Fréttablaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Þórunn Heba byrjaði fyrst árið 2015 að selja hárteygjur með handgerðum slaufum á Facebook undir nafninu Hebuslaufur. „Ég fékk nokkrar pantanir og var alsæl með það. Svo breytti ég Facebook síðunni í Habe by Heba og fór að setja inn hluti úr keðjum. Ég man ekki alveg af hverju ég byrjaði með keðjurnar, og þó? Ég elska chokera og hafði keypt þannig og hugsaði með mér að ég gæti alveg prófað að gera líkamskeðjur og chokera sjálf,“ segir Þórunn Heba. „Margir þekkja mig enn undir Habe by Heba, enda hef ég lengst af notast við það nafn, en ég varð þreytt á þessu „by“, því það eru svo margir að nota það í dag. Svo núna er ég bara Habe sem gerir keðju­ dót! Habe var svo frátekið á Insta­ gram svo chainwork varð fyrir val­ inu eftir miklar vangaveltur. Ég tók mér pásu við sköpunina árið 2021 vegna veikinda en er núna byrjuð á fullu aftur.“ Hægt er að nálgast verkin hennar Þórunnar Hebu á Instagram @habe_chainwork. „Ég fylgist ekki jafn vel með Facebook­ síðunni svo það er best að hafa samband við mig á Instagram.“ Hrá, áberandi og djörf Þórunn Heba er 31 árs og lauk stúdentsprófi ásamt hönnunar­ og handverksbraut við Tækniskólann. Hún er langt komin með BA í mannfræði við HÍ. Þegar hún er ekki að skapa úr keðjum og leðri þá vinnur hún á leikskóla. Þórunn Heba lítur á verkin, sem hún býr til úr keðju, leðri/pleðri, kristöllum og perlum, sem listsköpun fremur en söluvöru, þó svo auðvitað sé hægt að kaupa þau. „Ég myndi lýsa verkunum mínum sem hráum, áberandi og djörfum. Til þess að fá innblástur sest ég vanalega fyrir framan gínu og byrja á því að leika mér í einhverju fikti með hráefnið. Ég fæ líka hugmyndir af netinu og úr sjónvarpinu og geri að mínu. Til dæmis byrjaði ég fyrst að gera hárkeðjur þegar ég sá konu með svoleiðis syngja fyrir hönd Lett­ lands í Eurovision eitthvert árið. Fólk hefur líka sent mér hlekki af Pinterest og ég hef gert mínar eigin útgáfur. Það verður aldrei nákvæmlega eins og fyrirmyndin.“ Hvað er það sem heillar þig við hráefnin sem þú notar? „Keðjur heilla mig vegna þess að þær eru fjölbreyttar í útliti og ég elska að tengja þær saman. Leður/ pleður nota ég mikið því ég elska leður og það er létt að skera það til og festa saman á viðeigandi hátt. Ég hef líka aðeins verið að fikta með perlur því ég elska steina, en það er ekki nærri því eins vinsælt. Flest af hráefnunum kaupi ég á netinu, í nytjamörkuðum og svo í byggingarvöruverslunum.“ Elskar að vinna með fólki Þórunn Heba segist ekki hafa hugmynd um hversu margar líkamskeðjur og fylgihluti hún hefur gert. „Ég er að búa þetta til heima í stofunni. Þá tek ég bæði við pöntunum frá viðskiptavinum og geri líka persónulega fyrir fólk. Mér þykir rosalega gaman að vinna með fólki og er alltaf með opinn hug þegar fólk sendir mér línu. Ef ég er að gera líkamskeðju fyrir fólk þá bið ég um brjóst­, mjaðma­ og mittismál. Einstaka sinnum geri ég bara eitt stykki af einhverju og þá tek ég það sérstak­ lega fram. Ég hef líka gert prívat fyrir ljósmyndatökur. Einnig gerði ég mikið af líkams­ keðjum og fylgihlutum fyrir hljómsveitina Kæluna miklu fyrir tónleika á árunum 2016–2020. Ég veit ekki til þess að f leiri hafi skartað mér á sviði. Ég hef hins Þórunn segir að keðjur heilli hana vegna þess að þær eru fjölbreyttar í útliti og henni finnst gaman að tengja þær saman. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Skartið er gróft og skemmtilegt. Hér má sjá úrval af keðjum sem Þórunn hefur gert. Þórunn hefur gert marga fylgi- hluti fyrir hljóm- sveitina Kæluna miklu. Jóhanna María Einarsdóttir jme @frettabladid.is vegar fengið skiptidíl við nokkra áhrifavalda, fengið myndir í skiptum fyrir skart.“ En hvað með nafnið Habe? Er þetta orðagrín eða er dýpri merking að baki? „Það er reyndar skemmtilegt að segja frá því að þegar ég var í grunnskóla fórum við í heimsókn á sjúkrahúsið. Í heimsókninni var okkur, sem höfðum alltaf búið í sveitar­ félaginu, gefin mynd sem við teiknuðum í fjögurra ára skoðun. Ég hafði teiknað mannveru og skrifað stórum stöfum HABE, en ekki Heba. Mér finnst þetta svo fyndið og hef hlegið mikið að þessu með mínum nánustu. Svo já og nei, orðagrín. Myndi samt segja já.“ n Til dæmis byrjaði ég fyrst að gera hár- keðjur þegar ég sá konu með svoleiðis syngja fyrir hönd Lettlands í Eurovision eitthvert árið. 2 kynningarblað A L LT 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.