Fylkir - 01.12.2021, Page 15
FYLKIR - jólin 2021
°
°
15
starfaði lengi í söngflokki sem
Ágúst J. Johnsen stjórnaði. Einnig
var hann í Söngfélagi Vestmanna-
eyja. Í íþróttalífinu lét hann líka
að sér kveðja en hann var glímu-
maður góður og tók fullan þátt í
íþróttalífi sinnar samtíðar.
Högni var vel lesinn í forníslensk-
um bókmenntum. Hann talaði og
skrifaði kjarnyrt mál enda undir
miklum áhrifum í foreldrahúsum,
unni tungu sinni og öðrum megin-
þáttum íslensks þjóðernis. Högni
var hagmæltur eins og hann átti
kyn til en var hlédrægur í þeim
efnum. Þó er til ágætis safn kvæða
hans og stökur sem og ýmsar
tækifærisvísur um ættingja, vini
og málefni dagsins, sem varðveist
hafa, m.a. í Bliki.
Hér er vísa sem ber yfirskriftina
Höldum á sæinn:
Þótt á Græði geigvaldur
góli bræðistemmu,
ekki hræðist Eyjólfur,
yfir ræður Emmu.
Þessi vísa ber yfirskriftina Er
þjóðarskútan að sökkva? Hana
samdi Högni eftir að hafa lesið
málgagnið sitt Þjóðviljann.
Það brakar í reiðanum brestur í ráð
og brýtur um þjóðstjórnar nökkva.
Ráðvilltir, fálmandi rekaldi á
ráðherrar fimm eru að sökkva.
Um barnabarnið Huldu Sigurðar-
dóttur orti Högni:
Vina litla er vina mörg
vilja hana allar dróttir.
Sú er Hulda Sigurbjörg
Sigurðs getin dóttir.
Um barnabarnið Svölu Hauksdóttur
orti Högni:
Sjötta árið Svala mín
sökk í báru tímans.
Ljósra-hárs-liljan fín
lukka án társ bíði þín.
Þetta ættjarðarljóð Högna ber
heitið Landið mitt:
Ég elska landið,
landið sem mig bar
það land, sem fóstra
minnar æsku var.
Þó fátæk sértu
og óblíð ættjörð mín
ég uni mér við jökulbrjóstin þín.
Í Norðfirði kynntist Högni skáldinu
Jónasi Þorsteinssyni. Högni og
Sigríður reyndust Jónasi vel í
veikindum hans. Högni og Jónas
stunduðu sjó saman og urðu
aldarvinir meðan báðir lifðu.
Jónas hirti oft lítið um kvæði sín
en Högni fékk Jónas til þess að
senda öll kvæði sín til varðveislu.
Högni skuldbatt sig á móti að skrá
kvæðin í sérstaka bók og varð-
veita þannig en rithönd Högna
þótti einstök og var víða rómuð.
Kvæðahandritið afhenti Högni svo
afkomendum hans nokkru áður
en hann lést.
Ekki eru til miklar heimildir um
Sigríði og enginn Vatnsdælingur á
lífi í dag sem þekkti hana á sínum
tíma enda lést hún langt um aldur
fram. Sigríður fæddist í Gljúfurholti
í Ölfusi. Fjölskyldan flutti í Garðbæ
í Brekkustíg 6 í Reykjavík og stend-
ur það hús enn. Móðir hennar Elín
Sigurðardóttir lést þegar Sigríður
var aðeins 10 ára og þá var hún
sett í fóstur á Álftanesi. Síðar fór
hún sem vinnukona til Norðfjarðar
og kynntist þar Högna.
Jónas skáld kunni að meta mann-
gæsku Sigríðar og vildi svo gjarn-
an vera maður til að launa henni
að einhverju leyti allt það sem hún
hafði honum vel gjört í veikindum
hans. Skáldið kvað til hennar vel
gerða vísu:
Ég til knúður yrki óð
um þig, skrúða lilja,
hugumprýð og hjartagóð,
Högnabrúður vangarjóð.
