Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2018, Blaðsíða 30
Siglfirðingablaðið
hljómsveitir lifði hún ekki mjög lengi
og lagðist af þegar Siggi Hólmsteins
fór í M.A. Hann fór hins vegar að
spila á Akureyri á menntaskólaárum
sínum með nokkrum af Bravó
Bítlunum, m.a. til að eiga fyrir
"nauðþurftum" um helgar eins og hann
tæpti á þegar ég talaði við hann.
Tramps án Þolla en
með Jónsa Ægis.
Gunnar, Jóhann og
Nonni Baddi.
Hljómsveitin Hendrix
var nefnd eftir gítargoðinu
Það mun að öllum líkindum hafa verið
öðru hvoru megin við áramótin 1968/69
að þrír ungir menn rétt ófermdir fóru
að æfa saman. Þórhallur Ben á gítar,
Viddi "Bö" Jóhannsson á bassa og Óttar
Bjarna á trommur. Líklega var það svo
Óttar sem stakk upp á að fá orgel-
leikara í bandið og mun hafa bent á þann
sem þetta ritar, því Óttar vissi til þess
að það væri til nærri því aldargamalt
fótstigið orgel heima hjá mér. Ég taldist
því væntanlega líklegri en aðrir til að
geta spilað eitthvað á slíkt hljóðfæri.
Það reyndist þó ekki vera svo, því ég
gat varla komist í gegnum Gamla Nóa
klakklaust, en var engu að síður ráðinn
formlega í bandið. Og menn dóu ekki
ráðalausir, því Óttari hafði verið komið
í píanótíma hjá Gerhard Schmidt sem
var nokkuð sem hann hafði minna en
engan áhuga á. Hann eygði hins vegar
kærkomna undankomuleið út úr píanó-
tímunum með aðkomu minni og samdi
við Gerhard um að ég yrtæki tímana
hans, en á þessum árum var oft langur
biðlisti inn í slíka skóla. Þetta var síðan
samþykkt af öllum aðilum okkur bæði
til svolítillar furðu, en allmikils léttis.
Þá var næsta mál að komast yr rafmagns-
orgel, en sá hluti málsins leystist einnig
farsællega. Ég fékk notaða Teiscord "öl"
Gunnar Trausti og Gummi
Ragnars í skólaferðalagi
1970. Míle þjálfari kallaði
þá Gúní og Gúmí.
30