Fréttablaðið - 17.05.2022, Qupperneq 28
8 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURLYKILL AÐ LÍFI
Kiwanishreyfingin hefur
í gegnum tíðina staðið að
mörgum vel heppnuðum
styrktarverkefnum á Íslandi.
Flest hafa verið unnin í takt
við aðalmarkmið heims-
hreyfingarinnar, „Börnin
fyrst og fremst“. Mörg
verkefni hafa verið unnin í
samvinnu við Evrópustjórn
og öll stuðlað að því að bæta
aðstæður og afkomu barna.
Það má segja að eitt öflugasta
verkefni Kiwanishreyfingarinnar
á Íslandi frá upphafi sé gjafir á
öryggishjálmum/reiðhjólahjálm-
um til 6-7 ára barna. Það verkefni
hófst árið 1991 á Akureyri hjá
Kiwanisklúbbnum Kaldbak og
var það félaginn Stefán Jónsson
sem ruddi veginn og gefnir voru
hjálmar í skóla á Akureyri það vor.
Kiwanisklúbburinn Drangey kom
svo að þessu árið eftir og síðan
Kiwanisklúbburinn Ós á Höfn í
Hornafirði og í kjölfarið fóru fleiri
og fleiri klúbbar á landsbyggðinni
að gera þetta líka.
Byrjaði á Akureyri
Verkefnið hafði verið rætt í
Umdæmisstjórn um skeið og hafði
Stefán Jónsson talað máli þess
þar. Það var síðan á Umdæmis-
þingi haustið 2004 að þáverandi
umdæmisstjóri, Sigurgeir Aðal-
geirsson frá Kiwanisklúbbnum
Skjálfanda á Húsavík, lagði þetta
fyrir þingið og fékk samþykkt með
naumum meirihluta að gera þetta
að landsverkefni. Síðan þá hefur
hreyfingin gefið öllum börnum í
1. bekk ár hvert hjálm á höfuð og
hafa þetta verið frá 3.500 hjálmum
og upp í 4.400 hjálma ár hvert og
nú vorið 2022 voru þetta rúmir
4.400 hjálmar.
Í upphafi verkefnisins árið 1991
og þar á eftir fengu klúbbarnir
hina ýmsu styrktaraðila til liðs
við sig og var oft örðugt að ná inn
styrktaraðilum. Var þetta gert
að landsverkefni vorið 2005 en
þá kom Eimskipafélag Íslands að
verkefninu sem aðalstyrktaraðili
og hefur það samstarf staðið óslitið
síðan. Sigurgeir Aðalgeirsson, þá
fráfarandi umdæmisstjóri, hafði
haft veg og vanda af samningi við
Eimskipafélagið. Það var ómetan-
legur stuðningur sem Eimskip
hefur staðið fyrir en á þessum 22
árum hefur félagið afhent Kiw-
anishreyfingunni tæplega 83.000
hjálma.
Í heildina hefur Kiwanis á
Íslandi gefið nálægt 1/3 þjóðar-
innar hjálma miðað við höfðatölu
í dag, eða rúmlega 105.000 hjálma.
Ef við gefum okkur að meðalverð á
hjálmi uppreiknað til verðs í dag sé
um 7.500 krónur, má áætla að Kiw-
anishreyfingin hafi sett milli 750 –
800 miljónir króna í þetta einstaka
verkefni, fyrst með stuðningi
fjölda fyrirtækja en þó einna helst
Eimskipafélags Íslands.
Góður stuðningur frá Eimskip
Eimskipafélagið eitt og sér hefur
staðið keikt við bakið á hreyfing-
unni í þessi 22 ár og erum við bæði
afskaplega þakklát og stolt af þessu
samstarfi.
Ég undirritaður er að ljúka mínu
sjöunda ári sem formaður Hjálma-
nefndar Umdæmisins Ísland/Fær-
eyjar. Mér til aðstoðar öll árin hef
ég haft frábæra félaga sem fulltrúa
hvers svæðis sem Kiwanis nær yfir
og hafa þau sömu staðið með mér.
Það hefur einnig verið afar
gaman að vinna með starfsfólki
Eimskips og finna þann brenn-
andi áhuga og ánægju sem þar
hefur ríkt í að bæta öryggi barna á
Íslandi. Þetta hefur verið nokkuð
föst rútína þar sem fjöldi barna
í 1. bekk hvers skólaárs er kann-
aður að hausti og einnig í fjölda
skóla á landsbyggðinni sem
Kiwanis þjónar ekki beint. Síðan
er sú samantekt send Eimskip sem
síðan sér um að útdeila hjálmum
eftir þessu skjali og sér um að allir
fái sitt.
Öryggi barna í fyrirrúmi
Kiwanisklúbbarnir um landið allt
taka síðan við og sjá um afhend-
ingu ýmist beint á höfuð barnanna
eða með því að koma hjálmunum
í skólana. Vorið 2015 kom upp
ákveðið vandamál í skólum í
Reykjavík þar sem skólaskrifstofa
Reykjavíkur, með Dag B. Eggerts-
son og Skúla Helgason í broddi
fylkingar, bannaði hreyfingunni
að afhenda börnunum hjálmana
í skólunum eða á skólalóðinni.