En Jónas skáld orti til brúðhjón-
anna og vina sinna Högna og
Sigríðar á brúðkaupsdegi þeirra
og þar fer ekki á milli mála að
hann stendur í mikilli
þakkarskuld við þau.
Bæði fundu þau til
með einstæðingnum.
Jónas orti m.a.:
Þú himnadrottning,
heilög ástardís!
Þig hjarta mannsins
verndarengil kýs.
Þú hefur svifið svalt
um jarðarskaut,
og sigurljóma slær á
þína braut.
Þú sameinaðir
heiminn
himnadýrð.
Þú huggar, græðir,
himnakrönsum
býrð.
Í dufti foldar dáð
sem litla ber
þinn drottinlegi helgidómur er.
Sigríður var aðeins 44 ára þegar
hún lést 18. september 1921 og
var Vatnsdælingum og Högna
mikill harmdauði. Talið er að Sig-
ríður hafi farið út í kuldann með
þvott með blautt hárið og fengið
lungnabólgu í kjölfarið sem dró
hana til dauða. Ekki eru til miklar
skriflegar heimildir um hana en
vísur Jónasar lýsa henni vel.
En Sigríður var einnig hagmælt
en lítið hefur varðveist eftir hana.
Hér er staka úr erfiljóðum Sigríðar.
Líðurðu sviflétt
á ljósvakans öldum
ljóshraða fljótar
um himnanna geim.
Dvelur í fagnað
hjá drottins útvöldum
dýrðleg og fögur
í sumarlandsheim.
Högni og Sigríður eignuðust sex
börn:
1. Sigurður f. 4. okt. 1897 að Nesi
í Norðfirði. Kvæntist Ingibjörgu
Ólafsdóttur frá Vík í Mýrdal 26.
feb. 1927. Þau eignuðust sex
börn; Ástu Hildi, Högna, Ólaf
Ragnar, Sigríði, Kristínu Ester
og Huldu Sigurbjörgu. Sigurður
lést 1951 en Ingibjörg 1989.
2. Ágústa Þorgerður, f. að Nesi
17. ágúst 1901. Giftist Sigurði
Oddgeirssyni prests Guðmund-
sen að Ofanleiti. Þau bjuggu í
Reykjavík og eignuðust fimm
börn; Stellu, Önnu, Sigurð,
Svanhildi og Hilmi. Ágústa Þor-
gerður lést 1948.
3. Hildur Ísfold, f. 18. feb. 1904 í
Eyjum. Giftist Tómasi Kristni
Jónssyni frá Reyðarfirði. Þau
bjuggu í Reykjavík og eignuð-
ust þau þrjú börn; Richard, Sig-
ríði og Högna. Hildur Ísfold dó
af barnsförum 1926 og Högni,
barnið sem hún ól, með henni.
4. Guðmundur, f. 10. maí 1908 í
Eyjum. Ókvæntur og barnlaus.
Hann lést 1982.
5. Haukur, f. 7. júlí 1912 í Eyj-
um. Kvæntist
Jóhönnu Jós-
epsdóttur frá
Siglufirði. Þau
eignuðust þrjú
börn; Svölu
Guðnýju, Öl-
ver Guðna og
Sigurð Högna.
Haukur lést
1993.
6. E l í n
Esther, f. 6. maí
1917. Giftist
Jóni Björgvini
Björnssyni frá
Reykjavík. Þau
bjuggu í Reykja-
vík og eignuð-
ust fimm börn;
Högna, Eddu Ísfold, Högna
Björn, Björgvin og Margréti
Guðnýju. Elín Esther lést 1992.
Nokkru eftir andlát Sigríðar kom
Guðný Magnúsdóttir frá Norð-
ur-Búðarhólshjáleigu í Landeyj-
um, ein af sjö systkinum, sem
vinnukona í Vatnsdal. Reyndist
hún sannkallaður bjargvættur
fyrir börn og afkomendur Högna.
Svo farsæl voru kynni þeirra að
þau gengu í hjónaband 15. des-
ember 1922. Guðný gekk yngri
börnum Högna í móðurstað og
reyndist þeim einstaklega vel,
yngsta barnið var fjögurra ára
en elsta 24 ára. Hún og Högni
eignuðust eitt barn, Hilmi, sem
reyndist þeim mikill gleðigjafi:
7. Hilmir, fæddur 27. ágúst 1923.
Kvæntist Öldu Björnsdóttur.
