Fréttablaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 1
Ef þetta heldur áfram
sem horfir þá fyllist
dalurinn í nótt. Þá
lekur þetta líklegast
niður í Meradali eða
mögulega hérna norð-
ur fyrir.
Ármann Höskuldsson,
eldfjallafræðingur
1 5 7 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 4 . Á G Ú S T 2 0 2 2
Glæpakynslóð
fjarar út
Prófessor selur
matarvagn
Lífið ➤ 18 Lífið ➤ 20
Skutlaðu
pizzunni
á grillið í
sumar!
Fögnum
fjölbreytileikanum
Eldgos hófst í vestanverðum
Meradölum í nótt. Ármann
Höskuldsson eldfjalla-
fræðingur sagði í gærkvöldi
að hraun myndi líklega flæða
upp úr dalverpinu í nótt og
ofan í Meradali. Innviðir væru
ekki í hættu næstu mánuðina.
Sérfræðingur segir að sæstreng
þurfi til að tryggja raforku út á
Reykjanes ef illa fer.
ragnarjon@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
ELDGOS „Það er bara komið eldgos.
Þetta er kannski tvisvar sinnum
meira en síðast, sem getur nú varla
talist mjög mikið,“ sagði Ármann
Höskuldsson eldfjallafræðingur í
gærkvöldi um nýja eldgosið sem
hófst í vestanverðum Meradölum
í gær.
Eftir öf luga jarðskjálftahrinu á
Reykjanesskaganum síðustu daga
braust hraun upp yfirborðið við
gossvæðið frá í fyrra um klukkan
hálf tvö í gær. Á fundi Almanna-
varna í gær kom fram að áætlað sé
að hraunflæðið nú sé á bilinu fimm
til tíu sinnum meira en í gosinu sem
hófst í mars í fyrra.
„Ef þetta heldur áfram sem
horfir þá fyllist dalurinn í nótt. Þá
lekur þetta líklegast niður í Mera-
dali eða mögulega hérna norður
fyrir. Mestar líkur eru á Mera-
dölum,“ útskýrði Ármann spurður
um hvert hraunið muni leita. Hann
sagði innviðum ekki vera ógnað –
ekki í bili að minnsta kosti. „Nei,
ekki nema þetta haldi áfram í ein-
hverja mánuði,“ svaraði eldfjalla-
fræðingurinn sem kvað ekkert
hægt að segja til um hversu lengi
gosið muni standa.
Grindvíkingar fögnuðu nýja gos-
inu innilega því fari á sömu lund
og í fyrra hættir jörð nú að skjálfa.
Dijana Una Jankovic, starfsmaður
á bæjarskrifstofunum, fór strax í
bakarí þegar fréttirnar bárust.
„Ég er svo hrædd við jarð-
skjálfta og þegar ég heyrði frétt-
irnar um að gos væri byrjað fór
ég og keypti köku fyrir starfsfólkið
hér á bæjarskrifstofunni,“ segir
Dijana.
Þótt gosið ógni ekki innviðum
að svo stöddu er það líklega aðeins
st ak ur atburður í aldalang r i
umbrotahrinu sem nú er hafin á
Reykjanesskaganum.
Sérfræðingur í áhættugrein-
ingu telur að háspennulínurnar á
Reykjanesi séu í mun meiri hættu á
að verða hrauni að bráð en Reykja-
nesbrautin. Hann telur heppilegast
að leggja sæstreng milli Hafnar-
fjarðar og Keflavíkur til að tryggja
raforkuflutning til Reykjaness.
SJÁ SÍÐUR 2, 4 OG 6
Hrauninu spáð upp úr dalverpinu í nótt
Björgunarsveitarfólk fylgdist með sjónarspilinu sem fylgir eldgosinu sem hófst í Meradölum í gær. Gönguleið að gosstöðvunum er löng og grýtt og ráðlegt að vera vel búin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK