Fréttablaðið - 21.06.2022, Side 13
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS
Fasteignablaðið
25. TBL. 21. JÚNÍ 2022
Einbýlishúsið
að Ásbúð 58 var
byggt árið 1980.
Opið hús verður
á morgun,
miðvikudaginn
22. júní á milli
klukkan 17.30
og 18.
Fasteignasalan Miklaborg
kynnir til sölu frábærlega
skipulagt og vel staðsett
einbýlishús á einni hæð við
Ásbúð 58 í Garðabæ.
Húsið hannaði Kjartan Sveinsson.
Það er 196,4 fermetrar og stendur
á stórri, fallegri lóð. Í því eru stórar
stofur með aukinni lofthæð, fjögur
svefnherbergi, tvöfaldur bílskúr,
snyrting, bað og þvottahús.
Aðgengi að húsinu er mjög þægi-
legt og íbúðargatan bæði rúmgóð
og róleg. Komið er inn í anddyri
með gestasnyrtingu inn af. Næst
er skáli sem tengir rúmgóðar
bjartar stofur með mikilli lofthæð,
sem og svefnálmu, þar sem eru
fjögur svefnherbergi samkvæmt
teikningu, en einu þeirra hefur
verið breytt í sjónvarpshorn inn af
skálanum.
Til móts við anddyrið er gengið
beint út á skjólsælan pall úr timbri,
sem snýr í suðaustur. Hjónaher-
bergið er innst í svefnálmunni,
með góðum skápum. Við hlið þess
er þvottahús með útgengi í garðinn
til austurs.
Baðherbergið er snyrtilegt með
góðri innréttingu og bæði baðkeri
og sturtu. Á svefnherbergisgang-
inum eru nú tvö barnaherbergi,
en þrjú samkvæmt teikningu, og
er auðvelt að breyta aftur í fyrra
horf. Eldhúsið er hálfopið inn af
stofunni, með góðum skápum og
vinnuplássi.
Bílskúrinn er tvöfaldur, alls 52
fermetrar, bæði með vatni og raf-
magni.
Lóðin er stór, alls 1.030 fermetr-
ar, og garðurinn fallegur. Austan
við húsið er fagur trjálundur með
heillandi kofa í gömlum stíl, sem er
notaður undir garðáhöld.
Húsið var byggt árið 1980 og er
að mestu upprunalegt og vel með
farið. Flísar eru á votrýmum og
skála, en önnur gólf eru parket-
lögð.
Ásbúð 58 er sérlega vel skipulagt
og skemmtilegt einbýli á vinsælum
stað í Garðabæ og sem nýtist vel.
Þak var pússað og málað fyrir
fáeinum árum. Húsið er einkar vel
staðsett; innan við tíu mínútna
gangur er í nýju íþróttamiðstöðina
í Miðgarði og örstutt í Mýrina,
Hofsstaðaskóla og Fjölbrauta-
skólann í Garðabæ.
Seljendur eru að leita að 3 til 4
herbergja íbúð í Sjálandshverfi í
Garðabæ, ekki á neðstu hæð og
með einhverju sjávarútsýni. Skipti
koma vel til greina. ■
Allar frekari upplýsingar gefur
Þórunn Pálsdóttir, löggiltur fast-
eignasali, í síma 773 6000 og á
netfanginu thorunn@miklaborg.is
Einbýli á vinsælum stað í Garðabæ
Stofurnar
í Ásbúð 58
eru stórar og
bjartar, með
fallegu útsýni
út í gróinn
og heillandi
garðinn.
VIÐ LEIÐUM ÞIG HEIM
Hlíðasmára 2 Sími: 512 4900201 Kópavogur www.landmark.isLandmark fasteignamiðlun
Nútímaleg, kraftmikil og framsækin fasteignasala sem byggir á áratuga reynslu starfsmanna!
Reykjavík
Snæfellsbæ
Höfn Hornafirði
Síðumúla 27 | 588 4477 | www.valholl.is
Fagleg þjónusta
Vönduð vinnubrögð
Ingólfur Geir Gissurarson
Framkvæmdastjóri,
lögg.fast., leigumiðlari
896 5222
ingolfur@valholl.is
Hildur Harðardóttir
Lögfræðingur, lögg. fast.,
skjalagerð.
897 1339
hildur@valholl.is
Heiðar Friðjónsson
Sölustjóri,
lögg. fast. B.Sc
693 3356
heidar@valholl.is
Snorri Snorrason
Löggiltur fasteignasali
895 2115
snorri@valholl.is
Hrafnhildur B. Baldursdóttir
Löggiltur fasteignasali.
BA í Stjórnmálafræði.
862 1110
hrafnhildur@valholl.is
Pétur SteinarJóhannsson
Aðstoðarm. fasteignasala
Snæfellsnesi
893 4718
petur@valholl.is
Hólmfríður Björgvinsdóttir
Ritari
588 4477
ritari@valholl.is
Anna F. Gunnarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Lista og innanhús stílisti
892 8778
anna@valholl.is
Sturla Pétursson
Löggiltur fasteignasali
899 9083
sturla@valholl.is
Elín Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
695 8905
elin@valholl.is
Jónas H. Jónasson
Lögg. eignaskiptayfirlýsandi
Aðstoðarm. fasteignasala
842 1520
jonas@valholl.is
Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali.
Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is
TIL SÖLU REKSTUR Á TRAUSTRI EFNALAUG!
Rótgróin efnalaug á mjög góðum stað á höfuðborgarsvæðinu.
Nýleg tæki, langtíma leigusamningur (fasteign er hægt að kaupa líka).
Upplýsingar veitir Sigurður fasteignasali í gsm: 898 6106
Áb. Sigurður Gunnlaugsson löggiltur fasteignasali