Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2018, Blaðsíða 22
22 Siglfirðingablaðið
Guðsmaðurinn Gústi dró ekki af sér þegar gestir gengu til kirkju.
Gestirnir sleiktu sólina enda Siglóblíðan einstök.
á slá og hlaut gott klapp fyrir.
Það riaðist upp fyrir við-
stöddum, að stjórnandinn,
Helgi Sveinsson, hafði einnig
stjórnað mleikasýningu á 25
ára afmælishátíð kaupstaðarins.
Fimleikamennirnir heiðruðu
stjórnanda sinn að lokinni
sýningunni með sérstakri gjöf,
styttu af mleikamanni úr silfri.
Meðan börn og unglingar
skemmtu sér við að horfa á þá
Bessa Bjarnason og Gunnar
Eyjólfsson við barnaskólann,
hröðuðu aðrir sér að íþrótta-
vellinum, þar sem fram fór
knattspyrnukeppni milli heima-
manna og Siglrðinga búsettra
annarsstaðar. Vildu estir
ógjarnan missa af því að sjá
heimamenn veita „óttamönn-
unum“, eins og heimamenn
glottandi nefndu þá burtuttu,
verðskuldaða ráðningu. Urðu
þeir heldur ekki fyrir von-
brigðum því að leiknum lyktaði
með glæsilegum sigri heima-
manna.
Síðan dreifðist mannöldinn —
sumir til þess að skoða málverka-
og ljósmyndasýningu, sem
opnuð hafði verið í gagnfræða-
skólanum, en aðrir til þess að
tryggja sér aðgöngumiða að
músíkkabarett, sem sýndur
var í bíóinu um kvöldið. Fram
eftir nóttu var svo stiginn dans
í samkomuhúsunum báðum, en
á sunnudag var hátíðardag-
skránni haldið áfram.
Myndirnar sem hér fylgja, tók Haiði Guðmundsson kennari
þessa umræddu hátíðisdaga í júlí 1968.