Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2019, Síða 13
Siglfirðingablaðið 13
inn og Karlakórinn Vísir, en nafn
plötunnar var “Ég bið að heilsa”.
Lögin á henni voru: Ég bið að
heilsa, Sólseturljóðin, Smala
drengurinn, Smalastúlkan og lag
sr. Bjarna, Ég vil elska mitt land
sem var flutt af Vísi.
Þótt þú langförull
legðir.
Árin liðu og karlakór
inn var aftur orðinn
stolt Siglufjarðar og landsþekktur
fyrir gæði og talinn meðal bestu
karlakóra landsins. Hinn nýi
stjórnandi Gerhard Schmidt var
óhræddur við að fara nýjar leiðir í
nálgun sinni og undir hans stjórn
fór kórinn í samstarf við dans
hljómsveitina Gauta sem starfaði
á Siglufirði og átti það samstarf
eftir að vara í heilan áratug. Undir
hans stjórn má segja að Karlakór
inn Vísir hafi á margan hátt náð
hápunktinum á ferli sínum árið
1966, sem stóð í 60 ár. Það ár
var mikið að gerast hjá kórnum,
en þá gaf hann út breiðskífuna
“Þótt þú langförull legðir” sem
innihélt 14 lög, bæði klassísk
kórlög svo og léttari lög í bland.
En þarna kvað við alveg splunku
nýjan nýjan tón, því segja má að
gamla karlakórsformið hafði verið
víkkað verulega út og blandaði
kvartettinn sem ásamt meðlimum
úr danshljómsveitinni Gautum
ásamt Tómasi Sveinbjarnrsyni,
breytti allri tónlistarlegri ásýnd
kórsins svo að nærst lagi er að
tala um byltingu í þeim efnum.
Blandaði kvartettinn gerði hreint
allt vitlaust í öllum óskalagaþátt
um með laginu “Kveiktu ljós”
sem var erlent lag við íslenskan
texta Hafliða Guðmundssonar
kennara og óhætt er að segja að
þarna hafi alveg ný skrautfjöður
bæst í hina siglfirsku tónlistar
flóru. Ekki voru þó allir kórfröm
uðir landsins sáttir við þá miklu
breytingu sem þarna hafði orðið
og heyrst hefur að einhverjir
hafi uppnefnt Vísi Poppkórinn,
sem átti þá að vera á heldur
neikvæðum nótum og laust við
þá virðuleikaímynd sem alvöru
karlakórum sæmdi.
Þá verður að geta þess að einnig
var á plötunni lagið “Ciribiri
bin” þar sem stjórnandinn blés í
trompetinn með þeim hætti sem
fæstir höfðu heyrt áður. Platan
hlaut líka heldur betur góðar
viðtökur, seldist í um þrjú þúsund
og fimm hundruð eintökum sem
var einsdæmi þegar kórtónlist
var annars vegar og varð þannig
ástæða fararinnar til Cannes í
Frakklandi tveimur árum síðar.
Jólaplatan.
Sama ár og metsölu
platan “Þótt þú lang
förull legðir” kom út,
sendi kórinn frá sér jólaplötu sem
innihélt 4 lög. Heims um ból,
Hljóða nótt, Hvít jól og Ó, Isis
og Ósiris, en í því síðastnefnda
söng Þórður Kristinsson einsöng.
Útgefandi að báðum síðastnefndu
plötunum var Fálkinn og stjórn
andi var að sjálfsögðu Gerhard
Schmidt.
Okkar glaða
söngvamál.
1968 kom út önnur
breiðskífa á vegum
Fálkans. Sú fékk heitið Okkar
glaða söngvamál og hlaut ágæta
dóma í Tímanum og Morgun
blaðinu en þá var ekki sjálfgefið
að kóraplötur fengju gagnrýni í
fjölmiðlum. Platan var tekin upp
í sal Ríkisútvarpsins vorið 1969
þegar kórinn var á söngferðalagi
sunnanlands, tuttugu lög voru