Fréttablaðið - 21.06.2022, Side 2
gar@frettabladid.is
STANGVEIÐI Kamila Walijewska
veiddi í gær fyrsta lax sumarsins í
Elliðaánum. Ásamt Marco Pizzolato
var Kamila í gær útnefnd Reykvík-
ingur ársins og var boðið að kasta
f lugu fyrir fisk á opnunardegi Ell-
iðaánna. Marco veiddi einnig lax í
gær.
Kamila og Marco standa að frí-
skáp á Bergþórugötu, sem fólk getur
gefið mat í og aðrir nýtt sér.
Laxinn sem Kamilla veiddi var sá
fyrsti af fjórum sem veiddust í gær.
Tveir laxar tóku f luguna á Breið-
unni og tveir í Árbæjarhyl, að sögn
Árna Kristins Skúlasonar, sölu- og
þjónusturáðgjafa hjá Stangaveiði-
félagi Reykjavíkur.
Öllum löxunum var sleppt eins
og reglur gera ráð fyrir í Elliðaánum
að sögn Árna sem kveður útlitið
gott fyrir veiðina í sumar. n
Kamila landaði fyrsta laxi sumarsins
mhj@ frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Skýrsla Ríkisendur-
skoðunar um sölu á hlut ríkisins í
Íslandsbanka verður ekki tilbúin
fyrir júnílok eins og stefnt var að.
„Við erum enn að vinna á fullu
í þessu og ætlum að reyna að klára
þetta í júlí. Það er útséð með að við
náum að klára þetta núna í júní-
mánuði,“ segir Guðmundur Björg-
vin Helgason ríkisendurskoðandi.
Fundum Alþingis var frestað í
síðustu viku en þing verður sérstak-
lega kallað saman síðar í sumar til
að ræða skýrsluna. Til stóð að þing
kæmi saman seint í júní í þeim til-
gangi en nú má búast við að það
dragist fram í ágúst. n
Tafir á skýrslu um
sölu Íslandsbanka
Loksins
Karlalið Fram í fótbolta spilaði sinn fyrsta heimaleik á nýjum og glæsilegum heimavelli í Úlfarsárdal í gær. Liðið gerði 3 -3 jafntefli við ÍBV. Völlurinn er glæsi-
legur og tekur 1.600 áhorfendur í sæti. Fyrsti leikurinn á nýja vellinum fór fram á laugardag þegar kvennalið Fram vann sigur gegn KH. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Marco Pizzolato frá Sviss og hin
pólska Kamila Walijewska.
MYND/EMIL TUMI VÍGLUNDSSON
Sjósundkappinn Sigurgeir
Svanbergsson ætlar að þreyta
svokallað Eyjasund í lok júlí,
þegar hann mun synda frá
Vestmannaeyjum og yfir til
Landeyjasands. Sundið er
til styrktar Barnaheillum,
börnum sem búa á átaka-
svæðum.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Ég er nú vonandi að fara
að ná í land. Það er allavega mark-
miðið,“ segir sjósundkappinn Sigur-
geir Svanbergsson léttur í bragði, en
hann stefnir á að synda svokallað
Eyjasund í júlí.
Sundið verður til styrktar Barna-
heillum en hann synti í fyrra þvert
yfir Kollafjörð, frá Kjalarnesi yfir til
Reykjavíkur og safnaði þá fyrir Ein-
stök börn.
„Það eru fimm búnir með þetta
sund, sú síðasta árið 2019. Ég hef
hins vegar ekki hugmynd um hvað
margir eru búnir að reyna og trúlega
enn fleiri sem hafa hugsað þetta,“
segir Sigurgeir, sem viðurkennir að
vera hálfruglaður að vera að fara í
þetta ferðalag, sem telur um 10-12
kílómetra.
„Mér finnst gaman að sjá, og það
er sko brennandi áhugi, að finna
hvað gerist í hausnum þegar maður
er kominn í einhverjar ástæður sem
eru þannig að þær klára mann alveg.
Til dæmis í í líkamsræktarsal er
hægt að hætta. Valmöguleikinn er
að stoppa og hætta en þarna er ég að
setja mig í aðstæður þar sem maður
verður að halda áfram.“
Sigurgeir segir að hann hafi lært
af reynslunni í fyrra og sé mun
skipulagðari og þá sé hann orðinn
betri sundmaður. „Í fyrra kunni
ég bara nánast bringusund,“ segir
hann og hlær.
Leiðin er rúmir 12 kílómetrar
í hnitum en straumar og annað
gætu lengt leiðina um einhverja
metra. Hann óttast lítið á leiðinni
en er búinn að lesa sér mikið til um
háhyrninga – sem nóg er af á þessari
leið.
„Það er allt morandi í háhyrn-
ingum í kringum Vestmannaeyjar
og þegar ég sá það fór ég að spá í
hvort þetta væri sniðugt. En hegð-
un þeirra er þannig að maður þarf
ekkert að óttast – þetta er forvitin
tegund og ég er meira spenntur að
fá að synda með þeim en eitthvað
annað. Ef þeir kíkja á mann er það
vegna forvitni eða til að leika.“
Sigurgeir er búsettur austur á
fjörðum en segir að sjórinn þar sé
of kaldur fyrir langt sund. Sjórinn
sé hlýrri sunnan heiða og henti því
betur.
Hann segir að valið um Barna-
heill hafi verið einfalt. Stríðið í
Úkraínu er nánast í bakgarði Evr-
ópu og hann fylgist með fréttum.
„Úkraínustríðið er að minna mann
á hvað er að gerast í heiminum,“
segir Sigurgeir. n
Vonast eftir háhyrningum
á sundi frá Eyjum til lands
Sigurgeir syndir til styrktar börnum sem búa á átakasvæðum. Undirbúningur
er í fullum gangi og Sigurgeir hefur farið mjög fram í sundi. MYND/AÐSEND
Eyjasundshetjurnar
n Eyjólfur Jónsson 13.07. 1959. Tími 5 klst. og 26 mín.
n Axel Kvaran 21.07. 1961. Tími 4 klst. og 25 mín.
Var tekinn um borð í bát þegar hann átti um 150 metra eftir í land
vegna mikils brims.
n Kristinn Magnússon 30.08. 2003. Tími 4 klst. og 5 mín.
n Jón Kristinn Þórsson 04.08. 2016. Tími 7 klst. og 21 mín.
n Sigrún Þuríður Geirsdóttir 23.07. 2019. Tími 4 klst. og 31 mín.
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30
Fréttaumfjöllun fyrir alla.
í opinni dagskrá á virkum dögum
á Hringbraut og frettabladid.is
Við erum enn að vinna
á fullu í þessu og
ætlum að reyna að
klára þetta í júlí.
Guðmundur
Björgvin Helga-
son, ríkisendur-
skoðandi
2 Fréttir 21. júní 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