Fylkir


Fylkir - 01.12.2021, Síða 13

Fylkir - 01.12.2021, Síða 13
FYLKIR - jólin 2021 ° ° 13 og Haukur Högnasynir störfuðu báðir sem vörubílstjórar hjá Bif- reiðastöð Vestmannaeyja þar sem vatni var dælt í vatnstanka á vöru- bílunum og dælt í brunna heima- manna. Sáu þeir bræður til þess að aldrei varð vatnsskortur í Vatnsdal. Því má segja að Vatnsdalur hafi staðið undir nafni! Vatnið var sótt m.a. á Póstflatir í Friðarhöfn og í gamla vatnsbólið innst í Herjólfsdal. Þegar afgangur var í vatnstönkunum í lok dags fóru bræð- urnir af stað og gáfu vatnið til þeirra sem þurftu sannarlega á því að halda. Högni í Vatnsdal, Sigríður og Guðný Högni Sigurðsson fæddist í Görð- um 23. september 1874, sonur hjón- anna Sigurðar Sig- urfinnssonar hrepp- stjóra og Þorgerðar Gísladóttur. Tómt- húsið Garðar hvarf af yfirborði jarðar ári síðar en kofarnir í Görðum voru þá að fallni komnir. Í staðinn keyptu Sig- urður og Þorgerður tómthúsið Kokkhús og hófu þaðan at- vinnurekstur til sjós og lands. Í þessu umhverfi ólst Högni upp og vandist allri þeirri vinnu sem féll til. Sigurði Sigur- finnssyni fannst smæðarlegt að búa í tómthúsi sem þessu, það minnti hann á danska undirok- un. Hann vildi danskt vald úr vegi og ól upp Högna son sinn í þeim þjóðræknisanda. En 1877 kastaði Sigurður Kokkhúsnafninu af tómt- húsi sínu að Fífilgötu 2 og gaf því nafnið Boston en stórborgarnöfn á Eyjahúsum voru í tísku á þessum tíma. Sem dæmi voru tómthús- in París og London fyrir í Eyjum. Högni bjó í Boston til 19 ára aldurs. Hann átti tvö alsystkini, Guðmund sem bjó lengst af í Bandaríkjunum og dó frekar ungur og svo Hildi sem einnig dó ung að árum. Þá átti Högni tvo hálfbræður, þá Einar hraðfrystihúseiganda Sigurðsson og Baldur Sigurðsson bílstjóra í Heiði. Högna er lýst sem miklum að vallarsýn, þrjár álnir á hæð og gildur, hraust- menni að burð- um, virðulegur í fasi og fróðari flestum mönnum hér um slóðir eins og það var orðað í minningargrein. Högni hóf sjósókn með föður sínum 15 ára gamall á opnu skipi og héldu þeir feðgar lengi saman í sjó- sókn. Sigurður var m.a. formað- ur svokallaðrar bjargráðanefndar sem vann að ör- yggismálum og b j ö r g u n a r m á l - um sjómanna og bjargveiðimanna. Bjargráðanefndin lagði áherslu á að uppvaxandi kynslóð á hverjum tíma skyldi læra sund og sá Sigurður til þess að Högni sonur sinn gerði það. Högni var einnig glímumaður góður á yngri árum og fimleikamaður ágætur. Högni hneigðist snemma til mennta enda munu foreldrar hans hafa fyrirhugað honum lang- skólanám. Högni lærði latínu hjá embættismönnum og tók próf í þeirri fræðigrein. Haustið 1893 hleypti Högni heimdraganum og lærði tvo vetur við Flensborgar- skóla í Hafnarfirði og lauk þaðan námi og kennaraprófi með af- burðar námsárangri. Í skólanum bjó hann á heimavist og á milli skólavetra stundaði hann sjó á skútu frá Faxaflóa og kostaði þannig námið. Skólabróðir Högna frá þessum árum lýsir Eyjamann- inum þannig að hann var þrek- vaxinn, hár, prúðmannlegur og alvörugefinn. Hann þótti bera af öðrum piltum í skólanum um vöxt og afl og líkamsorku og fágaða framkomu, enda var hann eldri en flestir aðrir sveinar. Högni var dulur og hæglátur og gaf sig lítið