Fréttablaðið - 21.06.2022, Qupperneq 6
400 m
400 m
ninarichter@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Stærsta gámaf lutn-
ingaskip í heimi, Ever Ace, lagði að
bryggju í stærstu gámahöfn Bret-
lands í Suffolk í gær, að viðstöddum
fjölda áhorfenda.
Skipið sem sigldi frá Rotterdam,
er 400 metrar að lengd og 60 metrar
á breidd og getur tekið allt að 23.992
staðlaða gáma, f leiri en nokkurt
annað skip.
Skipið er á vegum taívanska
skipafélagsins Evergreen Marine
Corporation, sem komst í heims-
fréttirnar í mars í fyrra þegar skip á
vegum félagsins stíflaði Súez skipa-
skurðinn í sex daga.
Ever Ace var byggt 2021 og sigldi
jómfrúarferðina í september í fyrra.
Á meðfylgjandi mynd má átta sig
á umfangi og stærð skipsins þar sem
það myndi teygja sig frá Geirsgötu
að Tjörninni.
Þess má geta að lengsta f lutn-
ingaskip sem byggt hefur verið er
hið japanska TT Seawise Giant sem
byggt var árið 1979. Skipið hafði
657,019 tonna flutningsgetu og var
selt í brotajárn árið 2009. ■
Stærsta flutningaskip heims næði frá Geirsgötu að Tjörninni
Logi Már Einarsson fær góð
eftirmæli sem formaður
Samfylkingarinnar þótt hans
verði ekki minnst með mestu
leiðtogum. Meiri óvissa
sögð um næstu skref Dags B.
Eggertssonar en Kristrúnar
Frostadóttur.
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Talið er nánast öruggt
að Kristrún Frostadóttir taki við
formennsku eða varaformennsku
í Samfylkingunni í haust. Meiri
óvissa er sögð um hvort Dagur B.
Eggertsson bjóði sig fram. Hvorki
Dagur né Kristrún gefa að sinni kost
á viðtölum.
„Logi verður kannski ekki talinn
meðal stórra leiðtoga í íslenskum
stjórnmálum en hann tók við
flokknum eftir einstakar hrakfarir
árið 2016 og tókst að halda flokkn-
um á f loti með þrjá þingmenn,“
segir Ólafur Þ. Harðarson stjórn-
málafræðiprófessor, sem áætlar að
sagan muni minnast Loga frekar vel
sem formanns.
Undir það tekur Jóhann Páll
Jóhannsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar: „Loga fylgir mikil
gleði , auðmýkt og óeigingirni, það
er gott að vinna með honum. Ég er
ánægður með að hann verði áfram
í hópnum.“
Um leið og Logi tilkynnti í Frétta-
blaðinu ákvörðun sína um helgina
fóru fjölmiðlar að ræða mögulega
arftaka. Jóhann Páll segist vel sjá
fyrir sér að Kristrún verði formaður
eða varaformaður flokksins. Ólafur
segir að nöfn hennar og Dags séu efst
á baugi hvað varðar arftaka Loga.
„Þau tvö eru athyglisverðir kostir.
Báðir frambjóðendur hafa eigin-
leika sem geta gagnast foringjum
mjög vel, en það eru ekki endilega
sömu kostirnir hjá þeim tveimur,“
segir Ólafur.
Ólafur segir að Kristrún hafi
stimplað sig inn sem mikill spútnik
í pólitík. Hún sé sérlega öflugur tals-
maður jafnaðarstefnunnar og sér-
hæfð í efnahagsmálum. „Sem dæmi
man ég fyrir síðustu kosningar að
hún var í debatt við Bjarna Ben um
efnahagsmál. Þá tók ég eftir að hún
átti algjörlega í fullu té við Bjarna í
umræðu um efnahagsmál. Það eru
ekki margir sem ráða við það,“ segir
Ólafur.
Einnig bendir Ólafur á að Krist-
rún tali mannamál, hún njóti virð-
ingar hjá andstæðingum og það sé
áhugavert hvernig hún tengi efna-
hagsmál líðandi stundar við grunn-
hugmyndir jafnaðarstefnunnar.
„Hún er óvenjulegur stjórnmála-
maður að þessu leyti,“ segir Ólafur.
Um Dag segir Ólafur að árangur
hans sé mikill og Dagur hafi sýnt að
hann sé í hópi okkar klókustu stjórn-
málamanna. Sérstakur styrkur sé að
Degi hafi tekist að vinna í fjögurra
flokka meirihluta í Reykjavík. Þótt
meirihluti falli nái hann að bræða
saman nýjan. „Þetta skiptir máli
vegna þess að í landsmálum virðist
ólíklegt að hægt sé að mynda þriggja
flokka stjórn án þess að sjálfstæðis-
menn séu hluti hennar," segir Ólafur.
Hann bætir við: „Vill Dagur taka
að sér svo erilsamt starf að vera
formaður flokks, sem er enn meiri
vinna en að vera borgarstjóri? Af
persónulegum ástæðum kann
Dagur sjálfur að hafa efasemdir, þar
gætu spilað inn í fjölskyldumál eða
heilsa,“ segir Ólafur.
Heiða Björg Hilmisdóttir, vara-
formaður Samfylkingarinnar, segist
engin áform hafa um annað en að
bjóða sig áfram fram til varafor-
manns í haust. ■
Talið er öruggt að Kristrún bjóði sig
fram til forystu hjá Samfylkingunni
Kristrúnu
Frostadóttur
skaut hratt upp
á stjörnuhimin
Samfylkingar-
innar en hún
situr nú sitt
fyrsta kjörtíma-
bil á þingi og er
strax orðuð við
formannsemb-
ættið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Dagur B.
Eggertsson,
borgarstjóri
Heiða Björg
Hilmisdóttir,
varaformaður
Samfylkingar-
innar
Ólafur Þ.
Harðarson,
prófessor í
stjórnmálafræði
Lengd Ever Ace er á
við hæð fimm
Hallgrímskirkjuturna.
Áttu rétt á veitingahúsa- eða viðspyrnustyrk?
Nánari upplýsingar á skatturinn.is
skatturinn@skatturinn.is 442 1000
Umsóknarfrestur er til 30. júní 2022
ser@frettabladid.is
REYKJAVÍK Öryggishliðið framan
við Alþingishúsið í Kirkjustræti er
komið til að vera, en það var sett
upp í tilefni af smíði nýs hótels á
Landssímareitnum við Austurvöll.
Skrifstofa Alþingis hefur nú feng-
ið því framgengt að sá hluti Kirkju-
strætis sem er framan við byggingar
þingsins verði göngugata.
Verður ráðherrabílum framvegis
lagt í bílakjallara en ekki framan við
þinghúsið. Rútum með gestum nýs
hótels við Austurvöll verður beint á
sérstakt rútustæði við Ráðhúsið. ■
Hliðið við þingið
komið til að vera
Öryggishliðið við Alþingishúsið.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ser@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Flugsamgöngur eru
að komast á sama damp og þær voru
fyrir heimsfaraldurinn, sem sést
meðal annars á því að losun koltví-
sýringsígilda vegna flutninga með
flugi á fyrsta ársfjórðungi 2022 var
fjórfalt meiri en á sama tíma í fyrra.
Losunin nam um 86 kílótonnum
samkvæmt bráðabirgðaútreikningi
á losunarbókhaldi innan hagkerfis
Íslands og á talsvert langt í land með
að vera á pari við það sem mest var
2018, þegar losunin nam 541 kíló-
tonni. Gildið 2022 er því aðeins 16
prósent af hæsta gildinu. ■
Útblástur í flugi
hefur fjórfaldast
Reykjavíkurtjörn
Arnarhóll
6 Fréttir 21. júní 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