Fylkir


Fylkir - 01.12.2021, Síða 31

Fylkir - 01.12.2021, Síða 31
FYLKIR - jólin 2021 ° ° Gleðileg jól og farsælt komandi ár þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða! Gleðileg jól og farsælt komandi ár þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða! Gleðileg jól og farsælt komandi ár þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða! Gleðileg jól og farsælt komandi ár þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða! Uppsetning og þjónusta á frysti-, kæli- og krapakerfum 31 Þá gerðist það sem engin átti von á; „Hífa!“ var öskrað út um brúar- gluggann. Helgi stýrimaður kom æðandi fram dekkið og kallaði niður: „Upp með ykkur, kallinn var að öskra hífa!“ „Hvur andskotinn er í gangi,“ hreytti Gústi Hnykkur út úr sér, „við erum ekki einu sinni búnir að éta!“ Kristján leit snöggt til Gústa og orðin hálfköfnuðu í munni hans. Menn litu undrandi á hvorn annan og ruku upp á dekk. Það var ekki um að villast, kallinn var byrjaður að hífa. Öll áhöfnin var nú komin upp á dekk og biðu menn spenntir eft- ir að sjá hvað þetta óvænta hal mundi færa með sér. Hver stökk á sinn stað. Brátt fór sjórinn að ólga í kjölfari bátsins, svo skaust pokinn hátt í loft upp og skall niður með miklum gusugangi og við áhöfn- inni blasti það stærsta hal er þeir höfðu augum litið. Það var ekki nóg með að pokinn væri fullur og skverinn líka heldur flaut fiskurinn út um vængina. „Ja, hvur andskot- inn!“ hrópaði Helgi Nagli. „Svei mér þá, það er vængjafullt!“ Nú varð aldeilis handagangur í öskjunni og eftir mikla vinnu og mikið erf- iði var trollið látið fara aftur. Svona gekk þetta, látið fara, togað í stutta stund og þá híft aftur og ekki leið á löngu þar til Hugur VE 103 var með fullfermi og stímt var í heimahöfn. Er menn höfðu komið sér fyrir við lúkarsborðið, þreyttir og sælir eins og sannir sjómenn verða þegar vel aflast, heimtuðu þeir velgerðir af kokknum til að narta í á heimstím- inu. Ég dró upp úr bekknum draum sjómannsinns, kleinur, og skar þverhandarþykkar þrumara- sneiðar smurði með miklu smjöri og púðursykur þar ofan á. Lagaði sterkt kaffi og gerðu menn þessu góð skil. Óli Heiðu færði kallinum upp í brú. Brátt voru allir komnir í koju nema ég og Kristján og að sjálfsögðu var kallinn uppi í brú, heldur bet- ur góður með sig. „Ætlar þú ekki í koju?“ spurði ég Kristján sem virtist ekki vera ögn þreyttur. Það vakti undrun mína að fötin hans voru eins og þau væru nýkom- in úr hreinsun. Hvorki hreistur né slor eftir að hafa staðið upp í klof í aðgerð og eftir allan hama- ganginn við að fylla bátinn. „Nei,“ svaraði Kristján. „Ég er orðin mjög þreyttur,“ sagði ég, „er að hugsa um að fá mér smá kríu áður en við komum í land.“ „Sestu hérna hjá mér, smástund,“ bað hann og eitt- hvað í augum hans sagði mér að gera einmitt það. Hann lagði hönd sína yfir mína og sagði: „Þakka þér velgerðirnar.“ Svo sátum við þarna og töluðum um alla heima og geima þar til við sigldum inn í Friðarhöfn. Mér til undrunar var öll þreyta fokin út í veður og vind. Það var uppi fótur og fit þegar Hugur VE 103 sigldi drekkhlaðinn inn höfnina eftir aðeins einn dag á sjó. Næsta dag stefndi allur flotinn á þennan sama stað en varð einsk- is var. Nú var heldur betur runninn eld- móður á kallinn. Það var ekki fyrr búið að landa en rokið var í ann- an túr. Er við vorum komnir út á ytri höfnina kom Helgi stýrimaður fram í lúkar og sækir Kristján: „Karl- inn vill finna þig.“ Kristján brosti til okkar hinna og hvarf svo upp um lúkarsopið. Enn í sömu hreinu fötunum og hann var í þegar lagt var upp í síðasta túr. Menn voru farnir að bera tak- markalausa virðingu fyrir þessum nýja skipsfélaga. Eins og allir um borð fékk hann sitt viðurnefni, Kristján Klári. Því aldrei þurfti að segja honum til verka. Hann virtist kunna allt. Kristján klári kom fram í lúkar og nú hafði kallinn tekið stefnuna í austur. Er menn ætluðu að fara að koma sér í koju sagði Kristján íbygginn á svip: „Það tekur því varla að fara í koju, strákar mín- ir.