Fréttablaðið - 21.06.2022, Síða 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Péturs Georgs
Markan
n Bakþankar
Samgöngur eru æðakerfi sam-
félaganna. Ef æðarnar þrengjast,
teppast eða leggjast af er hætta á
drepi í hjartavöðvanum, áfalli sem
tjónar og drepur. Samgöngur ráða
takti atvinnulífsins – ef þær hiksta,
hnýtur kerfið allt. Ef það gerist
ítrekað leggst kerfið af og byggðin
visnar.
Uppgangur suðurfjarða Vest-
fjarða undanfarin ár hefur verið
aðdáunarverður – þar hefur skipt
sköpum leiftursókn nýrra atvinnu-
greina og fjárfestinga. Fiskeldi, kalk-
þörungavinnsla og ferðaþjónusta
bjóða ný störf og möguleika fyrir
fólk til að setjast að – rækta plássin
og menninguna. Fylla skólana, leik-
skólana og halda sveitarstjórnum
við efnið í skipulagsmálum.
Í einni vinnuferðinni hjá mér á
Bíldudal fylgdist ég sjálfur út um
gluggann með kappakstrinum um
bílastæðin á kajanum einn mánu-
dagsmorguninn í janúar – hver hefði
trúað því þegar plássið var í líknandi
byggðameðferð hjá stjórnvöldum.
Þessi viðsnúningur er í boði fólks-
ins á svæðinu, atvinnulífs og fram-
sýnna fjárfesta sem trúa á svæðið.
Þrátt fyrir þennan góða árangur
steðjar enn ógn að svæðinu – engar,
takmarkaðar eða úrsérgengnar
samgöngur einkenna stóran hluta
svæðisins.
Þegar kemur að samgöngum leiða
stjórnvöld framrásina. Eða öllu
heldur; ættu að gera það.
Baldur er 40 ára gömul ferja sem
tengir Vestfirði yfir Breiðafjörðinn
og bilar oft en reglulega er birtingar-
mynd þess að stjórnvöld hafa ekki
tekið þátt í viðsnúningi svæðisins af
sama krafti og dugnaði og heima-
menn. Ferja sem flytur líf á að vera
traustsins verð – ferja sem tengir
atvinnulíf og vörur við kaupendur
og neytendur þarf að vera áreiðan-
leg.
Nýjan, nútímalegan og öflugan
Baldur fyrir Vestfirði í vexti – þjóð í
vexti. n
Nýjan Baldur
FRÍTT
ALLAN HRINGINN
KAFFI
G E R I Ð G Æ Ð A - O G V E R Ð S A M A N B U R Ð
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
ENGJATEIGI 17-19,
REYKJAVÍK
S:581 2233
BALDURSNESI 6,
AKUREYRI
S: 461 1150
OPIÐ:
VIRKA DAGA.......KL. 10:00 -18:00
LAUGARDAGA....KL. 12:00 - 16:00
UMBOÐSAÐILAR:
HÚSGAGNAVAL, HÖFN Í HF.
BARA SNILLD, EGILSSTAÐIR
Svefn heilsa&
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUR OG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVAL AF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
VERSLANIR: