Fréttablaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 36
80’s í fókus Framhald í næsta bréfi er óvenjulegt sviðslistaverk þar sem fólk fær bréf send heim til sín með dularfullri sögu er tengist mannshvarfi í Kaup- mannahöfn og grímuballi í seinni heimsstyrjöldinni. tsh@frettabladid.is Sviðlistakonurnar Aðalbjörg Árna- dóttir og Salka Guðmundsdóttir frumf lytja nýstárlegt sviðslista- verk á Listahátíð í júní. Verkið ber titilinn Framhald í næsta bréfi og er þátttökuverk sem byggist á bréfa- sendingum. Salka: „Við hugsum þetta sem ferðalag á þínu eigin heimili. Leik- húsið kemur heim til þín, leikhúsið inn um lúguna segjum við. Verkið er saga sem spannar eina öld og er byggt mikið til á raunverulegum stöðum og hverfist í kringum sögu- legar staðreyndir og viðburði úr Íslands- og mannkynssögunni.“ Verkið byggist annars vegar á hljóðverki, eins konar útvarpsleik- riti, sem þátttakendur hlusta á og hins vegar á sjö bréfasendingum sem koma inn um lúguna heima hjá fólki. Salka: „Í hverju og einu umslagi eru persónuleg bréf og það eru líka ýmiss konar gögn sem leiða þig inn í þessa sögu. Það eru gamlar blaðaúr- klippur, það eru ljósmyndir, það eru símskeyti, það er ýmislegt sem segir þér þessa sögu. Svo í hvert skipti sem fólk fær umslag þá hlustar það líka á hljóðverk sem fylgir hverjum og einum hluta. Þannig að sagan smám saman opnast fyrir þátttak- endum.“ Hægt að njóta hvar sem er Spurðar hvort verkið taki langan tíma í f lutningi segir Aðalbjörg: „Við gefum okkur fjórtán daga til að afhenda sjö bréf. Stundum koma þau á dags fresti en oft líða tveir dagar á milli. Nema þú eigir heima einhvers staðar lengst á hjara ver- aldar, þá færðu þau send öll saman í einum pakka og þú stjórnar því þá bara sjálfur, opnar eitt á hverjum degi. Okkur þótti svo mikilvægt að það væri hægt að njóta verksins hvar sem er á landinu og jafnvel deila því með fjölskyldunni. Svo sendirðu bara mömmu með þetta upp í sumarbústað.“ Höfundar verksins eru báðir með bakgrunn í sviðslistum. Aðalbjörg sem leikari og Salka sem leikskáld. Þó er ljóst að ekki er um hefðbundið sviðslistaverk að ræða. Aðalbjörg: „Við erum náttúrlega sviðslistamenn upphaflega báðar. Fyrir okkur er þetta bara sviðs- listaverk sem þó reynir náttúrlega á einhver mörk. Útvarpshlutinn er greinilega bara útvarpsleikrit. Er þetta ekki bara sviðsverk án leik- ara?“ Salka: „Sviðsverk án sviðs. Á ensku er þetta bara kallað perform- ing arts. Þetta er sviðslistaverk utan sviðs.“ Grímuball, stríð og mannshvarf Aðalbjörg segir kveikju verksins hafa verið gamla ljósmynd frá 1945 eftir Sigurhans Vigni sem hún fann á Ljósmyndasafni Reykjavíkur og er notuð sem kynningarmynd verksins. Aðalbjörg: „Myndin er tekin á grímuballi hjá starfsmannafélagi Landssmiðjunnar á Sölvhólsgötu við stríðslok. Þetta er alveg sturluð mynd og ég fer að rannsaka hana til að komast að því hvað þetta er. Þá förum við að skoða þetta starfs- mannafélag sem var í Landssmiðj- unni og verðum heillaðar af því og förum í kjölfarið að skoða Sölvhóls- götuna sem sögusvið. Margt í verk- inu byggist á alvöru auglýsingum og fréttum og gömlum bréfum sem við fundum en við gefum okkur algjört skáldaleyfi.