Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Apr 2018, Page 15
Siglfirðingablaðið
Vísi þá verð ég að geta þess að þegar
ég var 17 ára naut ég þess heiðurs,
ásamt nokkrum skólabræðra minna,
að syngja í þeim góða kór. Ég söng
annan bassa en Ágúst Ólsen skóla-
bróðir minn var með fallega tenór-
rödd og var settur í fyrsta tenór.
Þetta var góður félagsskapur og
lærdómsríkar ængar. Einsöngvar-
arnir voru ekki af verri endanum,
Daníel Þórhallsson og Sigurjón
Sæmundsson.
Í gagnfræðaskólanum var ég í tríói
með Sveini Gústafs á píanó og
Ágústi Ólsen á trommur en sjálfur
spilaði ég á rafgítar og harmonikku.
Við vorum ottir á því og vorum
með umboðsmann sem var Jónas
Björnsson. Síðasta veturinn í
Gagganum vorum við ráðnir til
að spila á Hótel Hvanneyri á árs-
hátíðum og slíkum skemmtunum.
Við höfðum reyndar ekki aldur til
þess en Jóhannes Þórðar var svo
mikið ljúfmenni að það var litið
fram hjá því.
Við vorum duglegir að pikka upp
nýjustu lögin en á þessum tíma
hljómuðu helst lögin um Bjössa
kvennagull og Bellu símamær,
Sjómannavalsinn og Brúnaljósin
Hátíðarhöldin á Siglurði 1955. Ragnar Páll og nafni hans Ragnar
Sveinsson máluðu myndina í bakgrunninum.
Gautar í Alþýðuhúsinu á jólunum1955. Leiktjöldin málaði Ragnar.
Guðmundur, Þórður, Ragnar Páll og Þórhallur.
áeggjan í framhaldinu. Guð-
mundur keypti saxófón, Þórhallur
var settur við píanóið, Þórður var
áfram á trommunum og ég á gítar.
Viðar Magnússon var söngvari og
seinna Baldvin Júlíusson. Þegar
Þórður hætti tók Jónmundur
Hilmarsson (Jómbi) við tromm-
unum. Bítlarnir, Shadows og eiri
frægar hljómsveitir komu fram um
Guðmundur og Þórhallur á
harmonikkur og mágur þeirra
Þórður Kristinsson á trommur.
Nokkrar breytingar urðu að minni
Gautarnir spiluðu í Alþýðuhúsinu
um þetta leyti. Þegar ég var 17 ára
fór ég að spila með Gautunum.
Mætti þangað með minn rafgítar.
Þá voru í Gautunum þeir bræður
brúnu, svo eitthvað sé nefnt.
beiningum um gripin en fór líka
í tíma hjá Einari Sveinbjörnssyni
sem var sjálfur í stífu ðlunámi.
Á sumrin kom hann frá Eyrar-
bakka til Sigluarðar með föður
sínum sem kom til síldarvinnu.
Hjördís Vilhjálmsdóttir Hjartar-
sonar varð síðar eiginkona Einars
og þau bjuggu lengst af í Malmö
þar sem Einar var konsertmeistari
sinfóníuhljómsveitarinnar. Nokkrir
möguleikar voru í bænum fyrir þá
sem vildu læra á hljóðfæri. Píanó-
kennsla var hjá Guðnýju Fanndal
og Jóni Ásgeirssyni tónskáldi, hálf-
bróður Braga Magnússonar, og
einnig hjá Hauki Guðlaugssyni
sem stjórnaði karlakórnum Vísi
í nokkur ár og varð síðar söngmála-
stjóri þjóðkirkjunnar. Talandi um
15