöfn. Einhverjir klúbbar standa einnig fyrir happdrætti þar sem ein stúlka og einn drengur fá gefins ný hjól. Þar hefur Kiwanis- klúbburinn Kaldbakur á Akureyri með upphafsmann verkefnisins á Íslandi, Stefán Jónsson eða ,,Stebba hjálm“ eins og hann er kallaður, staðið hvað fremstur við hjóla- gjafir til barna á þeirra svæði. Hjálmar til Grænlands og Kanada Hreyfingin hefur einnig, ásamt Eimskip, staðið í ýmsum öðrum verkefnum þar sem börnum eru gefnir hjálmar og má nefna að flóttabörn og innflytjendur hafa einnig fengið hjálma og höfum við styrkt sérstakt verkefni hjá Rauða krossinum, Barnaheill í Reykja- víkurborg og fleiri félagasamtök með hjálmum síðastliðin ár handa börnum sem ekki komast í tæri við þá í skólum eða hjá hreyfingunni. Svo höfum við gefið hjálma til barna á Grænlandi síðastliðin þrjú ár og nú er á döfinni að senda sérstaka sendingu af hjálmum til Kanada, en þar á að afhenda íslen- skættuðum sex til sjö ára börnum í Gimli hjálma á sérstökum Íslend- ingadegi í júní í sumar. Aldrei verður ofmetið það aukna öryggi sem hjálmarnir veita og höfum við afar mörg dæmi þar sem hjálmur bjargaði lífi þess er í slysi lenti. Höfum við ávallt afhent þeim sem í slíku lendir nýjan hjálm með þökk í hjarta. n Hjálmaverkefnið frá upphafi Hér eru hamingjusamir krakkar á Ísafirði með hjálmana sína MYND/AÐSEND Kæru landsmenn. Laugardaginn 2l. maí næstkomandi fer aðalsöfnunarátak Kiwanisfélaga um allt land af stað. Að því tilefni seljum við K-lykilinn og barmmerki Kiwanis til styrktar geðheilbrigðis- málum. Ég bið því alla að taka vel á móti sölufólki okkar og munum við gera okkar besta til að vera sýnileg um land allt um helgina. Kiwanis- klúbbar landsins taka allir þátt í þessu nauðsynlega verkefni til hjálpar geðheilbrigðismálum. Það er búin að vera mikil vinna að undirbúningi þessa verkefnis. Við færðum forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, fyrsta K-lykilinn að Bessastöðum og þar fengum við höfðinglegar móttökur. Forseti Íslands er verndari K-lykilsins. Það er mikið í húfi að vel takist til með söluna, því innkoma sölunnar rennur til mikilvægs málefnis sem var áður fyrr falinn sjúkdómur en er orðinn sýnilegri í dag. Með okkar aðstoð komust Píeta samtökin af stað og eru þau orðin mjög öflug samtök í geðheil- brigðismálum. Einnig höfum við styrkt starf- semi BUGL. Fyrir tilstuðlan Kiwanishreyf- ingarinnar hafa geðheilbrigðis- málin orðið sýnilegri en áður fyrr. Við hvetjum alla landsmenn til að styrkja þetta mikilvæga málefni með því að kaupa K-lykilinn eða barmmerki Kiwanis. F.h. Kiwanishreyfingarinnar Ísland – Færeyjar. n Dagur K-lykilsins. Ólafur Jónsson formaður hjálma­ nefndar Kiwanis­ umdæmisins Ísland/Færeyjar Pétur Jökull Hákonarson umdæmisstjóri Forseti Íslands tekur við fyrsta lyklinum úr hendi Péturs en Guðni er verndari söfnunarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.