Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2019, Qupperneq 4
Siglfirðingablaðið4
Karlakórinn Vísir, förin til
Cannes og Gerhard Schmidt
(Fyrsti hluti af þremur - Vísir 95 ára í ár)
Frá upphafi til enda
í örstuttu máli.
Snemma vetrar 1923 komu nokk rir
Siglfirðingar saman fyrir tilhlutan
Halldórs Hávarðssonar, til að æfa
nokkur sönglög sér til dægrastytt
ingar. Vel tókst til og í framhald
inu var efnt til söngskemmtunar
sem haldinn var milli jóla og nýj
árs það ár í fimleikasal barnaskól
ans, sem þá var aðalsamkomuhús
bæjarins. Á gamlárskvöld var
svo sungið af svölum húss Helga
Hafliðasonar kaupmanns þar sem
nú er aðsetur Kiwanismana, við
mikinn fögnuð bæjarbúa sem
hylltu söngmennina ákaft.
Hrifning Siglfirðinga þetta kvöld
var mikil og ánægjan óblandin
yfir þeirri nýbreytni sem þarna
var tekin upp. Eftir þetta kvöld
mun það hafa legið í loftinu, að
eitthvað nýtt væri í uppsiglingu
í bænum, því fyrstu kynnin af
framtakinu lofuðu svo sannarlega
góðu. Það lá þess vegna beint við
að eftir áramótin var farið að ræða
stofnun kórs af meiri alvöru, og
var í framhaldinu kosin nefnd til
að setja hinu nýja söngfélagi lög.
Telst stofndagur hans vera 22.
jan. 1924 og eru því liðin 95 ár
frá stofnun hans í ár.
Stofnfélagar kórsins voru auk
Halldórs Hávarðasonar sem jafn
framt var stjórnandi hans:
1. tenór: Bjarni Hóseasson, Egil
Stefánsson, Guðmundur Fr. Guð
mundsson, Vilhjálmur Hjartarson
og Þorsteinn Gottskálksson
2. tenór: Guðlaugur Gottskálks
son, Helgi Kjartansson, Helgi
Stefánsson, Sigurður Jensson og
Friðrik Júlíusson.
1. bassi: Kjartan Jónsson, Christi
an Möller, Kristmar Ólafsson,
Tómas Gíslason og Pétur Björns
son.
2. bassi: Gunnlaugur Sigurðsson,
Jósep Blöndal, Dúi Stefánsson,
Óli G. Baldvinsson, Pétur Ver
mundsson og Sophus A. Blöndal.
Einsöngvarar með kórnum á
fyrstu 25 árum hans voru:
Sigurður Birkis tónlistarmaður,
Aage Schiöth lyfsali, Ghristian
Möller lögregluþjónn, Daníel
Þórhallsson síldarsaltandi og
útgerðarmaður, Erling Ólafs
son bróðir Sigurðar Ólafssonar
söngvara og hins landsfræga
hestamanns sem var faðir Þur
íðar Sigurðardóttur söngkonu,
Halldór Kristinsson læknir, Jón
Gunnlaugsson rafvikjameistari,
Kjartan Sigurjónsson óperusöng
vari sem kom frá Vík í Mýrdal,
Sigurjón Sæmundsson prentari
og bæjarstjóri, og Þorsteinn H.
Hannesson óperusöngvari.
Því miður andaðist Halldór
Hávarðason um vorið 1924 en
Tryggvi Kristinsson kirkjuorgel
leikari tók þá við söngstjórninni
og annaðist hana allt til ársins
1929 þegar Þormóður Eyjólfsson
tók við af honum. Þormóður
stjórnaði kórnum í heil 23 ár af
miklum dugnaði og óhætt er að
segja að hann hafi bæði eflt hann
og bætt. Hann leitaðu m.a. upp
góða söngmenn í öðrum héruð
um eða jafnvel landshlutum og
fékk þá til að flytjast til Siglufjarð
ar og syngja með kórnum. Góð
dæmi um það eru m.a. Björn
Frímannsson sem kom úr Fljót
unum og Daníel Þórhalls sem
fluttist til Siglufjarðar alla leið frá
Hornafirði. Þá fékk hann bróður
sinn Sigurð Birkis söngkennara til
koma til Siglufjarðar um tíma og
þjálfa kórfélaga. Sigurður Birkis
mun einnig hafa verið fyrsti ein
söngvarinn sem söng opinberlega
með karlakórnum Vísi. Óhætt er
að segja að undir stjórn og leið
sögn þeirra bræðra hafi kórinn
átt glæstan feril um langt árabil
og verður þeim seint fullþakkað
fyrir framlag sitt til siglfirskrar
tónlistar iðkunar.
Tónskóli Karlakórsins Vísis var
svo stofnaður árið 1951, en Þor
móður lét af kórstjórn árið 1954
þá sjötugur að aldri og við tók
Haukur Guðlaugsson sem síðar
varð söngmálastjóri kirkjunnar.
Hans naut þó stutt við því Hauk
ur fór erlendis til framhaldsnáms
árið 1955 og eftir það varð tals
verð lægð í starfseminni því ekki
tókst að fá fastan söngstjóra. Vísir
kom þó nokkrum sinnum opin
berlega fram, m.a. undir stjórn
Páls Erlendssonar, Sigursveins
D. Kristinssonar og Róberts A.
Ottóssonar. Óhætt er þó að segja
að hjólin hafi aftur farið að snúast
af alvöru þegar Gerhard Schmidt
var ráðinn söngstjóri árið 1964,
en hann hafði þá áður tekið
við stjórn lúðrasveitarinnar og
sinnt tónlistarkennslu í bænum.
Hófst þá kórinn aftur til vegs og
virðingar og átti eftir það sinn
annan glæsta feril sem stóð yfir í
u.þ.b. áratug.
Eftir að hann fluttist aftur til
Þýskalands 1975 fór verulega að