Fréttablaðið - 12.07.2022, Síða 1

Fréttablaðið - 12.07.2022, Síða 1
1 4 0 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 1 2 . J Ú L Í 2 0 2 2 Sköpunin blómstraði í Covid Segir sundmenn hafa gert mistök Menning ➤ 28 Allt Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/skodasalur Škoda Kodiaq Vinsæli ferðafélaginn! Verð frá 7.590.000 kr. Eigum nokkra lausa bíla á lager! Fjórhjóladrifinn, mjög vel útbúinn með 2.5 tonna dráttargetu Áætlanir um vindorku eru umdeildar. Samorka segir hana sjálfsagða viðbót. Gæti gegnt lykilhlutverki í grænni orku. Eyðilegging, segja sumir. bth@frettabladid.is ORKUMÁL Stærstu áætlanir um vindmyllur í Dalabyggð gera ráð fyrir að tveir vindorkugarðar gætu framleitt 300–400 megavött af raf­ magni við hámarksafköst. Til samanburðar skilar Kára­ hnjúkavirkjun 690 megavöttum af uppsettu afli. Í fyrsta skipti í sögu íslenskra sveitarfélaga hafa Dala­ menn sam þykkt breytingu á aðal­ skipulagi undir vindorku ver fyrir almennan markað. Skiptar skoðanir eru um hvort vindmyllur eyðileggi íslenska nátt­ úru eða séu grænn og sjálfsagður orkukostur. Spaðarnir í hæstu stöðu gætu farið í 200 metra hæð, eða þre­ falda hæð Hallgrímskirkju. Finnur Beck, forstöðumaður málefnastarfs hjá Samorku, segir vindorkunýtingu sjálfsagða við­ bót við þá endurnýjanlegu orku­ kosti sem nýttir eru í dag. Hún geti gegnt lykilhlutverki í að uppfylla þarfir fyrir græna orku. „Á heimsvísu lækkaði veginn meðalkostnaður á framleidda megavattsstund með vindorku á landi um 56 prósent milli áranna 2010 og 2020,“ segir Finnur. Auður Önnu Magnúsdóttir, for­ maður Landverndar, er efins um beislun vinds í miklum mæli. „Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir hversu gríðarleg mannvirki þetta eru,“ segir Auður og leggur áherslu á að eyðilegging náttúr­ unnar yrði mjög mikil. Hún segir Ísland eiga að nýta græna orku í orkuskipti og slökkva á álverum. „Við myndum gera mest gagn með því að sýna umheiminum hvernig kolefnislaust samfélag virkar.“ Fé lögin Qu adran og Storm Orka vilja bæði reisa vind orkuver í Dala­ byggð. Eyjólfur Bjarnason, oddviti Dala­ byggðar, segir vindorkuna langt í frá vera í höfn þar í héraðinu þó að Skipulags stofnun hafi samþykkt aðal skipu lags breytingu sveitar fé­ lagsins vegna tveggja vindorku vera. Sjálfur kveðst Eyjólfur beggja blands, en þekktir vindstrengir liggi um héraðið og í nálægð við f lutn­ ingskerfi Landsnets. „Hér er ríkjandi norðanátt, við tölum oft um Húnaflóarokið, það sem kemur úr Hrútafirðinum og fer hér yfir,“ segir Eyjólfur. Næsta skref í vindorkumálum í Dalabyggð bíður afgreiðslu ramma­ áætlunar. SJÁ SÍÐU 8 Vindmylluver á við Kárahnjúkavirkjun Eyjólfur Bjarnason, oddviti Dala- byggðar UTAN R Í K I S M ÁL Rússar standa frammi fyrir vali milli þess að heyja stríð eða bjarga efnahag landsins. Þetta segir Josep Borrell, utanrík­ ismálastjóri Evrópusambandsins, í grein sinni í Fréttablaðinu í dag. Borell segir einu varanlegu lausnina á vandanum sem steðjar að alþjóðlegum orku­ og matvæla­ mörkuðum vera að binda enda á stríðið og að það geti einungis orðið ef Rússar draga herlið sitt frá Úkraínu. Að sögn Borells er brýnt að Evr­ ópa taki sér stöðu sem eitt heims­ veldanna. Með viðbrögðum við innrásinni láti Evrópa verkin tala og sýni að hún geti svarað fyrir sig þegar henni er ögrað. SJÁ SÍÐU 11 Evrópa marki sér stöðu heimsveldis Þeir leikmenn íslenska kvennalandsliðsins sem léku í jafnteflinu gegn Belgum á EM um helgina tóku létta æfingu í gær en hinar í hópnum tóku á því af krafti. Næst leikur íslenska liðið á fimmtudag við Ítali sem voru kjöldregnir gegn feiknaröflugu liði Frakka í fyrstu umferð. Á mánudaginn kemur bíður síðan Frakkland í lokaumferðinni er í ljós kemur hvaða lið komast áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.