að ærslum og gleðilátum skóla- félaganna. Svo glíminn var Högni að engir stóðu honum snúning í skólanum nema tveir skólapiltar. Í Flensborgarskólanum kom sund- færni Högna sér vel því hann var látinn kenna skólabræðrum sínum sundtökin sem hann lærði í Eyjum. En ekki var vatnið til að synda í og sjórinn þótti of kaldur. Því kenndi Högni skólabræðrum sínum sund- tökin á þurru landi. Hengdar voru upp eins konar rólur í fimleikasaln- um. Þar voru strigagjarðir sem piltarnir héngu láréttir í, ein undir brjósti, önnur undir kvið og svo gjarðir um hvort læri. Því er lýst þannig að piltarnir hafi dinglað þannig í rólunum og lærðu þannig sundtökin hjá Högna sem kenndi þeim af lifandi huga að beita orku sinni á sundi. Piltarnir höfðu mikla ánægju og gagn af sundkennslu Högna þótt hún færi fram með þessum óvenjulega hætti og hafa eflaust æft sundtökin síðar í vatni eða sjó. Segja má að Högni hafi komið úr Flensborgarskólanum sem vel menntaður maður á þess tíma mælikvarða, þaðan kom hann vel undirbúinn og lagði í raun aldrei frá sér bókina. Hann varð snemma víðlesinn og gat jafnan miðlað öðrum af fróðleik sínum, enda mun um margra ára skeið engin fræðibók hafa komið út á Íslandi svo að Högni læsi hana ekki. Að námi loknu flutti Högni austur að Nesi í Norðfirði þar sem hann var í sex ár barnakennari á veturna en sjó yfir sumarið. Þar var hann um skeið formaður á árabáti og aflaði vel. Ekkert skólahús var þá í Norðfirði og hefur Högni stund- að þar umgangskennslu sem þá var kölluð eða farkennslu. Högni lét talsvert að sér kveða í menn- ingarlífinu í Norðfirði enda var hann söngelskur og tók þátt í sönglífi í Eyjum á uppvaxtarárum sínum. Á Nesi í Norðfirði kenndi hann nemendum sínum m.a. söng. Í Norðfirði kynntist Högni fyrri konu sinni, Sigríði Brynjólfsdóttur frá Garðbæ í Reykjavík sem leitað hafði austur í kaupavinnu. Hún var næstum þrem árum yngri en Högni, fædd 29. júní 1877. Þau giftust í Norðfirði 5. mars 1899 en tveim árum áður fæddist þeim fyrsta barnið sem hlaut nafn Sig- urðar föðurafa síns. Þremur árum síðar eignuðust þau stúlku sem skírð varð Ágústa Þorgerður. Sum- arið 1902 fluttust Högni og Sigríð- ur með börnin tvö til Vestmanna- eyja en árið áður höfðu foreldrar Högna slitið samvistir. Frá aldamótunum 1900 var Högni þátttakandi í útgerð föður síns, fyrst á opnu skipi og síðar á vélbátunum Skeiðinni og Freyju. Hélst félagsútgerð þeirra til 1916 en þá lést Sigurður. Högni fór í framhaldinu einn í útgerð og lét byggja nýjan bát, vélbátinn Esther, sem hann gerði út til 1930. Eins og algengt var á þeirra tíma mæli- kvarða var Högni sannkallaður útvegsbóndi. Jafnhliða útgerðinni stundaði hann búskap í Vatnsdal, bæði á jörði sinni og braut einnig til nýræktar stórt landsvæði á svo- nefndri Strembu. Þann 1. desember 1901 stofnuðu útgerðarmenn Ísfélag Vestmanna- eyja en tilgangurinn var að koma upp vélknúnu frystihúsi. Vantaði mann með haldgóða þekkingu að stjórna því. Faðir Högna, Sigurður Sigurfinnsson hreppstjóri og for- maður Framfarafélags Vestmanna- eyja, var einn af stofnendunum en hann var fyrstur manna, svo vitað sé, sem vakti máls á því hve aðkallandi nauðsyn það var að byggja íshús. Gísli J. Johnsen