“ Í kynningartexta Listahátíðar er Framhaldi í næsta bréfi lýst sem óvenjulegu og skemmtilegu ferða- lagi fyrir forvitna. Salka segir að í verkinu sé ákveðin ráðgáta sem glöggir þátttakendur geti áttað sig á þó svo að þeir taki ekki beinan þátt í framvindu verksins. Salka: „Þú kemst að því strax í fyrsta bréfi að það er maður sem hefur horfið á 8. áratugnum, Íslendingur í Kaupmannahöfn. Það eru nokkur lög af frásögninni sem tengjast smám saman og efnið hjálpar þér að tengja þau saman. En það er vissulega ákveðið ráðgátu- element í því.“ Aðalbjörg: „Við höfum báðar mjög gaman af því þegar maður fær að vera snjall lesandi, hlustandi eða áhorfandi.“ n Ferðalag fyrir forvitna Kveikjan að verkinu var þessi dularfulla ljósmynd sem tekin var á grímuballi starfsmanna Landssmiðjunnar á Sölvhólsgötu árið 1945. LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR/SIGURHANS VIGNIR Þær Aðalbjörg og Salka bjóða þátttakendum upp á ferðalag á þeirra eigin heimili. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Við höfum báðar mjög gaman af því þegar maður fær að vera snjall lesandi, hlust- andi eða áhorfandi. Aðalbjörg Árnadóttir toti@frettabladid.is Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, lögmaður og framkvæmdastjóri, tilkynnti framboð sitt til stjórnar Frjálsa lífeyrissjóðsins á Facebook með þeim orðum að hún ætli að vinna af eljusemi og heiðarleika fyrir sjóðfélaga og hvatti Facebook- vini sína úr þeirra röðum til þess að vera í sambandi. „Ég tel mig eiga fullt erindi í stjórn lífeyrissjóðsins, ég hef þekkingu á starfsháttum og rekstrarumhverfi lífeyrissjóða,“ segir Sveinbjörg sem gerði á garðinn frægan sem odd- viti Framsóknar og f lugvallarvina í borgarstjórnarkosningunum 2014. Kosið er um þrjú stjórnarsæti og Sveinbjörg bendir á að þrír núver- andi stjórnarmenn, sem að meðal- tali hafi setið í stjórn félagsins í tólf ár, óski allir eftir endurkjöri. „Það má öllum vera ljóst að hætta er á því að kraftur og árvekni eftir- lits þeirrar stjórnar sem setið hefur svo lengi dvínar,“ segir Sveinbjörg sem ætlar sér að taka eftirlitshlut- verk stjórnar með til dæmis rekstr- arsamningi. Þá segist hún fagna því að kjörið sé nú rafrænt í fyrsta skipti enda stórt skref í átt að sjóðfélagalýð- ræði og mikilvægur þáttur í fram- boði hennar. „Enda gefst nú 60.000 sjóðfélögum nú loks tækifæri til að kjósa sinn fulltrúa í stjórn með ein- földum hætti.“ Hún segir ýmis teikn á lofti í íslensku efnahagslífi, hækkandi vextir og verðbólga og mikil áskor- un að gæta réttinda sjóðfélaga i slíku árferði. „Það er áskorun sem ég vil taka og fá umboð sjóðfélaga næstu þrjú árin til að vera rödd þeirra í stjórn sjóðsins.“ Kjörið stendur yfir þessa viku og lýkur á hádegi á sunnudaginn og Sveinbjörg bendir á að með raf- rænum skilríkjum ætti ekki að taka nema hálfa mínútu að kjósa. n Sveinbjörg Birna vill koma inn af krafti Sveinbjörg Birna sér rafrænt sóknar- færi hjá Frjálsa. MYND/AÐSEND FRÉTTAVAKTIN ÚTKALL MATUR OG HEIMILI 433 Kl. 18.30 og kl. 20.30 Kl. 19.30 og kl. 21.30 Kl. 19.00 og kl. 21.00 Kl. 20.00 og kl. 22.00 Í KVÖLD 16 Lífið 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 17. maí 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.