Fréttablaðið - 12.07.2022, Síða 28
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
Edda segir heimsfaraldurinn hafa reynst sér einkar vel fyrir listsköpunina. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Teikningar Eddu eru óhlutbundnar en í þeim gætir þó áhrifa borgarlandslags.
Fréttablaðið/Sigtryggur ari
tsh@frettabladid.is
Edda Jónsdóttir sýnir einka-
sýninguna Teikningar í
Hverfisgalleríi. Hún stofnaði
i8 gallerí en sneri svo aftur í
listheiminn sem listamaður
eftir áratugalanga pásu.
Myndlistarmaðurinn og galleristinn
Edda Jónsdóttir opnaði sýninguna
Teikningar í Hverfisgalleríi á dög-
unum. Sýningin samanstendur af
28 vatnslita- og blýantsverkum sem
Edda vann á undanförnum tveimur
árum í Reykjavík auk bókverks með
ljósmyndum af verkunum sem gefið
er út samhliða.
„Þegar Covid byrjaði var ég nýbúin
að vera með sýningu í Ásmundar-
sal og ég byrjaði að vinna dálítið
ryþmískt eftir það til að halda mér
lifandi. Ég komst á eitthvert skeið
þar sem mér fannst áreynslulítið að
vinna en ofsalega gott. Ég fór alltaf á
svipuðum tíma niður á Snorrabraut
þar sem ég var með vinnustofu og
þetta gekk svona í eitt og hálft ár,
alveg taktfast. Þá var ég komin með
svo mikinn bunka af pappír og hugs-
aði, það er svolítið skrýtið að halda
áfram að vinna svona bara fyrir mig
og sjá það ekki uppsett,“ segir Edda.
Hún segist þá hafa leitað til Sigríð-
ar L. Gunnarsdóttur, framkvæmda-
stjóra Hverfisgallerís, sem hafi litist
vel á verkin og þær hafi því komið sér
saman um að sýna þau í galleríinu.
Leið mjög vel í Covid
Margir listamenn hafa talað um
að einangrunin í Covid hafi reynst
þeim vel fyrir listsköpun. Var það
svo hjá þér?
„Já, mér leið bara mjög vel á þessu
tímabili. Það var reglufesta og það
var ekkert svo margt annað að trufla
mann. Yfirleitt er ég mjög dugleg að
skoða annarra manna sýningar og
þvælast út um bæ, hitta ungt fólk í
hádeginu og gera ýmislegt. En þarna
var hvíld frá öllu nema þessu og mér
leið bara mjög vel, verð ég að segja.“
Teikningar Eddu eru látlausar og
yfirvegaðar vatnslita- og blýants-
myndir. Þær eru málaðar í alls kyns
litum á hvítan pappír og minna á
nokkurs konar hnita- eða gatnakerfi.
Edda segir myndirnar ekki hafa
verið hugsaðar sem sería upphaflega.
„Þær kannski leyna á sér, þær
öskra ekki. Ég gerði náttúrlega
stærri og mismunandi myndir en
minn frábæri sýningarstjóri, Hildi-
gunnur Birgisdóttir, sá alfarið um
að velja og setja upp. Ef það er gott
þá er það henni að þakka. Ég var
ekkert með puttana í þessu,“ segir
Edda og bætir við að hún vilji einn-
ig þakka Ásmundi Hrafni Sturlusyni
arkitekt fyrir veitta aðstoð.
Þótt verkin séu óhlutbundin má
sjá í þeim óljós áhrif frá borgar-
landslagi, að sögn Eddu.
„Ég flutti úr húsi upp á efstu hæð
í blokk og sýn mín hefur svolítið
breyst við það. Þó það kannski sjá-
ist ekki þá er einhver svona borgar-
taktur í þeim, án þess að ég viti
hvort aðrir sjái það eða ekki.“
Vildi ekki trana sér fram
Edda er lærður myndlistarmaður
og starfaði sem slíkur frá 1975-1995.
Hún er auk þess stofnandi i8 gallerís
og stýrði því frá 1995-2007 þegar
sonur hennar, Börkur Arnarson, tók
við af henni.
„Ég vildi ekki trana mér fram
þegar ég var að reka gallerí þannig
að ég vann bara alfarið í skissubæk-
ur. Hélt mér við þannig í öll þessi ár,“
segir hún.
Spurð um hvort það séu ekki
ákveðin viðbrigði að snúa sér aftur
að listsköpun eftir áratugalanga
pásu segir Edda að það hafi verið
erfitt en nauðsynlegt.
„Maður verður kannski svolítið
feiminn með sína eigin myndlist
þegar maður er búinn að vera bæði
mjög krítískur og að reka gallerí. En
þetta náttúrlega hefur alltaf verið í
mér og ég finn að þetta er bara lífið.
Ég verð að gera þetta.“
Edda hefur haldið tvær aðrar
sýningar á undanförnum árum,
í Ásmundarsal og á Mokka kaffi.
Spurð um hvað sé næst á döfinni
hjá henni segist hún vera byrjuð að
sauma verk í pappír.
„Ég veit ekkert hvert það leiðir
mig, hvort ég held því áfram, en
allavega þá mun ég halda áfram að
vinna alveg eins og ég get, ég bara
elska það.“ n
Sneri aftur sem listamaður
eftir áratugalanga pásu
Ég komst á eitthvert
skeið þar sem mér
fannst áreynslulítið að
vinna en ofsalega gott.
Ég fór alltaf á svip-
uðum tíma niður á
Snorrabraut þar sem ég
var með vinnustofu og
þetta gekk svona í eitt
og hálft ár.
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
*Verð og vöru upp lýsingar í auglýs ingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
KARE MUSTIQUE
Morgunverðarsett. 12 stk. í pk. 26.990 kr.
KARE DESIRE
Legubekkur, silfurlitað sléttflauel. L173 cm. 299.990 kr.
NÝTT
NORDAL KAPITI
Blómavasi. H23 cm. 8.990 kr.
H25 cm. 11.990 kr.
16 Menning 12. júlí 2022 ÞRIÐJUDAGURFréttablaðiðmennInG Fréttablaðið 12. júlí 2022 ÞRIÐJUDAGUR