Fréttablaðið - 21.06.2022, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
Sumarliði er víða og var frekur til
fjörsins þegar Bjartmar Guðlaugsson
og Bergrisarnir léku fyrir troðfullum
sal í Háskólabíói á 70 ára afmælis-
tónleikum textaskáldsins
og tónlistarmannsins á
laugardaginn.
Stuttermabolir með
mynd af Sumarliða
og yfirlýsingu hans
um að hann sé ekki
alki seldust nefnilega
eins og heitar lummur
á tónleikunum. „Við
seldum mikið magn af
bolum en það er eitt-
hvað til ennþá,“ segir
Elma, dóttir Bjartmars,
sem sá um tónleikana
og allt í kringum þá.
Þá bendir hún áhugasömum á
að fyrir þá sem vilja tryggja sér bol
sé einfaldast að senda henni bara
skilaboð á Facebook.
„Þetta hafði þvílíkt stemnings-
gildi á tónleikunum en f lestir
vippuðu sér í bolinn svo það
voru Sumarliðar úti um
allt,“ segir Elma og lætur
þess getið að Bjartmar
sjálfur hafi teiknað
myndina af Sumar-
l iða 1985. „ Hú n
hékk árum saman
í eldhúsinu hjá Erlu
tengdamömmu hans,“
segir Elma um Sumar-
liða, sem var haldið á lofti
í aðdraganda tónleik-
anna. „Svo við ákváð-
um í sameiningu, ég og
pabbi, að gera boli með
myndinni og þá lá beinast við að
hafa bara: „Ég er ekki alki“ með.“ ■
Ég er ekki alki
Sara og Styrmir, börn Elmu, í Sumar-
liðabolum sínum ásamt Bjartmari
afa sem bæði samdi um og teiknaði
þann kunnuglega kvist í þjóðar-
sálinni. MYNDIR/ELMA BJARTMARS
Andi Sumarliða sveif yfir
vötnum í Háskólabíói.
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
V
er
ð
o
g
v
ö
ru
u
p
p
lý
si
n
g
ar
í
au
g
lý
s i
n
g
u
n
n
i e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
u
m
p
re
n
tv
ill
u
r.
PÓSTLISTASKRÁNING
Viltu skrá þig á póstlista?
Skannaðu QR kóðann.
KOS
3XL sófi. Drapplitað slitsterkt áklæði.
248 x 100 x 84 cm. 239.992 kr. 299.990 kr.
ÚTSALA
SUMAR
Í FULLUM GANGI
SCOTT
Hornsófi, hægra eða vinstra horn. Kentucky koníak eða Stone
bonded leður. 293 x 217 x 85 cm. 195.993 kr. 279.990 kr.
20%
30%
20%
CLEVELAND
Hornsófi. Dökkgrátt áklæði. 308 x 203 x 81 cm.
139.993 kr. 199.990 kr. Hnakkapúðar seldir sér.
PASO DOBLE
Night Tungusófi. Hægri. Ljósgrátt áklæði. 311 x 156 x 80 cm.
271.992 kr. 339.990 kr.
40%
GIRONA
Hornsófi, hægri eða vinstri. Dalton grænt bonded leður.
262 x 202 x 82 cm. 143.994 kr. 239.990 kr.
ÚTSÖLUBÆKLINGUR Á
www.husgagnahollin.is/
baeklingar
18 Lífið 21. júní 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Að skjóta menn sem
hreyfðu sig allir í
slow-motion á færi eða
ganga upp að þeim og
berja þá var æðislegt.