út- gerðar- og kaupmaður fékk Högna til þess að taka starfið að sér og var hann ráðinn íshússtjóri 22. mars 1903. Var Högni sendur til náms til Árósa í Danmörku og lærði þar vél- stjórn og meðferð frystivéla á ótrú- lega skömmum tíma. Þetta fyrsta vélfrystihús á Íslandi tók til starfa undir stjórn Högna 1908. Þar var hann vélstjóri í 23 ár eða til 1931 og leysti það starf af hendi af sóma og mikilli samviskusemi. En þetta ár var öllum starfsmönnum Ísfé- lagsins sagt upp störfum sökum fjárhagskreppu. Högni hætti þá öllu starfi sínu í þágu þessa merka fyrirtækis sem hann átti ekki lítinn þátt í að byggja upp með ötulu starfi, árvekni og verkviti. Högni gerðist barnakennari í Eyjum samhliða starfi sínu sem íshússtjóri, eða frá 1904-1908. Í kennaratali er Högna lýst sem góð- um kennara, skýrum og glöggum, sem hélt góðum aga á nemendum sínum „og kom þeim til nokkurs þroska“. Högni tók þátt í bæjarpólitíkinni og var alla sína tíð mikill vinstri maður en lynti vel við alla. Vest- mannaeyjasýsla varð kaupstaður að lögum árið 1918 og strax í jan- úar 1919 voru haldnar kosningar. Högni var í kjörstjórn og bárust sjö framboðslistar. Á þeim tíma var hægt að vera á fleiri en einum lista og var Högni sjálfur á fjórum listum. Svo fór að hann var kosinn í fyrstu bæjarstjórn Vestmanna- eyja en lögð voru saman atkvæði einstakra frambjóðenda. Alls voru níu bæjarfulltrúar í þessari fyrstu bæjarstjórn og fékk Högni fjórðu flestu atkvæðin. Högni sat í bæjar- stjórn til 1922 . En 1942 var hann á lista hjá Sameiningarflokki Al- þýðu-Sósíalistaflokks og var þar í 8. sæti. Högni var virkur þátttakandi í menningar- og félagslífi Eyjanna. Hann var söngmaður ágætur og SÁ ÓLAFUR ELDGOSIÐ FYRIR? Í Þjóðviljanum 30. mars 1973 er grein sem ber yfirskriftina Sérkennileg túlkun. Þar segir blaðamaður með undirskrift- inni S.J. frá því að hann hitti að máli Ólaf R. Sigurðsson, fyrrum vörubílstjóra og núverandi lögregluþjón, sem sýndi honum málverk sem hann hafði málað nokkrum árum áður, þ.e. löngu fyrir gosið. Haft er eftir Ólafi að hann hafi ósjálfrátt umlukið húsið eldi og hrauntungum og fannst fólki sem sá myndina þetta furðulegt athæfi af höfundinum. Þá segir Ólafur að hann hafi aldrei gert sér almennilega grein fyrir því hvers vegna hann vildi hafa myndina með þessum hætti. Ólafur segir greinarhöfundi 48 árum síðar að hann hafi fyrst málað Vatnsdal án þess að hraun hafi umleikið hús- ið. En einhverju síðar kom hann heim eftir að hafa verið út á lífinu og þá hafi hann tekið upp á því að bæta við hrauntungum og eldi á myndina. Nokkrum árum síðar raungerðist þessi ótrúlega mynd. Guðný og Högni í Vatnsdal. Hulda Sigurðardóttir tók þessa mynd af þeim heiðarshjónum á kassa­ myndavél 10 ára gömul. Myndin er tekin 1957 fyrir utan verkstæði bræðranna Guðmundar og Hauks. Sigríður Brynjólfsdóttir, fyrri kona Högna Sigurðarsonar. Hún lést aðeins 44 ára og skildi eftir sig fjögur börn. Högni Sigurðsson í Vatnsdal. Högna er lýst sem miklum að vallarsýn, þrjár álnir á hæð og gildur, hraustmenni að burðum, virðulegur í fasi og fróðari flestum mönnum hér um slóðir eins og það var orðað í minningargrein.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.