Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2019, Page 2
Siglfirðingablaðið2
SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ
FRÉTTABLAÐ SIGLFIRÐINGAFÉLAGSINS
ÚTGEFANDI OG ÁBYRGÐ:
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ
RITSTJÓRI:
Gunnar Trausti
Fr
á
rit
st
jó
ra Ágætu Siglfirðingar!
Dugnaði Siglfirðinga hefur
verið við brugðið. Og þar
hafa siglfirskar síldarstúlkur
borið frægð bæjarins hæst.
Sá sem þetta ritar man eftir
móður sinni komandi heim
eftir síldartörn og leggjast á
eldhúsgólfið og láta líða
úr sér.
Nú ætla ég að stinga uppá því við Siglfirðinga
nær og fjær að við sameinumst um að reisa
MINNISMERKI UM SÍLDARSTÚLKURNAR
Á SIGLUFIRÐI
sem verði ekki gerður minni vegur en þeim
séra Bjarna og Gústa Guðsmanni.
Alla Eysteins verði fengin til að gera styttur af
amk.10 síldarkerlingum í fullum skrúða auk
síldarkassa fullum af silfri hafsins.
Mín hugmynd um staðsetningu er torgið sjálft!
Ási í Bæ yrkir svo um Síldarstúlkurnar:
Ennþá er mér í minni
meyjarbros og tár,
skellóttur skýlu klútur
og skollitað undir hár,
glettni í gráum augum
gamanyrði á vör,
dansinn á bátabryggju
blossandi æskufjör.
Það er næsta víst að Ísland hefði orðið töluvert eins
leitara ef síldin á Siglufirði hefði ekki komið til.
Og Siglufjörður má þakka það þessum dugmiklu
ættmæðrum sínum sem með ósérhlífni og krafti
byggðu upp síldarbæinn. Stóðu vaktina oft í 2530
tíma við að koma silfri hafsins í tunnur:
Product of Siglufjörður.
Stærsti og þekktasti síldarbær í heimi.
Gunnar Trausti
Réttingaverkstæði
Litróf
umhverfisvottuð prentsmiðja
Sími 563 6000 · Vatnagörðum 14 · 104 Reykjavík · www.litrof.is