Þau eignuðust 8 börn; Hörð,
Hrefnu, Guðnýju Sigríði, Birnu,
Ingu Jónu, Högna Þór og tví-
burana Óðinn og Örn. Hilmir
lést 2014.
Guðný fæddist 17. júlí 1882. Þegar
hún kom til Vestmannaeyja gerð-
ist hún fyrst vinnukona að Strönd
um 1910. Þar átti hún góð ár og
var hún elskuð og ákaflega vel
ÞRÍBURARNIR Í VATNSDAL
Fyrstu þríburarnir sem fæddust í Vest-
mannaeyjum voru úr Vatnsdal en þær
fæddust 24. nóvember 1955, foreldrar
þeirra voru Sigríður Sigurðardóttir og
Kolbeinn Sigurjónsson. Fæðing systr-
anna vakti mikla athygli og var greint frá
því í landsmiðlum. Anna Ísfold kom fyrst
í heiminn en hún var fjórar merkur, svo
Marý Ólöf og loks Guðrún Fjóla en báðar
voru átta merkur. Ljósmóðir var Anna Páls-
dóttir og læknir Einar Guttormsson. Anna
var nefnd eftir ljósmóðurinni en Ísfoldar-
nafnið kom úr móðurættinni í Vatnsdal.
Marý var nefnd eftir Marie ömmusystur
sinni og manni hennar Ólafi Kristjánssyni
sem var bæjarstjóri í Vestmannaeyjum og
bróðir Oddgeirs Kristjánssonar tónlistar-
manns. Guðrún var nefnd eftir hjúkrunar-
konu á spítalanum en Fjólunafnið var út í
loftið. Talið er að Anna og Marý hafi verið
eineggja.
Anna Ísfold lést 21. júní 2017. Fyrir áttu
foreldrarnir eina dóttur, Kolbrúnu Hörpu
fædd 1954. Hún var á öðru ári þegar Sig-
ríður fæddi þríburana. Síðar fæddust þrjú
systkini í viðbót, Ingibjörg Sigríður 1957,
Elva Sigurjóna 1963 og Kolbeinn Freyr
1973.
Nokkru eftir andlát Sigríðar kom
Guðný Magnúsdóttir frá Norður-
Búðarhólshjáleigu í Landeyjum,
ein af sjö systkinum, sem
vinnukona í Vatnsdal. Reyndist
hún sannkallaður bjargvættur
fyrir börn og afkomendur Högna.
Svo farsæl voru kynni þeirra
að þau gengu í hjónaband 15.
desember 1922.
Vatnsdælingar á leið í þjóðhátíð í Herjólfsdal, hluti hópsins kominn
ofan af landi. Hópurinn stendur á Landagötunni, norðan við Vatns
dal. Fyrir aftan þau eru húsin Hof til vinstri, elliheimilið Skálholt
fjær fyrir miðju og til hægri er einn verkamannabústaðanna við
Urðarveg. Frá vinstri: Edda Brown, Bergur Ólason, Björgvin Jóns
son, Svana Sigurðardóttir, Högni Sigurðsson, Anna Sigurðardóttir,
Stella Sigurðardóttir, Högni Björn Jónsson, Jóhanna Friðriksdóttir
og fremst er Bjartey Sigurðardóttir.
Bræðurnir og vörubílstjórarnir í Vatnsdal, Haukur og Guðmundur
Högnasynir, önnum kafnir í viðgerðarsloppunum, væntanlega að
lagfæra vörubílana.
Sigurður og Ingibjörg með fjórum af sex börnum sínum. Högni
er lengst til vinstri, Ólafur lengst til hægri, Ásta Hildur aftast fyrir
miðju og fremst er Sigríður. Síðar bættust Kristín Ester og Hulda í
hópinn.
Þríburarnir Guðrún Fjóla, Marý
Ólöf og Anna Ísfold með frænku
sinni Huldu Sigurðardóttur.
Myndin er líklega tekin 1958.