Ný heimildarmynd um Nin-
tendo 64 leikinn Goldeneye
er væntanleg á 25. afmælisári
leiksins. Andlit Pierce Brosn-
an strekkt yfir örfáa marg-
hyrninga er enn ein af helstu
táknmyndum leikjasögunnar.
arnartomas@frettabladid.is
Tölvuleikurinn Goldeneye frá árinu
1997 kemur reglulega fyrir á listum
yfir áhrifamestu tölvuleiki sögunn-
ar. Þrátt fyrir að hafa elst frekar illa
þá olli leikurinn straumhvörfum í
fyrstu-persónu-skotleikjasenunni
og var í þokkabót svo góð útfærsla
á fyrstu Bond mynd Pierce Brosnan
að heil kynslóð tengir titilinn Golde-
neye frekar við tölvuleikinn heldur
en myndina.
Tilraunir til að endurgera Golden-
eye hafa í besta falli verið slappar
enda hefur umhverfi fyrstu persónu
skotleikja breyst mikið og er leikur-
inn barn síns tíma. Mikilvægi hans
í tölvuleikjasögunni verður þó ekki
dregið í efa og heimildarmynd um
leikinn er væntanleg í lok mánaðar.
Sú ber heitið Goldenera og verður
aðgengileg á vefnum á 25 ára afmæli
leiksins. En hvað var það eiginlega
við þennan leik sem situr enn í fólki
svona löngu síðar?
Leyniskyttublætinu svalað
„Fyrir mér er þetta einn af þessum
leikjum sem stóð upp úr og markaði
tímamót,“ segir Jón Gnarr sem var
einu sinni nörd. „Þetta var leikur sem
sló í gegn á mínu heimili og höfðum
við krakkarnir ógeðslega gaman af
því að spila hann. Þarna voru hlutir
sem ég hafði ekki séð áður, eins og til
dæmis að nota snip er-riffilinn sem
hægt var að zooma langt inn með.
Meðal þeirra fídusa sem Golden-
eye bauð upp á voru nýstárlegar
leiðir til að svindla, eitthvað sem Jón
nýtti sér til hins ítrasta.
„Ég hef alltaf haft sérstakt dálæti
á því að svindla í tölvuleikjum og
að spila Goldeneye í slow-motion
er einhver af mínum ánægjulegustu
leikjaminningum,“ segir Jón, en í
leiknum var hægt að svindla til að
láta andstæðingana hreyfa sig lötur-
hægt. „Að skjóta menn sem hreyfðu
sig allir í slow-motion á færi eða
ganga upp að þeim og berja þá var
æðislegt.“
Þá hefur Jón áður sagst alltaf
hafa leyft hægfara andstæðingum
sínum að draga vopn sín á loft áður
en hann gataði þá með fjölbreyttu
úrvali skotvopna. „Ég naut þess að
labba aftan að þeim, leyfa þeim að
sjá mig, og þegar þeir voru að draga
byssuna á loft þá drap ég þá,“ segir
Jón og rekur upp illkvittinn hlátur.
„Það var svolítill Predator í þessu.“
Einfaldari tímar
Á þessum tíma svalaði Jón einn-
ig stafrænni ofbeldishneigð sinni í
öðrum tímamótatitlum á borð við
Grand Theft Auto 3 sem kom út
stuttu síðar. Leikjaspilunin hefur þó
eitthvað minnkað síðan þá.
„Ég sæki svolítið í svona gamla
retróleiki og lengi vel gat ég spilað
gamla Apple-leikinn Shufflepuck
Café,“ segir Jón, sprengjandi nörda-
skalann. „Ég spilaði líka mikið af
Lemmings, en annars hef ég verið
að spila gömlu Heroes of Might
and Magic leikina og Warcraft. Mér
fannst þetta mjög gaman en þessir
leikir sem eru að koma út í dag
eins og Call of Duty eða Red Dead
Redemption eru bara allt of flóknir
fyrir mig.“ ■
Marghyrnd bylting Bonds
Þótt grafíkin
þyki ekki upp
á marga fiska
í dag var hún
byltingarkennd
árið 1997.
Oddjob var lágur í loftinu og erfitt
að koma á hann skoti í fjölspilun. Jón Gnarr