“ Hann hafði varla sleppt orðinu er kallinn öskraði: „Klárir!“ „Hvað er þetta, við erum rétt komnir austur fyrir Bjarnarey,“ sagðu Gústi Hnykk- ur og nú bar svo við að karlanginn bölvaði ekki. Allt fór á sama veg og innan sólarhrings var Hugur VE 103 kominn með fullfermi og sigldi til hafnar. Sagan um aflasæld okkar fór sem eldur í sinu um allan flotann, svo ekki sé talað um bæinn. Ekki leið á löngu þar til Hugur VE 103 var orðið aflahæsta skipið í flotanum. Það fór ekki hjá því að við tengdum þessa velgengni við Kristján Klára. Því í upphafi hvers túrs var Kristján Klári kallaður upp í brú svo kom hann brosandi fram í lúkar og svo leið ekki langur tími þar til kallið kom: „Klárir!“ Menn voru farnir að pískra sín á milli hver væri eigin- lega kapteinn á þessu skipi? Er áhöfnin sat að snæðingi í lúk- arnum vakti athygli mína að fúk- yrðin, klámið og bölvið var að mestu horfið. Menn ræddu saman á háfleygum nótum. Þetta fannst mér harla skrítið, því ég sem kokk- ur hef heyrt ýmislegt í lúkarnum mínum sem ég treysti mér ekki til að setja á prent. Alltaf átti Kristján svör við öllum spurning áhafnar- innar. Ég gat ekki annað en dáðst að þessum manni visku hans og speki. En hver var hann? Svo dundi ógæfan yfir. Við vor- um á heimstími eftir rétt enn einn metaflatúrinn. Ég var staddur uppi í brú, hafði verið að færa hróðug- um kallinum kaffi. Helgi stýrimað- ur ásamt hásetum voru að hamast við að ganga frá þeim afla er ekki komst í lestina í stíur á dekkinu. Þá skyndilega skall á hvöss austanátt og erfitt varð að fóta sig á sleipu dekkinu. Óli Heiðu var að gogga í síðustu stíuna er há alda reið yfir bátinn. Óli Heiðu fellur aftur fyrir sig með stinginn á lofti og ég sá mér til skelfingar að Kristján sem stóð gengt honum fellur fram fyr- ir sig og stingurinn fer á kaf í síðu hans. Ég stökk í hendingskasti til hans. Hann gaf ekkert hljóð frá sér er hann lá þarna og ég sá blóð vætla undan stakki hans. Nú kom Helgi stýrimaður og dró stinginn úr sárinu. Ég lá þarna á hnjánum og hélt um höfuð Kristjáns. Í aug- um hans var ekki að sjá neina skelf- ingu og hann horfði beint í augu mín. Ég sá lífið fjara út og hann var allur. Það þyrmdi yfir mig og er ég leit upp stóðu allir sem lamaðir. Þá áttuðum við okkur að storminn hafði lægt og komið dúnalogn eins og hendi hafi verið veifað. Menn litu undrandi á hvern annan en enginn sagði neitt. Áhöfnin gekk þögul til verka sinna. Líkami Kristjáns Klára var lagður til í koju skipstjóranns sem var í bestykkinu inn af brúni. Svo var lagt af stað og stefnan tekin á heimahöfn. Það féllu ekki mörg orð í lúkarn- um á þessu heimstími. Er báturinn lagðist að bryggju beið þar lög- reglan, sjúkrabíll og læknir. Læknirinn úrskurðaði Kristján látinn. Lögregluþjónarnir báru lík- ama hans í land þar var farið með hann á sjúkrahúsið þar sem hann var lagður til í kapellu í kjallara sjúkrahússins. Við tókum til við að koma aflanum á land. Það voru þung sporin frá borði heim á Skólaveginn. Ég gat ekki hætt að hugsa um þennan merki- lega mann sem ég hafði fengið að kynnast, þessa fáu daga sem hann var um borð. Við sem búum í sjávarþorpi vitum að sjórinn krefst sinna fórna svo ég var ekki mjög hissa er ég var ræstur á sjóinn á þriðja degi frá þessum hörmulega atburði. Árla morguns tók ég mig til og bjóst til að leggja af stað niður á bryggju. Opnaði dyrnar og steig út í sólina sem var að skríða upp á himininn yfir jökul- inn og lít til beggja handa og hjarta mitt bókstaflega stoppaði. Þarna á leið upp Skólaveginn sá ég Kristján Klára á gangi í fylgd ungs manns og annars sveins.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.