Var þá brugðið á það ráð að fá
foreldrafélögin til liðs við okkur
til að koma hjálmunum til skila
en það varð alltaf misbrestur á
að allir fengju sinn hjálm. Það
reyndust ekki allir skólar sem
hlýddu þessari reglu og á nokkrum
stöðum gátum við haldið upp-
teknum hætt. Í dag er þetta hægt
og hægt að færast í fyrra horf þar
sem skólastjórnendur láta þessa
tilskipun sem vind um eyru þjóta
og horfa í það öryggi sem þessi gjöf
veitir börnunum áður en haldið er
út í umferðina. Mjög víða er efnt
til grillveislna, fjölskylduskemmt-
unar eða annarra uppákoma við
afhendingu hjálma til að lífga upp
á þessa athöfn. Einhverjir klúbbar
standa einnig fyrir happdrætti þar
sem ein stúlka og einn drengur fá
gefins ný hjól. Þar hefur Kiwanis-
klúbburinn Kaldbakur á Akureyri
með upphafsmann verkefnisins á
Íslandi, Stefán Jónsson eða ,,Stebba
hjálm“ eins og hann er kallaður,
staðið hvað fremstur við hjóla-
gjafir til barna á þeirra svæði.
Hjálmar til Grænlands og Kanada
Hreyfingin hefur einnig, ásamt
Eimskip, staðið í ýmsum öðrum
verkefnum þar sem börnum eru
gefnir hjálmar og má nefna að
flóttabörn og innflytjendur hafa
einnig fengið hjálma og höfum við
styrkt sérstakt verkefni hjá Rauða
krossinum, Barnaheill í Reykja-
víkurborg og fleiri félagasamtök
með hjálmum síðastliðin ár handa
börnum sem ekki komast í tæri við
þá í skólum eða hjá hreyfingunni.
Svo höfum við gefið hjálma til
barna á Grænlandi síðastliðin
þrjú ár og nú er á döfinni að senda
sérstaka sendingu af hjálmum til
Kanada, en þar á að afhenda íslen-
skættuðum sex til sjö ára börnum
í Gimli hjálma á sérstökum Íslend-
ingadegi í júní í sumar.
Aldrei verður ofmetið það aukna
öryggi sem hjálmarnir veita og
höfum við afar mörg dæmi þar
sem hjálmur bjargaði lífi þess er í
slysi lenti. Höfum við ávallt afhent
þeim sem í slíku lendir nýjan
hjálm með þökk í hjarta. n
Hjálmaverkefnið
frá upphafi
Hér eru hamingjusamir krakkar á Ísafirði með hjálmana sína MYND/AÐSEND
Kæru landsmenn.
Laugardaginn 2l. maí næstkomandi
fer aðalsöfnunarátak Kiwanisfélaga
um allt land af stað. Að því tilefni
seljum við K-lykilinn og barmmerki
Kiwanis til styrktar geðheilbrigðis-
málum. Ég bið því alla að taka vel á
móti sölufólki okkar og munum við
gera okkar besta til að vera sýnileg
um land allt um helgina. Kiwanis-
klúbbar landsins taka allir þátt
í þessu nauðsynlega verkefni til
hjálpar geðheilbrigðismálum.
Það er búin að vera mikil vinna
að undirbúningi þessa verkefnis.
Við færðum forseta Íslands, Guðna
Th. Jóhannessyni, fyrsta K-lykilinn
að Bessastöðum og þar fengum
við höfðinglegar móttökur. Forseti
Íslands er verndari K-lykilsins.
Það er mikið í húfi að vel
takist til með söluna, því innkoma
sölunnar rennur til mikilvægs
málefnis sem var áður fyrr falinn
sjúkdómur en er orðinn sýnilegri
í dag. Með okkar aðstoð komust
Píeta samtökin af stað og eru þau
orðin mjög öflug samtök í geðheil-
brigðismálum.
Einnig höfum við styrkt starf-
semi BUGL.
Fyrir tilstuðlan Kiwanishreyf-
ingarinnar hafa geðheilbrigðis-
málin orðið sýnilegri en áður fyrr.
Við hvetjum alla landsmenn til
að styrkja þetta mikilvæga málefni
með því að kaupa K-lykilinn eða
barmmerki Kiwanis.
F.h. Kiwanishreyfingarinnar
Ísland – Færeyjar. n
Dagur K-lykilsins.
Ólafur Jónsson
formaður hjálma
nefndar Kiwanis
umdæmisins
Ísland/Færeyjar
Pétur Jökull
Hákonarson
umdæmisstjóri
Forseti Íslands
tekur við fyrsta
lyklinum úr
hendi Péturs
en Guðni er
verndari
söfnunarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI